Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is
Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i
Erum með til leigu glæsilegt skrifstofu-, verslunar - og þjón-
ustuhúsnæði að Reykjavíkurvegi 74. Um er að ræða þrjár
hæðir í húsinu sem leigjast út í hlutum. Til greina kemur að
leigja húsið í einu lagi. Húsnæðið hefur allt verið endurnýj-
að að innan og klætt með fallegri klæðningu að utan. Gólf-
efni og innréttingar eru vandaðar, svo og allt lagnakerfi og
loftræsting. Góð aðkoma og gott auglýsingagildi.
Stærðir á þeim rýmum sem um ræðir eru:
Kjal lari: 365,6 m2 Gólfefni er málning.
Jarðhæð: 661,6 m2 Gólfefni er flísar.
2. hæð: 475,8 m2 Gólfefni er parket.
3. hæð: 457,8 m2 Gólfefni er parket.
Til leigu - Hafnarfirði
REYKJAVÍKURVEGUR 74
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Sími 533 4800
90 % FJÁRMÖGNUN FRÁ SELJANDA. Glæsileg 125,2 fm 4ra herbergja neðri sérhæð í fallega
hönnuðu tvíbýli. Eigninni er skilað tilbúinni undir innréttingar, án spörslunar og málunar.
MEÐ Í KAUPUNUM FYLGIR STÓR VERÖND MEÐ SKJÓLVEGG AÐ ANDVIRÐI 500.000-kr.
Skipti koma til greina á góðri minni eign. V. 30,9 millj.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
LINDARVAÐ
Í einkasölu glæsilegt 260 fm. hús fyrir neðan götu rétt við Grasagarðinn.
Glæsilegt útsýni vestur á Jökul og víðar. Sér 2ja herb. íbúð á neðri hæð.
Innbyggður bílskúr. Eign í sérflokki.
Upplýsingar veitir Bárður Tryggvason sölustjóri í S. 896 5221.
Laugardalurinn
glæsilegt hús
Óskum eftir einbýlis eða parhúsi í Kópavogi í skiptum fyrir 130 fm. íbúð á
miðhæð ásamt 30 fm. bílskúr á einstökum stað í Lindahverfi.
Sérinng. er í íbúðina.
Upplýsingar veitir Bárður í S. 896 5221.
Óskum eftir einbýlishúsum/par eða
raðhúsum á söluskrá, fagljósmyndari
tekur myndir.
Hafið samband:
Bárður Tryggvason S. 896 5221
Einbýlis eða parhús í Kópavogi
í skiptum
ALVEG er einka-
væðing Ríkisútvarps-
ins dæmigerð. Skrefin
eru kunn. Fyrst er
stofnunin svelt fjár-
hagslega. Reynt að
koma á upplausn og
óánægju meðal starfs-
manna. Talsmenn
stjórnvalda reyna að
telja almenningi trú
um að Ríkisútvarpið sé
baggi á þjóðinni. Af-
notagjöldin eru tor-
tryggð, alið á óvild og
reynt að sverta stofn-
unina. Þessu hefur rík-
isstjórn Sjálfstæð-
isflokksins stýrt, fyrst í
samvinnu við Fram-
sókn og nú með ráð-
herraliði Samfylking-
arinnar.
Einkavæðingin er
keyrð í gengum Al-
þingi. Ráðnir eru nýir stjórnendur.
„Í takt við nýja tíma“ eru laun og
starfskjör framkvæmdastjóra og
annarra æðstu stjórnenda ekki gefin
upp. Stofnunin er síðan einkavædd
enn frekar innan frá, holuð að innan
með útboðum og útvistun verkefna.
Allt hefur þetta gengið eftir hjá
ríkisstjórninni og nýj-
um stjórnendum Rík-
isútvarpsins.
Eftir að þjónustu-
samningur mennta-
málaráðherra og Rík-
isútvarpsins hefur
verið brotinn og fjár-
framlög til útvarpsins
svikin er opnað fyrir
beinan niðurskurð á
starfseminni. Og hvar
er borið fyrst niður?
Jú, auðvitað á starf-
semi og þjónustu Rík-
isútvarpsins á lands-
byggðinni.
