Morgunblaðið - 06.07.2008, Side 53

Morgunblaðið - 06.07.2008, Side 53
til tónlist heima með græjum sem ég kalla „hippy jams“ (kímir) – þau lög eru meira afstrakt eins og nafnið gefur til kynna. Ég er aðeins farin að spila það efni á tónleikum líka því ég var orðin leið á því að þurfa alltaf að styðjast við píanó á tónleikum.“ Kristín, eða Kria Brekkan, fór svo fyrir stuttu í tónleikaferðalag með hljómsveitinni Black Dice og opnaði fyrir hana, en um er að ræða eina af fremstu og heitustu hávaða-/ jaðarsveitum New York-borgar í dag. Kristín segist finna að hún sé tilbúin til að fara að spila meira, vera meira út á við, eftir að hafa unnið að tónlistinni í hálfgerðri ein- angrun síðustu ár. „En málið er að ég hef enga reynslu af að koma slíku í gang – ég hef aldrei þurft þess áður. Vanda- málið er ekki innblástur eða sam- bönd, vandamálið er að reyna að ná jarðtengingu (hlær að sjálfri sér). Koma þessu einhvern veginn í áþreifanlegt form. Ég er svo mikið út úr heiminum, ég get ekki einu sinni klastrað saman „myspace“- síðu.“ Það er einhvern veginn hressandi, eiginlega fallegt, þegar fólk gerir sér grein fyrir því hversu vel – eða illa – jarðtengt það er. Og hlær síð- an að því. Kristín er mjög æðrulaus varðandi það að hún sé „ekki niðri á jörðinni.“ „Jaa … ég fór einhvern tíma í einhvern hnút út af þessu en komst svo fljótlega að því að þetta á bara vel við mig. Ég hélt að ég þyrfti að gera eitthvað í þessu en svo ákvað ég bara að fara með þessu. Standa með mér. En ég veit alveg að ég tala oft mjög afstrakt og líklega skilur þá enginn hvað ég er að segja (hlær). Vonandi hljóma ég ekki rugluð – eða eins og mér finnist svo kúl að vera út úr heiminum (brosir).“ Afturábak og áfram Hún og eiginmaður hennar, Dave, gáfu saman út plötuna Pullhair Ru- beye árið 2007 sem Avey Tare og Kria Brekkan. Platan vakti mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að hún var gefin út afturábak. Hún hafði lekið út á netið áður en hjónin ákváðu að snúa henni við og upp- hófst nú mikið hausaklór hjá gagn- rýnendum og sumir urðu nánast æf- ir. Tare sagði í framhaldinu að þeir áhugasömustu gætu hæglega snúið plötunni við sjálfir í tölvunni sinni, væri þetta svona stórkostlega mikið mál. „Þetta var mjög lágstemmt allt saman, hvernig við unnum plötuna. Ég og Dave höfðum t.d. verið saman í París í mánuð þar sem við sömdum saman og spiluðum á gítara. Við tókum plötuna upp í æfing- arhúsnæðinu hans Dave og í apríl 2006 spiluðum við á fyrstu tónleik- unum okkar saman. Svo vorum við að fara í heimsókn til foreldra hans í Colorado um jólin 2006 og festumst í snjóstormi. Við hlustuðum svo á plötuna í tveggja rása tæki og próf- uðum að snúa henni við. Okkur fannst það svo flott að við ákváðum bara að gefa plötuna út þannig. En þetta var þannig verkefni, bara okk- ar verkefni einhvern veginn, að það hvarflaði aldrei að mér hvernig hún yrði gagnrýnd. Það var mjög þægi- legt að fara í gegnum allt plötuupp- tökuferlið án þess að pæla í þessum hlutum. Ég held að enginn hafi vitað hvað ég var að gera á þessum tíma en svo kom það mér á óvart hversu mikið fólk var að pæla í þessu og hversu sterk viðbrögðin voru.“ Kristín segist meira að segja hafa fengið smá móral yfir því að hafa valdið fólki vonbrigðum. „Ég er ekki svo mikill pönkari – en við gerðum þetta ekki upp á eitt- hvað flipp. Við gerðum þetta ein- faldlega af því að okkur fannst plat- an hljóma betur svona. En hver veit, kannski hefði hún slegið í gegn ef hún hefði verið réttsælis (hlær).