Morgunblaðið - 06.07.2008, Side 12

Morgunblaðið - 06.07.2008, Side 12
12 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ „Ég keypti þetta í góðri trú og var afskaplega ánægður að vera svona vel tryggður. Nú sé ég að þetta var ekkert annað en gabb,“ segir Friðrik Bjarnason málarameistari á Akureyri um sjúkdómatryggingu sem hann keypti. Síðla árs 2003 hringdi sölumaður frá Landsbankanum í hann og bauð honum sjúkdómatryggingu. „Hann sagði ekkert vit í öðru en að verktaki væri með tryggingu af þessu tagi og ég sló til,“ útskýrir Friðrik. Samningurinn sem hann undirritaði var frá svissneska líf- tryggingafyrirtækinu Swiss Life. Hann var á flókinni ensku og með sérhæfðum hugtökum úr læknisfræði. „Landsbankinn kaupir þjónustu af þessu fyrirtæki og þess vegna fékk ég samninginn ekki á íslensku. Ég skildi hann ekki fyllilega en sölumaðurinn útskýrði fyrir mér að í honum væru tilgreindir algengir sjúkdómar sem ég væri tryggður gegn. Veiktist ég og missti tekjur átti tryggingin að brúa bilið.“ Í stað þess að greiða lágmarksiðgjöld, um 4000 krónur á mánuði, ákvað Friðrik, eftir ráðleggingu sölumannsins, að greiða nærri 5000 krónur á mánuði. Hann taldi að þar með væri honum tryggðar ágætar tekjur ef svo færi að hann missti úr vinnu vegna veikinda. Nokkru síðar, veturinn 2007, varð Friðrik veikur. Hann fékk heiftarlega lungnasýkingu og skemmd í hjartaloku og lá á spítala í tæpa viku. Alls missti hann einn og hálfan mánuð úr vinnu vegna veikindanna. „Ég var eins og undin tuska þegar ég kom af spítalanum og lengi að jafna mig. Það létti þó lund- ina að vita að ég væri svona vel tryggður.“ Þegar á reyndi kom í ljós að tryggingin náði ekki yfir veik- indi Friðriks. „Hún nær ekki til sýkinga, en læknir sem ég ræddi við sagði að bróðurpartinn af öllum veikindum mætti rekja til sýkinga. Mér finnst hafa verið villt um fyrir mér og ég hlunnfarinn,“ segir hann. „Það var ekki nóg með að látið væri í veðri vaka að tryggingin næði til fleiri sjúkdóma en raun ber vitni, heldur láðist líka að segja mér að tryggingin gildir bara til 65 ár aldurs. Ég var 59 ára þegar ég keypti hana. Ég hefði ekki gert það hefði ég vitað að hún gilti bara í sex ár,“ segir hann. Friðrik segir erfitt að fá skýr svör um nokkuð sem tengist þessu máli hjá Landsbankanum. „Allir sem ég tala við fara undan í flæmingi og benda hver á annan. Það tók t.d. rúmt ár bara að fá afrit af samningnum sem ég gerði. Ég hef tilfinn- ingu af því að menn dragi fæturna í von um að ég gefist upp á því að grennslast fyrir um þetta.“ Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Smáa letrið Friðrik Bjarnason segir kynningu á sjúkratrygg- ingu sem hann keypti hafa verið mjög misvísandi. Enska og læknamál voru mjög villandi Sér er nú hv Eftir Oddnýju Helgadóttur og Orra Pál Ormarsson oddnyh@mbl.is | orri@mbl.is Ý msir sjúkdómar heyra undir sjúkdómatrygg- ingu hér á landi og margir telja sig örugg- lega vera með allt á hreinu gagnvart tryggingafélög- unum þegar alvarleg veikindi knýja dyra með tilheyrandi áhyggjum og vinnutapi. Lífið verður flóknara þegar fólk veikist. Skuldir hverfa ekki þótt menn þurfi í lyfjameðferð eða upp- skurð, tapi sjón eða heyrn. Þvert á móti eru líkur á því að veikindin leiði til aukinna útgjalda. Fyrir vikið er gott að geta stólað á bætur sjúkdómatryggingarinnar og ein- beitt sér að baráttunni gegn veikind- unum án þess að hafa áhyggjur af fjármálum heimilisins. En eru menn tryggðir fyrir öllum þeim sjúkdómum sem sjúkdóma- tryggingin virðist í fljótu bragði ná til? Það er ekki sjálfgefið. Þegar skilmálar tryggingafélaganna eru skoðaðir kemur í ljós að býsna margt er undanskilið, jafnvel