Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 44
44 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Gestur Stef-ánsson, verk-
fræðingur í Hørs-
holm í Danmörku,
fæddist í Haga í
Gnúpverjahreppi 8.
desember 1923.
Hann lést 31. maí
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Stefáns Sigurðs-
sonar frá Hrepp-
hólum, f. 11.4. 1885,
d. 18.5.1927 og Mar-
gétar Eiríksdóttir
frá Fossnesi, f. 12.6.
1886, d. 26.6. 1968. Gestur var
yngstur 4 systkina er upp komust.
Hann missti föður sinn á fimmta
ári en móðir hans stýrði búinu á
Haga áfram sem var stórt á þess-
um tíma og kom upp barnahópn-
um og til mennta.
Gestur kvæntist 13. maí 1951
Inge Hjördísi Stefánsson Pawlik,
f. í Vigsnæs í Danmörku, 24. nóv-
ember 1926. Börn þeirra eru: 1)
Stefán vélaverkfræðingur í Dan-
mörku, f. í Reykjavík 25. maí
1952, kvæntur Annette Schjern-
ing Povlsen, börn þeirra eru
Mikkel, f. 17.12. 1977, Gunilla, f.
11.4. 1975, í sambúð með Ole
Knudsen, sonur þeirra Storm, f.
10.5. 2007. 2) Björn
byggingarverk-
fræðingur í Dan-
mörku, f. við Stein-
grímsstöð í
Grafningshreppi 22.
júlí 1958, var
kvæntur Marianne
Schiller, börn
þeirra eru Alexand-
er, f. 9.4. 1996, og
Victoria, f. 21.10.
1997.
Gestur lauk stúd-
entspprófi frá MA
1943, fyrri hluta
prófi í verkfræði frá H.Í. 1945 og
prófi í byggingarverkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn 1949.
Gestur hóf starfsferil sinn hjá
borgarverkfræðingi Reykjavíkur,
vann því næst við Sogsvirkjanir,
Írafossvirkjun 1950-1953, hjá Fos-
skraft og Steingrímsstöð 1956-
1961 hjá Efrafalli sf. Gestur vann
á starfsferli sínum víða um heim
við framkvæmdir hjá sænskum og
dönskum verktakafyrirtækjum.
Hann gegndi einnig trún-
aðarstörfum hjá stéttarfélagi
verkfræðinga.
Gestur var jarðsunginn frá
Hørsholmskirkju í Kaupmanna-
höfn 7. júní.
Gestur var yngstur fjögurra upp-
kominna systkina. Hann missti föð-
ur sinn á fimmta ári en móðir hans
stýrði búinu á Haga áfram sem var
stórt á þessum tíma og kom upp
barnahópnum og til mennta. Mar-
grét móðir Gests vann sem farand-
kennari með búinu og kunnugir hafa
sagt mér að hún hafi komið mörgum
af nemendum sínum áfram til náms,
bæði í Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði og Menntaskólann á Akur-
eyri.
Við Gestur vorum bræðrasynir,
ég kynntist Gesti og Hjördísi við
Steingrímsstöð þar sem ég vann
með honum í um fjögur ár og síðan
þá hefur alla tíð verið mjög kært á
milli okkar.
Ég heimsótti þau hjónin dagstund
síðasta sumar eins og oft áður er ég
átti leið um Kaupmannahöfn, var þá
margs að minnast frá gamalli tíð.
Gestur talaði alla tíð mjög góða ís-
lensku og þakkaði því að hann var
áskrifandi að Morgunblaðinu og las
úr því upphátt til að viðhalda mál-
inu.
Hann hafði ætíð gott samband við
fólkið sitt í Haga, sérstaklega við Jó-
hönnu Jóhannsdóttur, seinni konu
Haraldar mágs síns, bónda í Haga.
Ég keyrði Gest austur að Haga
frá Reykjavík fyrir 4-5 árum síðan.
Íslensk náttúra var honum mjög
hugleikin og þurfti ég að stoppa á
ákveðnum stöðum svo hann gæti
rifjað upp örnefni og staðhætti. Er
komið var austur fyrir Minna-Núp
fór hann út og taldi upp öll örnefni í
Hagafjalli og nágrenni sem greipst
höfðu í huga hans frá barnæsku, en
14 ára gamall fór hann að heiman.
Við systkinin frá Hrepphólum
þökkum góð kynni og vonum að
vinabönd og ættartengsl fjölskyldn-
anna haldi áfram að styrkjast til
framtíðar.
Við sendum Hjördísi og fjölskyldu
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd systkinanna frá
Hrepphólum,
Sigurður Jónsson.
Síðla kvölds í ágúst 1945 lagði
Lagarfoss úr höfn í Reykjavík og
var stefnan tekin á Kaupmannahöfn.
Á hafnarbakkanum stóðu vinir og
ættingjar til að kveðja hina fáu far-
þega – unga stúdenta – sem voru á
leið til Kaupmannahafnar til að afla
sér aukinnar menntunar. Um borð
vorum við Gestur Stefánsson, og
hann með flottan filthatt. Í Kaup-
mannahöfn kynntist Gestur nýjum
heimi mjög svo frábrugðum lífinu í
Haga og Þjórsárdal og hinn ungi
maður naut borgarlífsins, jafnframt
því sem hann lauk náminu, svo flug-
gáfaður sem hann var.
