Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 51
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
SATT...
ÉG ER EKKI
HAMINGJU-
SAMUR
HVERSU MARGIR
Í HEIMINUM
ERU VIRKILEGA
HAMINGJUSAMIR?
1.479.536 ÞÚ ERT BARA
AÐ GISKA
SANNAÐU ÞAÐ
ÉG HELD AÐ VIÐ
ÆTTUM AÐ FLYTJA
Í SAMA BÁS
HVAÐ SEGIR
ÞESSI MYND
ÞÉR?
MEIRA EN
ÞÚSUND
ORÐ
Í AUGNABLIKINU ERU ALLIR ÞJÓNUSTUFULLTRÚAR
OKKAR UPPTEKNIR... SPÁDÓMUM VERÐUR SVARAÐ
Í ÞEIRRI RÖÐ SEM ÞEIR BERAST...
ÚTS
ÖLU
-
LOK
Á
MÁN
UDA
G-
INN
HEIMUR-
INN
FERST Á
ÞRIÐJU-
DAGINN!
ÉG FÉKK HEILA
MILLJÓN Í FERÐASTYRK!
VÁ! TIL AÐ
LÆRA ÚTI?
NEI, BARA TIL AÐ
YFIRGEFA LANDIÐ
EF HUNDAR
GÆTU KEYRT
Velvakandi
HÚN Steinunn hefur í nógu að snúast við garðvinnuna í Borgarnesi. Ekki
mun vera vanþörf á duglegum aðstoðarmanni við að ferja moldarfarmana í
hjólbörum á milli beða. Samvinnan er það sem gildir í þessu sem öðru.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Garðvinna í fögru umhverfi
Persónulegt öryggi
Í LANDI þar sem
menn eiga á hættu að
þurfa að borga brotnar
tennur í mönnum, sem
á þá ráðast og þar sem
alþingismenn hafa
meiri áhuga á að búa
til fleiri gölluð lög, en
leiðrétta áður gerð
slík, er lögreglan það
eina, sem er okkur
saklausum borgurum
til varnar, þótt hún
geti auðvitað ekki ver-
ið alls staðar í senn og
sé stundum lengi á
vettvang (vegna fjár-
laga og fleira). Vaxandi tilefn-
islausar árásir (og aðrar árásir) á
lögreglumenn, virðist mér kalla á
hert viðurlög við slíku. Lögreglan
er jú okkar síðasta haldreipi, þegar
allt annað bregst. Hér er í tísku að
banna löghlýðnum mönnum ýmsa
sjálfsagða hluti á meðan alls konar
ruddar og ribbaldar komast upp
með nánast hvað sem er. Mál er að
linni.
Hlutverk lögreglumanna eru
mörg og margvísleg, hver veit nema
þeir þurfi að taka á móti ótöldum
Íslendingum, þar sem ráðamenn
virðast ekki telja að það þurfi að
greiða öðrum stéttum fyrir það.
Þórhallur Hróðmarsson.
Lýst eftir bíl
VIÐ erum alltaf að nefna það hvað
Ísland sé lítið, allir þekki alla og þar
fram eftir götunum. Þrátt fyrir
þetta virðist Ísland vera nógu stórt
til þess að hægt sé að stela bíl og
sjá til þess að hann finnist ekki.
Hvað gerir þú við stolinn bíl á Ís-
landi? Ég spyr að þessu vegna þess
að ég lenti í því óláni að bílnum
mínum var stolið fyrir utan heimili
mitt aðfaranótt mánudagsins 23.
júní sl. Þetta var ekki merkilegur
bíll en missirinn ótrúlega mikill.
Mesti missirinn var að í skottinu á
bílnum var barnakerra 2ja mánaða
gamallar dóttur minnar sem hún
hafði fengið að gjöf frá ömmu sinni.
Auk þess var burðarúmið hennar í
aftursætinu. Ekki var nóg með að
bílnum hafi verið stolið, því þegar
ég hringdi í lögregluna
þá sagðist hún ekki
ætla að gera neitt fyrr
en ég væri búin að
leita að bílnum sjálf.