Nákvæmlega það
sama gerðist við einka-
væðingu og sölu Sím-
ans: Starfsstöðvum á
landsbyggðinni var
fyrst lokað og þjón-
ustan skorin niður. Svo
virðist sem verið sé að
keyra Ríkisútvarpið
inn í nákvæmlega sama
feril og Landssímann.
Það var á sínum tíma
metnaðarmál að byggja upp og
styrkja starfsemi Ríkisútvarpsins á
landsbyggðinni. Gott ef það var ekki
einmitt Alþingi sem tók ákvörðun
eða a.m.k hvatti til stofnunar svæð-
isútvarps og eflingar starfstöðva út
um land.
Nú boða stjórnendur Ríkiútvarps-
ins niðurskurð í rekstri og fækkun
starfsmanna á svæðisstöðvunum á
Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Stjórn Ríkisútvarpsins, skipuð að
meirihluta fulltrúum Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar, hefur sam-
þykkt þennan niðurskurð fyrir sitt
leyti. Einungis fulltrúi Vinstri
grænna í stjórn Útvarpsins, Svan-
hildur Kaaber, mótmælti þessum
niðurskurði harðlega.
Hvar er Samfylkingin?
Landsmenn þekkja þá stefnu
Sjálfstæðisflokksins að vilja eyði-
leggja Ríkisútvarpið, einkavæða og
selja. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa ítrekað flutt frumvarp um það á
Alþingi. Um það var tekist á síðasta
kjörtímabili. Þá stóðu þingmenn
Vinstri grænna og Samfylkingar
saman og vörðu útvarp allra landa-
manna og því var bjargað í horn.
Nú þegar verið er að skera starf-
semi útvarpsins niður og gera því
ómögulegt að standa við skyldur sín-
ar sem öflug þjónustustofnun allra
landsmanna hljóta menn að spyrja
ýmissa spurninga:
- Hvar eru ráðherrar Samfylking-
arinnar? Eru þarna enn ein kosn-
ingaloforð Samfylkingarinnar farin í
vaskinn?
- Hvar er stefna ríkisstjórnarinnar
um fjölgun starfa á landsbyggðinni?
- Hafa þingflokkar stjórnarflokk-
anna samþykkt þennan niðurskurð á
starfsemi Ríkisútvarpsins?
Þannig mætti áfram spyrja. En á
meðan er Ríkisútvarpið molað og
landsbyggðin látin blæða fyrst.
Ríkisútvarpið á braut
einkavæðingar
Jón Bjarnason
skrifar um
Ríkisútvarpið
Jón Bjarnason
» Og hvar er
borið fyrst
niður? Jú, auð-
vitað á starf-
semi og þjón-
ustu
Ríkisútvarpsins
á landsbyggð-
inni.
Höfundur er þingmaður
Vinstri grænna.
Í SEPTEMBER
þegar þing kemur
saman mun ég beita
mér fyrir því að lagt
verði fram á Alþingi
lagafrumvarp um
breytingar á þeim fá-
ránlegu lögum sem
hafa flotið inn í ís-
lenska lagasafnið, eins
og reyndar margt annað gruggugt,
og snýr að því að menn sem hafa
hlotið skilorðsbundna sakfellingu
verði að víkja úr stjórnum fyr-
irtækja svo árum skiptir. Þetta eru
vitlaus lög og heimskuleg og því þarf
að spúla dekkið strax. Stjórnvöld
þessa lands hljóta að hafa vilja og
metnað til þess að hreinsa út skíta-
blettina í réttarkerfinu, ekki síst
þegar það kemur mönnum í rauninni
á óvart að þetta ákvæði skuli vera til
í reynd í íslenska rétt-
arkerfinu, kerfi sem
hangir á horriminni.
Hvað með alla þá sem
hafa hlotið skilorðs-
bundna dóma vegna
þess að hafa ekið undir
áhrifum áfengis, ýmissa
smærri mistaka og yf-
irsjóna. Engum hefur
hingað til dottið í hug
að elta ólar við það og
krefjast þess að at-
hafnamönnum sé hent
út úr stjórnum fyr-
irtækja af þessum sökum. En fjöl-
miðlarnir eru iðnir við kolann og allt
í einu er dregin upp túlkun sem eng-
inn hefur haft áhuga á hingað til.
