Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Cindy McCain Eiginkona Johns McCains er sögð horfa með jafn mikilli aðdáun á bónda sinn og Nancy Reagan horfði jafnan
á eiginmann sinn, Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna 1981 - 1989. Gárungarnir töluðu um Nancy-störuna.
Hugsjónakona
með fortíðarskugga
29% kjósenda, höfðu neikvæða skoðun á Cindy McCain og 10% höfðu mikið á móti
henni. 71% kvenna á móti 48% karla töldu eiginkonur forsetaframbjóðenda gegna mik-
ilvægu hlutverki í kosningabaráttunni samkvæmt Rasmussen skoðanakönnuninni.
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
ótt ekki væri nema vegna
þess að fleiri eru fátækir en
forríkir í Bandaríkjunum
getur fólk frekar speglað sig
í Michelle Obama, eiginkonu
Baracks Obama, forseta-
frambjóðanda demókrataflokks-
ins, en Cindy McCain, eiginkonu
Johns McCains, forsetaframbjóðanda Repú-
blikanaflokksins. Sú fyrrnefnda þekkir fá-
tækt af eigin raun, sú síðarnefnda fæddist
með silfurskeið í munni, einkabarn for-
ríkra foreldra. Báðar eru hávaxnar, fríðar
og föngulegar, en þó eins og dagur og
nótt; önnur dökk, hin ljós. Þá eru þær afar
ólíkar í fasi auk þess sem áratugur skilur
þær að í aldri.
Í skoðanakönnun í byrjun júní kom í ljós
að Michelle Obama féll ekki í kramið hjá
42% kjósenda og 25% höfðu mikið á móti
henni. Færri, eða 29% kjósenda, höfðu nei-
kvæða skoðun á Cindy McCain og aðeins
10% höfðu mikið á móti henni. Repúblik-
anar hyggja lítið mál að kippa því í liðinn.
Forsetafrúm Bandaríkjanna síðustu ára-
tugina er oft skipt í tvo hópa, annars vegar
þær sem eru með sjálfstæðar pólitískar
skoðanir og hafa pólitísk áhrif og hins veg-
ar þær sætu og vel til höfðu sem styðja góð
málefni og segja ekkert sem kann að vera
umdeilt eða eftirtektarvert.
Hvorug kvennanna virðist falla
fullkomlega í annan hvorn hóp-
inn.
Önnur hispurslaus,
hin settleg
Michelle Obama þykir hispurs-
laus til orðs og æðis, opinská og
með ákveðnar skoðanir og skop-
skyn, sem á stundum fær stuðn-
ingsmenn til að svitna í lófunum
og andstæðinga til að kvaka af
kæti. Sumir kjósendur vilja ekk-
ert endilega vita að forseta-
frambjóðandinn þeirra sé and-
fúll á morgnana.
Cindy McCain er settleg, fremur al-
vörugefin og talar af aðdáun um bónda
sinn taki hún til máls á annað borð. Þótt
hún standi þétt við hlið hans í kosningabar-
áttunni kveðst hún engan áhuga hafa á
stjórnmálum. Mikið hefur verið fjallað um
störf hennar að mannúðarmálum í áranna
rás og líka fortíð hennar, sem ekki er al-
veg flekklaus.
Þjóðarstolt,
stundum eða alltaf
Leiðir þessara tveggja kvenna hafa lítt
skarast og þær hafa fá orð haft hvor um
aðra. Nýlega fóru fjölmiðlar mikinn þegar
Michelle Obama sagði á kosningafundi að
hún væri í fyrsta skipti á sínum fullorð-
insárum stolt af þjóð sinni. Niðurlagið:
„af því að ég held að fólk þyrsti í breyt-
ingar“ – fór fyrir ofan garð og neðan hjá
mörgum. Talsmenn forsetaframboðs
McCain sáu sér strax leik á borði og
Cindy McCain lýsti því yfir að hún væri
ekki bara í eitt skipti stolt af þjóð sinni
heldur ævinlega.
Trúlega verða konurnar tvær mikið
undir smásjánni á næstunni eða þar til úr
því fæst skorið hvor verður næsta for-
setafrú Bandaríkjanna í nóvember næst-
komandi. Þegar ber á því að allt sem þær
segja og gera er rangtúlkað, afbakað og
skrumskælt í herbúðum keppinautanna en
réttlætt og fegrað í þeirra eigin. Fortíð
þeirra hefur verið og verður rifjuð upp –
eins og hér í stuttum frásögnum af ólíku
lífshlaupi þeirra.
Þótt fólk kjósi ekki eiginkonu forseta
Bandaríkjanna, heldur þann frambjóð-
anda sem því líst betur á í embættið, er
næsta víst að mörg atkvæði og jafnvel úr-
slit kosninganna geta oltið á því hvernig
þær Cindy McCain og Michelle Obama
koma fyrir á næstu mánuðum
Eins og
dagur
og nótt
Þ
Michelle Obama
þykir hispurslaus til
orðs og æðis, op-
inská og með
ákveðnar skoðanir
og skopskyn.
Cindy McCain er
settleg, fremur al-
vörugefin og talar af
aðdáun um bónda
sinn taki hún til
máls á annað borð.
Reuters
Michelle Obama Eiginkonu Baracks Obama er æ oftar líkt við Eleanor Roosevelt (1884 - 1962), eiginkonu Franklins D.
Roosevelts, forseta Bandaríkjanna 1933 - 1945, en hún sagði skoðun sína umbúðalaust og hafði töluverð pólitísk áhrif.
Beiski eða betri
helmingurinn?
Í nýlegri Rasmussen skoðanakönnun kom í ljós að Michelle Obama féll ekki í kramið
hjá 42% kjósenda og 25% höfðu mikið á móti henni. 61% Bandaríkjamanna sögðu að
eiginkonur frambjóðenda hefðu áhrif á hver fengi atkvæði sitt.