Ég var að tilkynna
stolinn bíl og tók það
fram að barnavagninn
hefði verið í skottinu á
bílnum og að ég væri
með 2 mánaða gamalt
barn. Ég spurði hann
hvernig ég ætti að fara
að því að leita að bíln-
um, á ég að labba um
bæinn með bílstólinn í
fanginu? Og þá fékk
ég svarið: „Hvað viltu
að við gerum?“ Þetta
fannst mér lélegt af lögregluþjón-
inum. Mér fannst einhvern veginn
eins og maðurinn væri hreinlega
ekkert að hugsa um hvað hann væri
að gera í vinnunni. Stuttu eftir að
ég er búin að tala við hann hringir
hann aftur og biður mig um að
koma á lögreglustöðina að skrifa
undir skýrsluna. Ég sagðist ekki
komast fyrr en maðurinn minn
kæmi heim úr vinnunni og þá
spurði hann mig hvort að það væri
engin leið að ég kæmist fyrr? Ég,
með 2ja mánaða gamalt barn og bíl-
laus, átti sem sagt að labba með
barnið í bílstólnum á stöðina því það
hentaði honum greinilega betur.
Ekkert er að frétta af bílnum og ég
er því enn í hálfgerðu stofufangelsi
á mínu eigin heimili. Ef einhver
verður var við bílinn eru þeir vin-
samlegast beðnir um að láta lög-
regluna á Akranesi vita. Þetta er
tveggja dyra, græn Opel Astra með
númerið UZ-649.
Særún Hlín Kristinsdóttir.
Hundar þurfa hreyfingu
Ég vil vekja athygli hundaeigenda á
því að það er ekki nóg að binda
hundinn við staur og láta hann sitja
þar í marga tíma. Hundar þurfa
hreyfingu allavega þrisvar sinnum á
dag. Einnig finnst mér vanta fleiri
svæði fyrir hunda.
Edda.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skrán-
ing í Þýskalandsferðina 22.-29. sept. er
hafin, gott aðgengi fyrir fatlaða. Uppl. í
síma 898-2468.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan lokuð v/ sumarleyfa til 5. ágúst.
Uppl. Kristjana, s. 897-4566, og Krist-
mundur, s. 895-0200. Félagsvist í Gjá-
bakka og Gullsmára eins og verið hefur.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Ferð á Strandir dagana 2.-4.
ágúst nk. Brottför frá Gullsmára kl. 8 og
Gjábakka kl. 8.15. Ekið til Klúku í Bjarn-
arfirði að Munaðarnesi og Krossneslaug,
Þorskafjarðarheiði, Bjarkarlundur og
Dalir. Skráning og uppl. í félagsmiðst. og
í síma 554-0999.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
að í Stangarhyl kl. 20. Caprí-tríó leikur.
Hæðargarður 31 | Félagsvist á mánud.
kl. 13.30. Matur og kaffi virka daga og
listasmiðjan opin. Uppl. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó og pútt á
menningarflötinni við Gerðarsafn á
miðvikud. og laugard. Línudans í Húna-
búð, Skeifunni 11, Rvk. á miðvikud. kl. 17.
Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Farin verður
ferð í Fljótshlíð 10. júlí kl. 12.30. Áhuga-
verðir staðir skoðaðir undir leiðsögn far-
arstjóra. Kaffihlaðborð á Hótel Hvolsvelli
á heimleiðinni. Uppl. í síma 411-9450.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Söng- og helgistund
kl. 20.30. Sr. Svavar Alfreð Jónsson,
Margrét Brynjarsd. og Gísli Jóhann Grét-
arsson syngja og leiða söng.
Hvammskirkja í Laxárdal á Skaga |
Sumartónleikar kl. 20. Þórólfur Stef-
ánsson gítarleikari flytur spænska tón-
list. Aðgangur er ókeypis.
Félagsstarfeldriborgara