Valdníðslan og ofsóknirnar á hendur
Baugsmönnum hafa verið slíkar að
með ólíkindum er. Sá er þetta skrif-
ar hefur kannski betri skilning á
þessari lensku réttarkerfisins en
margur annar. Hæstiréttur hefur
síðasta orðið á túlkun laganna, en
það er engin trygging fyrir því að
hann beri réttlætinu vitni, eins og
mörg dæmi sanna.
Sumt liggur á milli mála þótt vit-
laust sé í okkar leikreglum vegna
þess að það reynir ekki á það og það
skiptir ekki máli. Hugsanasnauðu
smámennin, úrtölumennirnir og
valdbeitingarliðið á ekki langa ævi
af lífsgleði, en þeir sem hafa þrek og
þor og láta hendur standa fram úr
ermum ná að minnsta kosti 200 ár-
um miðað við hina.
En þegar hver handvömmin rek-
ur aðra í réttarkerfinu, brjál-
æðislegar ofsóknir rannsóknarlög-
reglu, endalaus málaflækja árum
saman, þrjóska og skáldskap-
artilþrif opinberra rannsóknarlög-
reglumanna og lögmanna sem hefur
valdið kvöl og pínu fyrir fjölda ein-
staklinga að ófyrirsynju, þá er það
ekki aðeins nauðsyn að bregðast við,
heldur brýn nauðsyn. Það hefur
ekkert farið á milli mála að stór hluti
af lögum í réttarkerfi landsins hefur
snúist upp í andhverfu sína og virð-
ist miklu fremur til þess gerður að
skapa lögfræðingum atvinnu í stað
þess að hafa í hávegum réttaröryggi
og réttvísi fyrir borgara okkar
lands.
Það er ótrúlegt að Hæstiréttur Ís-
lands skyldi ekki láta forsvarsmenn
Baugs njóta vafans þegar lítilræðið
stóð eftir og þeir höfðu orðið að búa
við heljar haustak og mannhatur
rannsóknarmanna um árabil. Í ljósi
þess hlýtur það að vera vegna van-
þekkingar eða vanhugsunar dóm-
aranna að klína á nokkurra mánaða
skilyrði sem þýðir þriggja ára refs-
ingu af því að einhver lög eru vitlaus
og vanhugsuð. Það segir allt um ís-
lenska réttarkerfið að það skyldi
þurfa að kosta Baugsmenn á þriðja
milljarð króna, nærri þúsund (1000)
árslaun venjulegs launafólks, til
þess að ná réttlætinu fram. Ef þeir
hefðu ekki átt þessa peninga hefðu
þeir að öllum líkindum verið dæmdir
út og suður, saklausir menn. Það
þekki ég vel. Þetta er í einu orðið
sagt, ógeðslegt og til ævarandi
skammar fyrir Ísland. Ég vil skora á
Jón Ásgeir að taka allan slaginn Ís-
lands megin, maður á ekki að láta
smámennin og valdníðingana trufla
sig þótt það bíti vissulega fast og
hrikti í sál og líkama. Réttarkerfið
íslenska bítur oft eins og soltin lús
og það er gamall sannleikur að sárt
bítur soltin lús. Skyrslettan sem
Hæstiréttur skilur eftir í þessu máli
er fyrst og fremst föst á dómurunum
sjálfum og því opinbera.
Það hefur ekkert verið ofsagt í því
að íslensk stjórnvöld þurfa að læra
af þessum hrikalegu mistökum í
réttarkerfinu og svo bætir það gráu
ofan á svart að þeir sem stjórnuðu
gangi málsins hjá embætti Ríkislög-
reglustjóra eru settir í skjól og rass-
inn á þeim púðraður daglega með
barnatalkúmi samtryggingarinnar
svo vel fari um þá í stólum sínum.
Þessu getur Alþingi breytt og
þessa forsmán þarf að afmá strax
svo að menn geti unnið vinnuna sína
á eðlilegan hátt strax í haust.
Breyta þarf strax lögum um skilyrði
dóma og stjórnarsetu í fyrirtækjum
Árni Johnsen
skrifar um
íslenska
réttarkerfið
Árni Johnsen
» Þetta eru vitlaus lög
og heimskuleg og
því þarf að spúla dekkið
strax.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.