al- gengar birtingarmyndir sjúkdóma. Þá getur venjulegu fólki, sem ekki hefur þekkingu á læknisfræði eða hjúkrun, reynst erfitt að skilja þá. Morgunblaðið rýndi í skilmála sjúkdómatrygginga ásamt lækni sem kynnt hefur sér málið vandlega. Stuðst er við orðalag í skilmálum VÍS en skilmálarnir eru mjög áþekkir hjá íslenskum trygginga- félögum og á þessi umfjöllun fyrir vikið ekkert síður við önnur trygg- ingafélög á íslenskum markaði. Bótasviðið er eftirfarandi: Dæmigerður brjóstverkur  Greiddar eru bætur vegna krans- æðastíflu/hjartadreps sem skilgreint er sem „drep í hluta hjartavöðvans vegna ónógs blóðflæðis til þess svæðis.“ Öll eftirtalin einkenni þurfa að vera til staðar: Dæmigerður brjóstverkur, nýjar einkennandi breytingar á hjartalínuriti og hækk- un á sértækum ensímum fyrir hjartadrep, tróponínum eða öðrum lífefnafræðilegum merkjum um hjartadrep. Enda þótt dæmigerður brjóst- verkur sé algengur þegar fólk fær kransæðastíflu þá er það ekki algilt. Læknir sem Morgunblaðið ræddi við bendir á, að til dæmis fólk með langt gengna sykursýki fái stundum ekki dæmigerðan brjóstverk. Ein- kenni geti m.a. komið fram sem ógleði eða skyndileg uppköst. Undanskilið frá bótum er hjarta- drep án ST-hækkana með hækkun á tróponíni I eða T og önnur bráð kransæðatilfelli. Í sambandi við þetta segir lækn- irinn ST-hækkanir ekki alltaf koma fram við hjartadrep. Mörg krans- æðatilfelli uppfylli m.ö.o. ekki skil- mála tryggingafélaganna.  Greiddar eru bætur vegna krans- æðaskurðaðgerðar/hjáveituaðgerð- ar. Þar er átt við opna „brjósthols- aðgerð í þeim tilgangi að laga með kransæðagræðlingsaðgerð eina eða fleiri kransæðar sem eru þrengdar eða lokaðar. Sýna þarf fram á nauð- syn aðgerðar með kransæðamynda- töku.“ Með kransæðamyndatöku er í reynd átt við þræðingu sem er um- talsverð aðgerð. Undanskilin frá þessu er krans- æðavíkkun eða -blástur og/eða sér- hver innanæðaaðgerð og kögunar- aðgerðir. Að sögn læknisins, sem Morg- unblaðið ráðfærði sig við, þýðir þetta að allar kransæðaaðgerðir eru undanþegnar bótum. Einungis eru greiddar bætur vegna opinna hjartaaðgerða. Læknirinn segir þetta merkilegt í ljósi þess að besta bráðameðferð sem sjúklingur geti fengið við kransæðaþrengingum eða lokunum sé kransæðaþræðing þar sem æðin er opnuð á ný, sem fyrst eftir að kastið á sér stað. Þannig er reynt að koma blóðflæði til hjarta- vöðvans strax til að minnka þá skemmd á vöðvanum sem krans- æðastíflan annars veldur. Sjaldgæft er að fólk sé sent með skyndingu í Öll getum við fyrir- varalaust veikst af al- varlegum sjúkdómi og þar með er fótunum kippt undan tilveru okkar. Ætla mætti að þá væri gott að vera með sjúk- dómatrygg- ingu, ekki síst ef veikindin gera það að verkum að við erum lengi frá vinnu. Íslensk trygg- ingafélög bjóða upp á tryggingu vegna ým- issa sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, krabbameins, Alz- heimers-sjúkdómsins, MS, MND og Parkinsons- veiki. Þá er hægt að tryggja sig fyrir blindu og út- limamissi. En er allt sem sýnist í þess- um efnum? Býsna margt er undanskilið í skilmálum trygging- arinnar og eins og læknir sem Morg- unblaðið ráðfærði sig við bendir á getur maður þurft að fá sjúkdóm á „réttan“ hátt til að fá greiddar bæt- ur. Ósjálfbjarga Trygginga- kaupi þarf að vera orðinn algjörlega ósjálfbjarga til að öðlast bótarétt vegna Parkinsonsveiki eða MND. Morgunblaðið/Ásdís Hjartaaðgerðir Fólk á að- eins rétt á bótum sé skipt um hjartaloku, ekki gert við hana. Morgunblaðið/Golli Blinda Aðeins algjör, var- anlegur og óafturkræfur missir sjónar á báðum augum veitir rétt til bóta. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.