Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 34

Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 34
34 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ V ið hjónin bjuggum í London í 6 ár við nám og störf. Að námi loknu gátum við ekki hugsað okkur að flytja heim strax, enda er borgin yndisleg. Ég fékk vinnu hjá bresku fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðmótsprófunum og aðgengi fatlaðra að netinu. Við vor- um fjögur í byrjun en síðan hefur fyrirtækið sáð sér í fjórum löndum í þremur heimsálfum og ég er ennþá ráðgjafi hjá því.“ Sigrún öðlaðist mikla reynslu í London. Það er ólíkt að vinna á Ís- landi eða í 8 milljón manna borg þar sem hraðinn skiptir öllu. „Árið 2004 komst ég í kynni við SJÁ viðmóts- prófanir og þessar frábæru konur veittu mér tækifæri til að breiða út boðskapinn um bætt aðgengi að net- inu, enda voru þær þá þegar farnar að huga að þessum málum. Leiðir okkar lágu því saman á réttum tíma.“ Sigrún segir að fyrsta árið hafi verið svolítið sérstakt því að mjög fá- ir höfðu heyrt um hvað aðgengi að netinu snerist. „Það er ekki auðvelt að útskýra við hvað maður starfar þegar maður er sú eina á landinu með starfsheitið sérfræðingur í að- gengi fatlaðra að netinu. Oft hef ég sagt að ég brúi bilið á milli fatlaðs fólks og forritara og vefhönnuða – ég tala tungumál allra og miðla því sem þarf að komast til skila. Nytsem- issérfræðingar SJÁ gera nákvæm- lega hið sama nema hvað þeir hafa ekki fatlaða einstaklinga í forgrunni heldur alla hina notendurna. Að- gengi er svo einn angi af starfinu og ég sinni honum.“ Íslenskir stjórnendur jákvæðari Sigrún hefur unnið sem ráðgjafi hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum heims svo sem Dell, Virgin, Reuters, Mercedes Benz, London Stock Exc- hange, Hilton o.fl. „Hugarfarið í Bretlandi og víðar er þannig að menn skrifa undir samning við fyr- irtæki um úttekt á aðgengi vefsíðna. Síðan gerist ekkert meira. Með því að sýna fram á að verið sé að huga að þessum málum komast stjórnend- urnir hjá lögsókn síðar meir. Viðhorfið sem ég hef oft mætt á fundum erlendis þar sem menn sitja í 100 þúsund króna jakkafötum í 100 þúsund króna stólum í skrifstofum sem kosta milljarða er: Við ætlum reyndar ekki að huga að blindum eða öðrum fötluðum sérstaklega, ætlum heldur að nota peningana í annað. En við viljum samt forðast lögsókn. Þá langar mig að öskra. Ekki er þetta einungis ósiðleg hugsun heldur afskaplega heimskuleg því að að- gengilegur vefur er alltaf not- endavænn og skilar meiri tekjum. Hann er sýnilegri í leitarvélum sem er mörgum afar mikilvægt. Þessu viðhorfi hef ég aldrei nokk- urn tíma mætt á Íslandi. Hér spyrja flestir hvernig þeir geti komið til móts við þarfir allra.“ Lögsókn ber árangur Árið 1995 voru sett lög í Bretlandi um aðgengi (DDA Act). Þar er skýrt kveðið á um bann gegn hvers konar mismunun vegna fötlunar fólks. Ákvæðin um upplýsingastefnu stjórnvalda þóttu svo óljós að fjórum árum síðar voru samþykkt sérstök ákvæði um opinberar heimasíður sem skulu vera aðgengilegar öllum notendum (herinn er undanþeginn þessum ákvæðum). Nokkur mál hafa risið án þess að dómar hafi verið kveðnir upp, því að sátt hefur náðst og réttur fatlaðra til upplýsinga á netinu jafnan verið virtur. Í Bandaríkjunum og víðar hafa dómar fallið í málum vegna óað- gengilegra heimasíðna. Ferðaskrif- stofur og fleiri fyrirtæki hafa þurft að greiða skaðabætur og endurbæta heimasíður sínar. Fræg urðu mála- ferlin vegna óaðgengilegrar heima- síðu Ólympíuleikanna í Sidney árið 2000, en í kjölfar þeirra var miðasölu leikanna á Netinu breytt. Sigrún segir að innan Evrópusam- bandsins sé talið að 10-15% íbúa geti ekki vegna fötlunar nýtt sér heima- síður. „Höfum í huga að fatlað fólk og aldrað græðir e.t.v. einna mest á aðgengilegum vefsíðum. Fólk getur sótt sér alls konar þjónustu á netið. Fyrirtækin sjá sér nú leik á borði og höfða í æ ríkara mæli til þessa hóps. Óaðgengileg vefsíða þýðir töpuð við- skipti alveg sama hvernig á það er litið.“ Fyrsta flokks vefarar Sigrún segir íslenska vefhönnuði standa sig ótrúlega vel við gerð að- gengilegra heimasíðna. „En alltaf má gera betur. Við eig- um forritara á heimsmælikvarða, mörg fyrsta flokks umsjónarkerfi og við berum af nágrannaþjóðunum. Árið 2005 gerðu SJÁ og forsæt- isráðuneytið úttekt á nytsemi, að- gengi og innihaldi um 250 opinberra vefsvæða á Íslandi. Aðgengi var víð- ast hvar mjög ábótavant. Tveimur árum síðar voru sömu at- riði könnuð. Ástandið hafði stór- batnað og fengu þá 15 vefsvæði fullt hús stiga fyrir aðgengi. Þetta er gríðarlega góður árangur og hvetur okkur hjá SJÁ til að halda þessu starfi áfram.“ SJÁ viðmótsprófanir hefur á und- anförnum árum vottað heimasíður stofnana og fyrirtækja í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands. Farið er eftir sérstökum gátlista sem gerð- ur var eftir samráð við fólk úr ólíkum hópum fatlaðra. Er þar miðað við viðurkennda alþjóðastaðla um að- gengi vefsíðna. „Við gerum strangari kröfur um nokkra þætti en hin Norðurlöndin. Má þar nefna hönnun í þágu les- blindra, heyrnarskertra og þroska- heftra notenda. Við erum eina landið í heiminum þar sem krafist er að- gengis allra þessara hópa, ef menn vilja fá vottun fyrir forgang 3. Marg- ir halda t.d. að heyrnarlausir geti lesið hvaða texta sem er. Táknmálið er móðurmál þeirra á sama hátt og Pólverjar eiga pólsku að móðurmáli. Við krefjumst þess einnig að í for- gangi 1 sé ákveðin þjónusta í boði handa lesblindu fólki.“ Engin lög um netaðgengi Sigrún segir að hver sem er geti opnað vefsíðu hér á landi sem sé svo óaðgengileg að allt að 20% lands- manna geti ekki skoðað hana – ekki einungis fatlað fólk heldur óvanir notendur eða notendur með hæga nettengingu. „Það sem er svo sérstakt hér er að til okkar hjá SJÁ leita fyrirtæki og stofnanir sem vilja gera vel, hafa gríðarlegan metnað og skilja að þetta þarf að vera í lagi. Ég vil í þessu samhengi nefna Veðurstofu Íslands, Framkvæmdasýslu ríkisins og Tryggingamiðstöðina. Veð- urstofan er einn mikilvægasti upp- lýsingavefur landsins og aðgengileg- ur langflestum notendum. Lagt var upp með þá skýru stefnu frá upphafi, að allir landsmenn ættu að hafa að- gang að upplýsingum sem þar er að finna. Tryggingamiðstöðin er sú vefsíða sem lengst er kominn í aðgeng- ismálum. Hugað er að öllum not- endum, ekki bara fötluðum. Vefsíðan er einföld í notkun og notendavæn líka. Þannig á góð vefsíða að vera. Við ráðleggjum ekki neinum að breyta vefsíðu í ljóta textasíðu sem enginn hefur gaman af. Vefsíðan á að vera falleg, notendavæn og virka fyrir alla notendur, fatlaða sem ófatlaða og klaufana líka. Það er í stuttu máli gríðarlegur metnaður sem rekur Íslendinga áfram og þeir velta hvorki fyrir sér refsingum né löggjöf eins og Bretar og fleiri gera.“ Stjórnarráðið til fyrirmyndar Sigrún segir að heimasíður ráðu- neyta séu til fyrirmyndar þótt annað gildi um ýmsar stofnanir sem heyra undir þau. Viljinn sé oftast fyrir hendi en iðulega þurfi meiri þekk- ingu innan stofnana og fyrirtækja. Þegar Sigrún er beðin að spá fram í tímann segist hún halda að ýmsar breytingar á netinu orki tvímælis. „Sumar vefsíður eru of flóknar og alltaf verða einhverjir sem finnst hallærislegt að huga að aðgengi. Ég held þó að á næstu árum verði vef- umsjónarkerfi öll með betra inn- byggðu aðgengi sem og vafrarnir. Í náinni framtíð verður líka farið að huga að aðgengi innri vefsvæða fyr- irtækja og stofnana. Í Bandaríkjunum er í lögum að fyrirtæki með ákveðinn fjölda starfs- manna verði að huga að aðgengi innri vefja. Allir starfsmenn eiga samkvæmt þessum lögum að hafa jafnan aðgang til að geta sinnt starfi sínu. Enn sem komið er hefur þetta ekki einu sinni verið orðað hér á landi. Ég tel einnig að stjórnendur fyr- irtækja og umsjónarmenn vefsíðna muni loksins skilja hversu miklar tekjur fara forgörðum ef heimasíður eru hvorki aðgengilegar né með heppilegu viðmóti. Í heiminum eru um 700 milljónir fólks með ýmiss konar fötlun. Við viljum selja vöru og þjónustu út um allan heim. Með því að höfða til sem flestra með aðgengilegri hönnun heimasíðna náum við bestum ár- angri.