Morgunblaðið - 06.07.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 06.07.2008, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Óbyggðirnar kalla! E kki eru allir hesta- menn á Landsmótinu. Sumir skipuleggja sín eigin landsmót og í þeim hópi eru bænd- ur á Snæfellsnesi sem ráðast í mánaðarhestaferð á hverju sumri. Lagt var upp frá Skógarströnd síð- asta laugardag. Upp úr hádegi klæðir fólk sig í reiðfötin, nema þeir alvönustu sem sýna ekki á sér nokkurt fararsnið. Það eru bændurnir sjálfir. Þeir bíða þar til aðrir eru tilbúnir. Og þá tilkynna þeir að ekki verði hald- ið af stað strax, þess í stað verði farið í næturstaðinn Árgil, matast þar og lagt af stað undir kvöld „til að ná fjörunum“. Tíminn skiptir engu máli í sveit- inni, að minnsta kosti ekki í hesta- ferðum, og það verður fólkið af mölinni að sætta sig við. „Það er enginn að flýta sér,“ segir einn og hreyfir sig hvergi. Annar bætir spaklega við: „Það lægir líka með kvöldinu.“ Bara æfingaratriði Til stendur að ríða á tveimur dögum frá Skógarströnd yfir Haukadalsskarð og í Hrútafjörð, þar sem ætlunin er að ná úrslita- leiknum á EM. Eftir að hafa borið föggurnar í Árgil, borðað nægju sína, spilað á spil, tekið í nefið, drukkið úr pela, ummað og æjað, þá er haldið aftur á Skógarströnd. Þá er járnað og svo fer einn af öðrum á bak. Auð- vitað er tekið aftur í nefið. Einn hnerrar. Þessi nýi. Blaðamaður er nefnilega ekki vanur hestamaður. Á meðan aðrir í ferðinni njóta þess að leika kúreka á hann fullt í fangi með að halda sér á baki. Jafnvel starfsmaður fjármálaráðuneytisins leikur sér á hestinum en er ekki leiksoppur hans. „Ég datt oft af baki til að byrja með, en svo hætti það,“ segir miðaldra maður, sem var í sveit á Götu í Hvolshreppi. – Hver er galdurinn, spyr blaða- maður vongóður um gáfulegt svar. „Þetta er bara æfingaratriði,“ svarar maðurinn. „Svo fer að verða svo leiðinlegt að detta af baki, að maður reynir að hætta því.“ Þá er bara að bera sig manna- lega. Þar til hið óhjákvæmilega gerist. „Er þetta ekki dálítið lítill hestur,“ spyr Diljá, sem búsett er í Noregi, og horfir sposk á svipinn á blaðamanni á „barnahestinum“. Haldið í tauminn Leikurinn æsist þegar nálgast fjöruna. Gjörðin á hnakknum slitn- ar undan „náttúrubarninu“ Mar- gréti Báru Geirsdóttur, frá Bjargi á Arnarstapa, sem kann betur við sig á hestbaki en eigin fótum. Hún ríður þá bara berbakt með hnakk- inn fyrir framan sig. Komma nefnist merin undir blaðamanni. Í fjörunni hyggst blaðamaður neyta færis, orðinn aftastur, stöðvar hestinn og ætlar að létta á sér. En sama hvernig hann snýr sér, alltaf nuddar Komma sér utan í hann og ýtir við honum. Þannig að enginn friður gefst til að pissa. Fer svo að blaðamaður gefst upp og gerir sig líklegan til að stíga á bak aftur. En þegar hann lyftir sér í ístaðinu æðir hesturinn af stað, farið að leiðast þófið. Og eftir ligg- ur blaðamaður í sandinum. Sleppir þó ekki taumnum. Og klöngrast á bak í annarri atrennu. Komma hendist óðar áfram en freistast til að stökkva yfir á annan slóða, sem liggur samhliða hinum, gleymir bara að láta blaðamann vita. Hann heldur sig því við gamla slóðann og hangir þar í lausu lofti. Enn heldur hann þó dauðahaldi í tauminn – eins og Þorgeir Hávarðsson í hvannanjólann. Fleiri detta í ferðinni, þó að allt sé það saklaust og aðeins til af- þreyingar og ánægjuauka. Þegar körfuboltamaðurinn rennur til í lausum hnakknum þá hlífir hest- urinn honum, hleypur að næstu brekku og leggur hann í hallann. „Óbyggðirnar kalla,“ byrjar Tryggvi Herbertsson að syngja, sem er stundum kallaður „banka- stjórinn“. Það eiga allir sín við- urnefni í ferðinni. Þannig er Geir Högnason frá Bjargi oftast nefnd- ur Geir „bóndi“, en einnig „andlegi leiðtoginn“ fyrir andrík ummæli sín við öll möguleg tækifæri. Þann- ig er hann aðgreindur frá „trúar- lega leiðtoganum“, sóknarprest- inum Guðjóni Skarphéðinssyni. „Óbyggðirnar kalla!“ Það gefur tóninn fyrir stemninguna. Enda rifjast upp er Tryggvi giftist Sig- urveigu Maríu Ingvadóttur í miðri hestaferð. Þá var „trúarlegi leið- toginn“ með í för en fór heim til að sjá um jarðarför og kom aftur með giftingarvottorðin. Bankastjórinn hafði lengi talað um að gifta sig og var prestinum farið að leiðast þóf- ið. Síðar um daginn var banka- stjórinn kominn á skeljarnar. Brúðkaupið fór fram í kirkjunni á Þingeyrum á sólríkum degi, þar sem gestirnir voru í reiðbuxum og „hálfrakir“. Stelpurnar tíndu krónublöð og stráðu yfir brúð- hjónin, sóttur var járnsmiður til að gera hringa úr armböndum brúð- arinnar, skálað var í kampavíni sem fannst fyrir tilviljun og á borðum var reyktur rauðmagi. Eft- Sæla Tryggvi Þór Herbertsson við brúna yfir Miðá. Puð Renata Sigurbergsdóttir sér um hnakkinn við bæinn Kringlu. Beygja Víðir Þór Herbertsson fer fyrir hópinn við Skógarströnd. Morgunblaðið/Pétur Blöndal Vegurinn Og leiðin liggur í Vatnsdalinn. Enginn er að flýta sér því tíminn skiptir engu máli í sveitinni, að minnsta kosti ekki í hestaferðum. Girðing Hestarnir kynnast ýmsum girðingum um allt land. Nú stendur yfir árleg hestaferð bænda frá vest- anverðu Snæfellsnesi og lýkur henni um miðjan júlí. Förinni er í þetta sinn heitið í Vatnsdalinn á æskuslóðir Guðjóns Skarp- héðinssonar, sóknarprests á Staðarstað. Pétur Blön- dal slóst í för með hesta- mönnunum um síðustu helgi. » Bankastjórinn hafði lengi talað um að gifta sig og var prest- inum farið að leiðast þófið. Síðar um daginn var bankastjórinn kom- inn á skeljarnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.