“ Könnun Kristín segir framtíðina nokkuð óráðna. „Ég er alltaf í voðalega frjáls- legum stellingum,“ segir hún og hlær. „Stundum set ég mig í stell- ingar fyrir vinnu, ég leigði t.d. æf- ingahúsnæði úti um daginn og ætl- aði að rúlla þessum píanólögum inn af hörku. Ég reyndist svo frekar lé- legur harðstjóri gagnvart sjálfri mér. En ég er svo lukkuleg að ég er á námsstyrk um þessar mundir og ég ákvað bara að setja sjálfa mig í skóla. Mér fannst ég eiga það inni, enda fór ég ekkert í nám eftir MH því það var nóg að gera með múm. Þannig að nú er ég að rannsaka hvað býr í mér og það þarf tíma til að kanna það. Um leið hef ég ríka þörf til að gefa af mér, deila með fólki, eiginlega þjónusta það. Það var maður að gera á vissan hátt með múm og ég finn að ég þarf á því að halda. Ég var að spá í hvort ég ætti að fara að vinna á kaffihúsi til að slá á þessa þörf (hlær). En ég var líka ánægð með að komast úr þessu, ég var tilbúin í að vera „ekki á tónleika- ferðalagi.“ Maður bjó úti um allar trissur og mig var farið að dreyma um eigið eldhús og einhvern fastan íverustað, stað þar sem ég gæti loks sest niður í friði og ró og farið að vinna með og rækta það sem ég hef inni í mér – eitthvað sem ég hef ekki komist almennilega í fyrr en þessi síðustu ár.“ arnart@mbl.is Hjón Kristín ásamt eiginmanni sínum, Dave Portner úr Animal Collective. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 53 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Lau 23/8 kl. 15:00 Lau 23/8 kl. 20:00 Sun 24/8 kl. 16:00 Fös 29/8 kl. 20:00 Lau 30/8 kl. 15:00 Lau 30/8 kl. 20:00 Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið) Fös 11/7 kl. 20:00 Lau 12/7 kl. 20:00 Sun 13/7 kl. 16:00 Fim 17/7 kl. 20:00 Fös 18/7 kl. 20:00 Kómedíuleikhúsið Ísafirði 8917025 | komedia@komedia.is Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið) Sun 6/7 kl. 14:00 Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning) Mið 9/7 kl. 16:00 U Fös 25/7 kl. 14:00 Lau 26/7 kl. 20:00 U Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík) Fim 10/7 kl. 20:00 Fim 17/7 kl. 20:00 Fim 24/7 kl. 20:00 Fim 31/7 kl. 20:00, , Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „UM LEIÐ og hátíðin hófst létti til á Siglufirði og er nú 15 stiga hiti og sólarglennur,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, umsjónarmaður Þjóð- lagahátíðar á Siglufirði. Hátíðin nær hápunkti um helgina og einn mest spennandi viðburður hátíðarinnar er svo á sunnudags- kvöld, en þá mun Hljómsveit Benna Hemm Hemm og Ungfónía halda tónleika í Íþróttahöllinni á Siglu- firði. Þar verður m.a. flutt nýtt verk eftir Benedikt Hermannsson, en einnig „Skoska sinfónían nr. 3“ eftir Mendelssohn og „Vor í Ap- palaichan-fjöllum“ eftir Aaron Copland. Finna má dagskrá Þjóðlagahátíð- ar á Siglufirði á www.siglo.is/ festival. Tónleikar Benna Hemm Hemm og Ungfóníu verða endurteknir í Háskólabíói 7. júlí kl. 20. Morgunblaðið/G.Rúnar Spennandi Mikil eftirvænting ríkir vegna tónleika Benna Hemm Hemm og Ungfóníu þar sem nýtt verk verður frumflutt. Þjóðlagahátíð nær hápunkti Benni Hemm Hemm og Ungfónía spila á Siglufirði um helgina KRISTÍN segir að það hafi verið óumflýjanlegt að hún myndi hætta í múm á sínum tíma. „Þetta var ekki einhver stór ákvörðun. Þetta var að gerast í nokkra mánuði, smátt og smátt. Ég trúi því að hlutirnir gerist náttúrulega – og einu sinni þegar við vorum að vinna saman að tónlist, ég, Örvar og Gunni, þá var hún ekkert að renna saman. Þeir voru bara að gera sitt og ég mitt. Þetta óx bara eðlilega í sundur, þróaðist í þessa átt. Þetta var það náttúrulega í stöð- unni. Svo fór ég til New York og síðan til Seattle þar sem ég hitti Animal Collective og spilaði með þeim inn á plötuna Feels.“ Kristín rifjar upp hversu sérstakt þetta var með múm, það voru aldrei ákveðnar neinar æfingar eða slíkt. „Við vorum alltaf saman, bjuggum saman, og það voru aldrei gerðar neinar áætlanir. Þetta bara „var“ einhvern veginn.“ Árdagar Með múm (frá vinstri til hægri) Kristín, Örvar, Gyða og Gunni. Kristín hættir í múm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.