“ Brúarsmiður á netinu Morgunblaðið/G.Rúnar Sigrún Þorsteinsdóttir „Allir eiga jafnan rétt á upplýsingum á Netinu.“ Sigrún Þorsteinsdóttir hefur unnið að bættu aðgengi fatlaðra að netinu um nokkurra ára skeið. Hún er með próf í grafík frá MHÍ og sálfræði frá Háskóla Ís- lands og meistarapróf frá Háskólanum í Westminster í hönnun fyrir gagnvirka fjölmiðla. Arnþór Helgason leitaði hana uppi. Í HNOTSKURN »Vefnotendur hafa mismikla reynslu í notkun netsins og því ermikilvægt að uppbygging vefja og framsetning þeirra sé skýr og einföld. »Talið er að allt að 10% Evrópubúa séu fatlaðir og ætla má að veru-legur hluti þeirra þarfnist sérstakrar aðstoðar eða hjálpartækja til að nýta sér vefinn. »Árið 1990 var hlutfall þeirra sem eru eldri en 60 ára um 18% og ergert ráð fyrir að árið 2030 verði hlutfallið komið upp í 30% af íbúafjölda. »Við gerð vefsíðna þarf að gæta þess að unnt sé að skoða þær þóttmismunandi tækni sé beitt. »Ganga þarf úr skugga um að allar síður séu skýrar og einfaldarsvo auðvelt sé að átta sig á uppbyggingu þeirra. »Skýrt og einfalt málfar sem um leið hæfir viðkomandi vef er lík-legra til að ná til notenda sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að skilja flókinn texta. »Þeir sem nota táknmál eiga einnig auðveldara með og eru fljótariað túlka það sem textinn segir ef hann er hnitmiðaður og skýr. Undirnefnd Bandaríkjaþings, sem fjallar um fjarskipti og internetið, fundaði í maí sl. Efni fundarins voru drög að nýju frum- varpi til laga um „Aðgengi að fjarskiptum og myndefni 21. aldar“. Ýmis samtök fatlaðra komu að samningu frumvarpsins til þess að tryggja að hvers konar samskiptatæki verði aðgengileg öll- um hópum notenda. Árið 1996 setti Bandaríkjaþing lög sem skylda framleiðendur símtækja til þess að gera þau aðgengileg öllum notendum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að hertar verði kröfur um aðgengi að netinu, hljóð- rásir með sjónvarpsefni, aðgengilegar fjar- stýringar og valmyndir. Einnig verða ákvæði um aðgengilegan fjarskiptabúnað fyrir heyrnarlaust og daufblint fólk. Á fundinum skiptust menn á skoðunum um notagildi nýrrar tækni og þær hömlur sem hún getur lagt á fjölmenna hópa fólks í samfélaginu, sé ekkert að gert. Jesse Acosta, yfirliðþjálfi, sem missti sjónina í Íraksstríðinu, fræddi nefndina um vand- ræði sín vegna Blackberry-símanna sem eru algerlega ónothæfir blindu fólki. Tóku ýmsir nefndarmanna undir sjónarmið hans um nauðsyn þess að hyggja að notagildi slíkra tækja fyrir alla hópa fólks. Netríkið Ísland Forsætisráðherra kynnti í maí sl. stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsinga- samfélagið fyrir árin 2008 til 2012 undir kjörorðinu Netríkið Ísland. Heitið vísar til þess að alla opinbera þjónustu verði hægt að nálgast á netinu eftir því sem við á. Þá vinni ríkið sem ein heild eða eitt sam- hæft net en slík samhæfing er lykilatriði til að bæta megi opinbera þjónustu, auka skil- virkni og stuðla að öflugri framþróun. Stefnt er að því að gæði opinberrar þjón- ustu á netinu verði aukin með því að miða hana við þarfir og ávinning netborgarans. Hugað verði að aðgengi og þörfum allra samfélagshópa, svo sem fatlaðra, innflytj- enda, þeirra sem búa í dreifbýli, erlendra viðskiptaaðila, eldri borgara og yngstu borgaranna. Íslendingar hafa ekki sett sérstök lög um aðgengi allra að netinu og engar reglur eru um innkaup opinberra stofnana á hug- búnaði sem hægt er að laga að þörfum allra. Slík lög og reglur hafa verið í gildi í Bandaríkjunum og Bretlandi um nokkurt skeið. Aðgengileg tækni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.