Morgunblaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Ísland hefur verið fyrirferðarmikiðí erlendum fjölmiðlum. Financial
Times birti til dæmis hátt í 200
fréttir á tveim mánuðum um ís-
lenskt efnahagslíf. Á sama tíma og
óveðursskýin hrannast upp yfir
bresku efnahagslífi og ekkert síður
hinum megin Ermarsundsins, þá
sækja þeir „skúbbin“ til hrjóstr-
ugrar, fámennrar eyjar í Norður-
Atlantshafi.
Hvað skyldivera svona
fréttnæmt við
efnahagslíf örrík-
is við heimskauts-
baug? Spilar inn í
að þægilegt sé að
búa til nýjan og
fjarlægan „Nort-
hern Rock“?
Tónninn hefur reyndar verið já-kvæðari á undanförnum vikum.
Og nýleg umfjöllun í Guardian var í
gamalkunnum anda, þar sem fyrir-
sögnin var: „Engin furða að ham-
ingjusamasta fólk á jörðinni býr á
Íslandi.“ Þar veltir blaðamaðurinn
John Carlin vöngum yfir því af
hverju Íslendingar séu hamingju-
samasta þjóð í heimi og því til stuðn-
ings vitnar hann í rannsókn sem
birt var í Guardian árið 2006. Hann
ræðir m.a. við Geir H. Haarde for-
sætisráðherra og Dag B. Eggerts-
son „forsætisráðherra framtíð-
arinnar“.
Í greininni er Íslandi m.a.líkt viðAfríkuríki og það rökstutt með
því að ekki sé litið á uppeldi sem
hlutverk foreldranna heldur
„þorpsins“ alls. Slíkar bábiljur eru
saklausar og raunar kærkomnar á
þessum síðustu og verstu tímum,
þegar þær eru á jákvæðum nótum.
En það er alvarlegra þegar þærsnúa að efnahagslífinu. Sem
betur fer bendir margt til að sú
ímyndarkreppa sem íslenskt fjár-
málalíf hefur gengið í gegnu skapi
grundvöll fyrir vandaðri umfjöllun
um eyjuna við heimskautsbaug.
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Eyjan við heimskautsbaug
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
!"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
$
*$BC %%%
! " # $!%
& ' ( )
*!
$$B *!
& '
( %! %' %! " !
)
<2
<! <2
<! <2
& "!( %* +,%- .
CC
B
"2
$ %&
*
+
/
$ + ,
!#"
$- '
. % <7
$ . /
$-# 0 & + ' . / % /0%% 11 !%
%2
%* +
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sigurður Mar Halldórsson | 21. maí
Heimaframleiðsla
bænda
Ég hef lengi verið tals-
maður þess að bændur
selji framleiðslu sína
sjálfir eða í það minnsta
í gegnum staðbundnar
afurðastöðvar. Ég hef
tuðað um það í mörg ár
að geta ekki séð hvaðan kjötið sem
ég kaupi í búðinni er. Nafni minn, Sig-
urður Óskar Pálsson frá Borgarfirði
eystra, var óánægður með að eyrun
voru skorin af sviðunum því þá gat
hann ekki flett upp í markaskránni til
að gá hvaðan hausinn kom en ég
geng kannski ekki alveg svo langt. Við
getum séð frá hvaða …
Meira: marason.blog.is
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 21. maí
Börn og foreldrar í
Tarzanleik!
Á veturna eru lítil börn
ekki mikið úti að leika
sér, síst af öllu um helg-
ar. Þegar er kalt og það
blæs þá vilja flest
yngstu leikskólabörnin
helst vera inni og hafa
nægt rými. Þetta vita allir foreldrar.
Vandinn um helgar þegar gaman er að
gera eitthvað saman er alltaf spurn-
ingin um hvert á að fara. Margir fara í
Húsdýragarðinn, í sund, út að labba, í
heimsókn og sumir enda alltaf í æv-
intýralandi Kringlunnar eða í Smára-
lind. Eldri krakkarnir eru iðulega í
föstu íþrótta- eða annars konar …
Meira: bryndisisfold.blog.is
Anna Ólafsdóttir Björnsson | 21. maí
Himinlifandi
á Hillary-vaktinni
Fyrstu spár bentu ekki
til mikils sigurs Hillary í
Kentucky en núna er
henni spáð stórsigri og
ég vona að það haldi.
Oregon er vestar og
óvissara, en ef Hillary
næði betri árangri þar en ætlað var
gæti farið svo að tvær grímur rynnu á
ofurfulltrúana sem hafa ekki þorað að
lýsa yfir stuðningi við Hillary. Fyrir
nokkrum vikum var henni spáð meiri-
hluta þeirra en Obama hefur verið að
fá suma þeirra til sín. Þeir hljóta líka
að vera hugsandi yfir þeim fréttum að
stuðningsfólk Hillary sé ekki allt …
Meira: annabjo.blog.is
Einar Sveinbjörnsson | 20. maí
Veðurlagsspá fyrir
sumarið (jún–ág)
Eftir að hafa skoðað
niðurstöður þriggja
ólíkra spálíkana sem öll
reikna veðurlag næstu
þriggja mánaða velkist
maður eiginlega ekki í
vafa um veðurlagsspá
sumarmánuðina júní til ágúst.
Að samanlögðu þessa þrjá mánuði
má reikna með að hitinn verði víðast
yfir meðallagi og það frekar um landið
suðvestan- og vestanvert sem og
norðanlands, en síður austan- og suð-
austantil. Meira verður um lægðir við
Bretlandseyjar og á Norðursjó en vant
er. Það hefur í för með sér að hér á
landi verður SA- og A-átt tíðari en
venja er og þá á kostnað SV-áttar og
líkast til einnig hreinnar N-áttar. Held-
ur meiri líkur eru á eitthvað minni úr-
komu á landinu, sérstaklega vest-
antil, en þó er álíklega líklegt að
úrkoma verði nálægt meðaltali þegar
allt er talið.
Menn geta síðan dundað sér við að
lesa hér á milli línanna og túlkað fyrir
einstaka landshluta.
Þær spár sem skoðaðar voru:
ECMWF (Evrópska reiknimiðstöðin
í Reading) IRI (Veðurlagsspá Col-
umbíuháskóla í NY) MetOffice
(þriggja mánaða spá Bresku veð-
urstofunnar í Exeter). Spákortið sem
hér fylgir með er fengið af síðu met.no
og er þeirra túlkun á ECMWF.
Það er einna helst að IRI nái ekki
neinu útslagi, en það spálíkan heldur
sig við veður í sumar nærri meðallagi.
Þó er greinileg vísbending í átt til hlý-
inda.
Takturinn á milli MetOffice og
ECMWF er hin vegar skýr. Bæði lík-
önin gefa til kynna að Azoreyjahæðin
verði að fremur vestarlega á Atlants-
hafi og lægðagangur að jafnaði úr
vestri yfir Bretlandseyjar. Þessi af-
staða er fremur hagstæð hér hjá okk-
ur hvað skýjafar og úrkomu áhrærir,
þó A-læg átt í lengri tíma sé nú ekki
sérlega hagfelld alls staðar á landinu.
Ef við rýnum og túlkum hitaspána
betur sérstaklega fyrir Reykjavík má
segja að líklegast sé að meðalhiti júní
til ágúst verði þegar upp er staðið á
bilinu 10,8 - 11,3°C. Slíkur hiti er yfir
meðallagi en alveg í takt við síðustu
sumur. Góðviðrissumarið í fyrra var
meðalhitinn 11,5°C en 10,6°C árið
2006. ...
Meira: esv.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
SIGRÍÐUR Ólafsdóttir, fagstjóri
meistaranáms í Haf- og strandsvæða-
stjórnun við Háskólasetur Vest-
fjarða, kynnir meistaraprófsverkefni
sitt í umhverfis- og auðlindastjórnun
við Háskóla Íslands, á morgun, 23.
maí kl. 12 í stofu 132 í Öskju.
Rannsóknarverkefnið snýr að af-
mörkuðu strandsvæði á Íslandi,
Skerjafirði. Fjörðurinn er 18 ferkíló-
metrar að stærð og afmarkast af
sveitarfélögunum fimm Seltjarnar-
nesi, Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ
og Álftanesi. Rannsóknarspurning
verkefnisins er hvort strandsvæði
Skerjafjarðar séu nýtt á sjálfbæran
hátt og ef svo er ekki, þurfa þau nýrra
stjórnunarhátta við?
Ekki nýtt á sjálfbæran hátt
Niðurstaða verkefnisins er sú að
strandsvæði Skerjafjarðar eru ekki
nýtt á sjálfbæran hátt. Þekking er lít-
il og brotakennd um svæðið og laga-
setning um eignar- og umsýslumörk
sveitarfélaga á haf út er úrelt og ekki
í takt við nýtingu. Enn fremur er
stefnumörkun stjórnvalda um nýt-
ingu svæðanna óljós og töluvert vant-
ar upp á lagasetningu og samþætt-
ingu í stjórnun til að framkvæmdar-
áætlanir og stjórntæki, skipulags- og
byggingarlög og lög um umhverfis-
mat áætlana, virki sem skyldi. Einnig
er áberandi að fagleg vinnubrögð eru
ekki viðhöfð í skipulagsvinnu sumra
sveitarfélaga.
Til að bæta úr vandkvæðum í nýt-
ingu og stjórnun strandsvæða hér á
landi er lagt til að stjórnvöld endur-
skilgreini strandsvæði og að þau
verði í umsjón og eign sveitarfélag-
anna en að framkvæmdaréttur og
nýting þeirra verði takmörkuð við
umsagnir sérstakrar nefndar sem fer
með málefni haf- og strandsvæða,
svokallaðrar haf- og strandvísinda-
nefndar. Nefndina munu skipa fag-
aðilar, vísindamenn og aðilar frá
stofnunum sem hafa málefni strand-
svæða á sinni könnu. Enn fremur er
lagt til að mörkuð verði stefna um
nýtingu auðlinda og skipulag strand-
svæða innan landskipulags, sem
kveðið er á um í frumvarpi um ný
skipulagslög.
Umsjónarmaður verkefnisins er
Ingibjörg Jónsdóttir, leiðbeinandi,
Salvör Jónsdóttir og prófstjóri Guð-
rún Pétursdóttir.
Þekking á strand-
svæði Skerjafjarðar
lítil og brotakennd