Leiðir okkar lágu saman við störf
á Íslandi og síðar úti í hinum stóra
heimi, m.a. í hinu fjarlæga, komm-
úníska, arabíska Suður-Jemen. Hér
vann hann framúrskarandi starf við
byggingu fiskihafna í námunda við
Óman. Er fram liðu stundir komu
fleiri áhugaverð verkefni – stundum
trufluð af styrjöldum og uppreisnum
– en Gestur leysti öll verkefni af
hendi með stóískri ró.
Gestur var hinn dæmigerði dríf-
andi Íslendingur sem lagði heiminn
að fótum sér með hæfileikum sínum.
Fyrir tveimur vikum kvöddumst
við í síðasta sinn án orða, en orð eru
ekki nauðsynleg milli vina. Blessuð
sé minning Gests Stefánssonar.
Søren Langvad.
Gestur Stefánsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Elsku Vilborg, nú
hefur þú loksins feng-
ið hvíldina eftir erfiða
baráttu við illvígan
sjúkdóm. Mig langar með örfáum
orðum að þakka þér fyrir þær stund-
ir sem ég átti í sveitinni hjá þér þeg-
ar ég var krakki. Þar lærði ég ým-
islegt sem kom mér til góða seinna í
lífinu. Þegar ég hugsa til þín þá kem-
ur fyrst upp í huga minn brosið þitt
og hlátur þinn þú varst alltaf svo hlý
og góð við mig enda leið mér vel í
Vilborg Reimarsdóttir
✝ Vilborg Reim-arsdóttir fædd-
ist á Djúpavogi í
Beruneshreppi 10.
ágúst 1942. Hún lést
á sjúkrahúsi Akur-
eyrar 18. júní síð-
astliðinn og var út-
för hennar gerð frá
Akureyrarkirkju
26. júní.
vistinni hjá ykkur
hjónunum. Maður
beið spenntur eftir
sauðburðinum og
smöluninni á haustin,
og alltaf fékk ég að
finna að ég væri vel-
komin þegar að ég
kom til ykkar. En svo
líður tíminn og fólk fer
í sitt hvora áttina og
stundirnar verða færri
sem maður hittist,
þannig er það nú
gjarnan og svo var í
okkar tilfelli, en oft
var mér nú samt hugsað til þín í
þinni erfiðu baráttu.
Elsku Vilborg nú ert þú komin á
æðri slóðir og vakir þar örugglega
yfir þínu fólki, kærar þakkir fyrir
allar stundirnar sem við áttum sam-
an.
Hinsta kveðja.
Hildur Salína.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR Þ. GUÐBJÖRNSDÓTTUR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
sem lést 12. júní og var jarðsungin 23. júní.
Guðbjörn Sigvaldason, Jónína M. Árnadóttir,
Kristján Jóhann Sigvaldason,
Silja Hlín Guðbjörnsdóttir,
Gísli Freyr Guðbjörnsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
OTTA SÆMUNDSSONAR,
Kleppsvegi 62,
Reykjavík.
Guðríður Ottadóttir, Lúðvík Eiðsson,
Anna Ottadóttir, Hilmar Smith,
Auður Ottadóttir, Ágúst Bjarnason,
Eyrún Ottadóttir, Erik Jonsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
llr irr s
hug og hlýhug við andlát og útför ástkærs
í , r r, t af ður og afa,
GUÐNA STEFÁNSSONAR,
Skógarlundi 19,
Garðabæ.
Sigrún Vilbergsdóttir,
Guðný Guðnadóttir, Jóhann Örn Ásgeirsson,
Gréta Guðnadóttir, Róbert Ólafsson,
Aron, Birna, Vilberg og Guðni.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS PÁLSSONAR,
Páls á Borg,
Hraunbæ 103,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks hjartadeildar Landspítala 14G og
líknardeildar Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Inga Ásgrímsdóttir,
Páll Pálsson, Hafdís Halldórsdóttir,
Ásgrímur Gunnar Pálsson, Helga Tryggvadóttir,
Arndís Pálsdóttir, Rafn Árnason,
Auðunn Pálsson, Anna Baldvina Jóhannsdóttir,
Björgvin Rúnar Pálsson, Fríður Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR EINARSDÓTTUR,
Hagamel 23,
Reykjavík.
Einar Júlíusson, Valfríður Gísladóttir,
Sigríður Júlíusdóttir, Rögnvaldur Ólafsson,
Jón Júlíusson, Jónína Zophoníasdóttir,
Áslaug Júlíusdóttir,
Björn Júlíusson, Rannveig Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
kærleik við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS BERGSSONAR,
Laugalæk 46,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahlynningar KÍ.
Þóra Stefánsdóttir,
Þóra Andrea Ólafsdóttir, Haraldur Haraldsson,
Stefán Ólafsson, Ingunn Magnúsdóttir,
Kolbrún Ólafsdóttir, Magnús Sigurðsson,
Sigrún Ólafsdóttir, Fjalar Kristjánsson,
Sólrún Ólafsdóttir, Gunnar Sigmundsson,
afabörn og langafabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á
minningargrein á útfarardegi verð-
ur hún að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Ef útför hefur far-
ið fram eða grein berst ekki innan
hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar