Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 33
(44.776 tonn) í fyrra, þá er þetta mjög dýr úrgangur að meðhöndla og farga á viðeigandi hátt. Og magnið á eftir að aukast næstu árin. Að auki er eitthvað um að fólk gefi raftæki í gáma Góða hirðisins; þau tæki eru yfirfarin og síðan seld séu þau nothæf. Hins vegar er bannað að hirða úr gámum á endur- vinnslustöðvunum, raftæki sem og annan úrgang. Björn segir að með gildistöku nýju laganna um „framleiðendaá- byrgð“ á raftækjum frá og með næstu áramótum muni hluti kostn- aðar af þessum úrgangi færast af herðum sveitarfélaganna yfir til neytenda, sem kaupa vöruna. Sú leið sem valin var, er þó ekki fyllilega að skapi sveitarfélaganna, sem telja allt eins hagkvæmt og mun einfaldara í framkvæmd að fela Úrvinnslusjóði framkvæmdina. Guðjón Bragason, sviðsstjóri lög- fræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að endurskoðun Evróputilskipunarinnar standi fyrir dyrum. Ætlunin með henni er að freista þess að samræma hlutina og hafa Samtök evrópskra sveitarfé- laga (CEMR) gagnrýnt hve innleið- ing tilskipunarinnar hefur verið sundurleit á EES-svæðinu, segja megi að hún hafi hvergi verið inn- leidd á sama máta. „Tilskipunin um raftækjaúrgang er fyrsta Evróputil- skipunin, sem kveður á um fram- leiðendaábyrgð, og þetta er heitt mál í Evrópu. Við hefðum talið ein- faldast að fela Úrvinnslusjóði fram- kvæmdina meðan endurskoðunin fer fram, þótt sambandið sé sam- mála því meginmarkmiði frum- varpsins að komið verði á kerf- isbundinni meðhöndlun raftækjaúrgangs fyrir allt landið. Nánast öll raftæki sem seld eru hér á landi eru innflutt. Sú framleið- endaábyrgð sem nú hefur verið inn- leidd hér á landi mun því ekki hafa áhrif á þróun í framleiðslu raftækja, en sú getur hins vegar hæglega orð- ið raunin innan alls EES-svæðisins ef vel tekst til við endurskoðun til- skipunarinnar.“ Pétur Reimarsson hjá Samtökum atvinnulífsins segir að undirbún- ingur að skilakerfi fyrirtækjanna hafi hafizt fyrir nokkru og er stefn- an sett á stofnun undirbúnings- félags í sumar og formlega fé- lagsstofnun í haust. „Við erum almennt séð sáttir við það að sá sem veldur mengun greiði fyrir það og teljum að framleiðenda- ábyrgðin sé sanngjörn að því leyt- inu og eðlilegt að þeir sjái sem mest um þessa hluti sjálfir. Einnig hvetur ábyrgðin framleiðendur til að leita leiða til þess að breyta framleiðslu sinni til aukinnar endurnýtingar og endurnotkunar úrgangs.“ Pétur segir þetta verða töluverð- an kostnað, sem lendir á neytand- anum, en vildi hvorki segja af eða á um það, hvort það kosti að meðaltali um 3-5% af smásöluverði vöru að meðhöndla úrganginn sem af henni stafar. Hann bendir hins vegar á, að söfnun hér verði erfiðari en annars staðar vegna dreifbýlis og flutnings- kostnaðar. Pétur segir menn telja að magn raftækjaúrgangs verði töluvert: 3– 4000 tonn á ári sem kannski breytt- ist eitthvað þegar flatskjárvæðingin er gengin yfir. Svo er það talsvert mál að taka stór raftæki í sundur og hirða það sem nýtilegt er í brota- járn. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 33 Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur vjon@mbl.is S umir stynja þegar síminn hringir um kvöldmat- arleytið enda allt eins líklegt að á línunni séu útsendarar Gallups sem vilja vita skoðanir manna á öllu milli himins og jarðar. Svo eru aðr- ir, sem eru í essinu sínu, þegar þeir fá tækifæri til að segja sína mein- ingu og gildir þá einu hvort spurt er um gæði bíls eða borgarstjóra. Ertu ánægð/ur með hann? Óánægð/ur? Hvorki né? – eru dæmi um framsetningu spurninganna. Útfærslan er þó oft ýtarlegri, enda liggja flóknar pælingar og reikn- ingskúnstir að baki niðurstöðum marktækra kannana. Slíkar aðferðir gat George Ho- race Gallup sér frægð fyrir á fjórða áratug liðinnar aldar. Þær gengu í stórum dráttum út á að skoð- anakönnuðir töluðu í eigin persónu við úrtak fólks úr öllum stéttum, af öllum kynþáttum og trúarbrögðum. Gallup taldi að með þessum hætti spegluðu færri fremur en fleiri bet- ur þjóðarsálina ásamt vel ígrund- uðum spurningum og hnitmiðaðri spurningatækni. Að því best er vitað gerði Gallup fyrstu vísindalegu skoðanakönn- unina á vettvangi stjórnmálanna þegar tengdamóðir hans bauð sig fram sem innanríkisráðherra í Iowa 1932. Eflaust hefur hann fengið nokkur prik frá tengda- mömmunni, því hún varð fyrst kvenna til að gegna embættinu í Bandaríkjunum og spá tengdason- arins um úrslitin skeikaði aðeins um 1%. Gallup vakti sérstaka athygli þegar hann spáði að Franklin Roosevelt sigraði Alfred Landon, ríkisstjóra Kansas, í forsetakosn- ingunum 1936, þvert á spá tímarits- ins The Literary Digest, sem þá þótti marktækust, um stórsigur þess síðarnefnda. Niðurstöðurnar byggði Gallup á svörum fimm þús- und manns, en tímaritið á meira en tveimur milljónum. Spurðu og efastu um allt Gallup nam stjórnmálavísindi við háskólannn í Iowa, lauk BA 1923, meistaraprófi 1925 og var á náms- árunum ritstjóri skólablaðsins, The Daily Iowan. Í það skrifaði hann þessi fleygu orð: „Efastu um allt. Spurðu um allt. Vertu róttækur.“ Doktorsnafnbótina fékk hann svo árið 1928 fyrir ritgerð um tækni til að mæla á hlutlausan hátt áhuga lesenda á efni dagblaða. Samhliða námi og ári betur kenndi hann blaðamennsku og sálfræði við skól- ann. Þá flutti hann sig um set innan heimaríkis síns til að stýra blaða- mannadeildinni við Drake- háskólann áður en leiðin lá í Nort- hwestern-háskólann í Illinois þar sem hann fékk prófessorsstöðu í blaðamennsku og auglýsingum. Á þessum árum kannaði hann rannsóknaraðferðir á ýmsum svið- um, beitti svokallaðri „lestrar og eftirtektar“ tækni á lesendahópa dagblaða og gerði fyrstu könnun sinnar tegundar í Bandaríkjunum á því hvaða auglýsingar í tímaritum vektu mesta athygli. Þá var ekki langt í að Gallup gengi auglýsingabransanum á hönd og 1932 réð hann sig sem yfirmann markaðs- og rannsóknarstofu aug- lýsingastofunnar Young & Rebi- cam í New York þar sem hann var jafnframt prófessor í blaða- mennsku við Columbia-háskólann. Áhuginn beindist áfram að rann- sóknum á prentmiðlum en líka út- varpi og á Gallup heiðurinn af að hafa í fyrsta skipti mælt útvarps- hlustun á landsvísu með aðferð, sem hann þróaði og byggði á tilvilj- anakenndu úrtaki. En hlustun er eitt og áhrif annað og því fann Gall- up upp aðferð til að mæla hversu minnugir notendur væru um það sem fyrir eyru og augu bar. Sú að- ferð er ennþá notuð til að mæla ár- angur af sjónvarps- og blaða- auglýsingum. Framlag til þróunar lýðræðis Þótt Gallup starfaði hjá auglýs- ingastofunni í 16 ár setti hann 1935 á laggirnar stofnun, sem seinna varð Gallup-stofnunin. Smám sam- an fjölgaði þeim í Bandaríkjunum sem og víða um heim og voru settar undir einn hatt 1958. Markmið þeirra var og er að kanna skoðanir almennings á sem flestum þáttum samfélagsins; pólitískum, fé- lagslegum og efnahagslegum með tilliti jafnt til ótta fólks sem vænt- inga. Fátt er Gallup óviðkomandi því mælingarnar ná til tómstundaiðju fólks, siðferðis, háttsemi og trúar- skoðana svo fátt eitt sé talið. Nið- urstöður skoðanakannana eru líka oft markvisst gerðar í þágu mark- aðarins. Notar þú þvottalöginn frá X? Oft? Sjaldan? Aldrei? Þótt fjárhagsleg velgengni Gall- ups byggðist á markaðsrann- sóknum, lagði hann mikla áherslu á að kanna pólitískar skoðanir fólks. Hann leit svo á að skoðanakannanir væru til margs nytsamlegar og mikilvægt framlag í þróun lýðræð- isins. Öfugt við marga taldi hann viðhorf almennings ekki stjórnast af tilfinningum, en var þó á því að fólk íhugaði málin ekki nógu vel, þótt heildarniðurstaðan væri yf- irleitt bæði skynsamleg og rökræn. Feill og frægð Fréttatímaritið Time hampaði George H. Gallup á forsíðu í maí 1948, en þá höfðu honum hlotnast ýmsar vegtyllur. Síðar sama ár varð stofnun hans þó á í messunni þegar þegar hún spáði að Thomas Dewey sigraði Harry S. Truman í forsetakosningunum 1948 með 5 til 15% yfirburðum. Gallup skýrði mistökin með því að könnunin hefði verið gerð of snemma. „Skoð- anakannanir eru bara tæki til að mæla almenningsálitið. Um leið og forseti eða aðrir leiðtogar gefa nið- urstöðunum gaum vita þeir vilja fólksins. Önnur túlkun er tóm vit- leysa,“ sagði Gallup. Þetta skildu æðstu herrar kvik- myndaveranna í Hollywood mæta- vel, en fyrir þá, t.d. Walt Disney og Samuel Goldwyn, starfaði Gallup mestan part fimmta áratugarins. Hann kannaði ýmsa þætti, svo sem hvort og hvernig hugmynd að sögu- þræði í bíómynd höfðaði til fólks, hverju kvikmyndastjörnur skiluðu í kassann og hversu mikið kæmi í sama kassa miðað við móttökur á forsýningum. Eitt verkefna hans var að samræma kannanir á kvik- myndinni The Best Years of Our Lives frá 1946, sem vann átta Ósk- ara og er mest rannsakaða mynd kvikmyndasögunnar. Sonur Gallups og alnafni hefur upplýst að faðir hans hafi aðeins einu sinni kosið í forsetakosningum þegar hann árið 1928 greiddi demó- kratanum Alfred Emanuel Smith atkvæði sitt. Annars mun hann hafa tekið afstöðu eftir málefnum en ekki mönnum og flokkum. Merkir menn Af verkum Gallups að dæma var hann hinn merkasti maður. Ekki þó meðal 18 aðdáunarverðustu manna síðustu aldar miðað við Gallup- könnun frá 1999 í Bandaríkjunum: 1. Móðir Teresa 2. Martin Luther King 3. John F. Kennedy 4. Albert Einstein 5. Helen Keller 6. Franklin D. Roosevelt 7. Billy Graham 8. Jóhannes Páll páfi II 9. Eleanor Roosevelt 10. Winston Churchill 11. Dwight Eisenhower 12. Jaqueline Kennedy Onassis 13. Mahatma Gandhi 14. Nelson Mandela 15. Ronald Reagan 16. Henry Ford 17. Bill Clinton 18. Margaret Thatcher Þjóðarsálin svarar fyrir sig Kannanir Gallup ásamt samstarfsmanni sínum, Edward Benson, skoða nið- urstöður skoðanakönnunar árið 1941. Frægur Fréttatímaritið Time hampaði George Gallup á forsíðu í maí 1948. Í HNOTSKURN » Georg Horace Gallupfæddist í Jefferson, Iowa, 8. nóvember 1901. » Hann ólst upp og vann áunglingsárunum á mjólk- urbúi foreldra sinna. » Árið 1925 kvæntist hannOpheliu Smith Miller. Þau eignuðust dóttur og tvo syni » Annar sonurinn, alnafniföður síns, fetaði í fótspor hans og starfar hjá Gallup- stofnuninni í Princeton, New Jersey. » Gallup lést af hjartaslagi ísumarhúsi sínu í Sviss 1984. Hver var Gallup? Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.