Morgunblaðið - 06.07.2008, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 55
isins Planting Seed Records, jað-
arútgáfu í New York sem er meðal
annars með á sínum snærum
Dakota Suite, Freeheat, Int-
ernational Jetsetters og The Tam-
borines.
Plötum Draper hefur jafnan
verið vel tekið en bestar viðtökur
fékk platan One Two Three Four
og það að verðleikum – hún var
meðal annars valin plata ársins
hjá ýmsum þjóðlagaritum og -vef-
setrum.
Upptaka í smáskömmtum
Þegar kom að því að taka upp
nýja plötu ákvað hún að breyta til
og fékk nýja að tökkunum, Major
Matt Mason, en hún stýrði upp-
tökum annars að mestu sjálf, en
platan, Keepsake, sem tekin var
upp í smáskömmtum 2005-2006,
kom svo út síðasta haust.
Heiti skífunnar vísar í eittvað
sem fólk vill eiga, eitthvað sem er
eigulegt, en að sögn Draper segist
hún hafa velt því fyrir sér þegar
undirbúningur hófst að upptökum
skífunnar að það væri kannski hálf
kjánalegt að vera taka upp tónlist
sem steypt eða pressuð yrði á
plötu og þaðan væri nafnið komið.
Það vísi og til þess að hún hafi
verið dugleg við að flytja á síðustu
árum, flutt átta sinnum á sjö ár-
um, og við hverja búferlaflutninga
komi upp sú spurning hverju eigi
að henda og hvað eigi að varð-
veita.
arnim@mbl.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA - Í ALLT SUMAR - 650 KR. www.laugarasbio.is
The Incredible Hulk kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
The Happening kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Meet Bill kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
Zohan kl. 3 - 5:30 B.i. 10 ára
Sex and the City kl. 4 - 7 - 10 B.i. 14 ára
Indiana Jones kl. 3 - 10.20 B.i. 12 ára
EDWARD NORTON ER HULK
Í EINNI FLOTTUSTU HASARMYND SUMARSINS.
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
,,Ævintýramynd Sumarsins”
- LEONARD MALTIN, ET.
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650kr.
,,Ljúfir endurfundir”
- Þ.Þ., DV 650kr.
650kr.
eee
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8D og 10D
-bara lúxus
Sími 553 2075
HEITASTA BÍÓMYNDIN Í SUMAR ER KOMIN!
SVALASTA BÍÓMYND SÍÐAN THE MATRIX
,,Brjálaður hasar, brútal ofbeldi, skemmtilegir
leikarar og góður húmor.
Þarf meira?”
- Tommi, kvikmyndir.is
eee
- Viggó,
24stundir
,,Unnin af natni, tónlistin frábær og undir-
strikar firringuna, ofsóknaræðið og óttann
við það óþekkta”
- S.V., MBL
eee
650kr.
eeee
24 stundir
650kr.
650kr.
Sýnd kl. 8 og 10:10
Sýnd kl. 2D, 4D og 6D m/ íslensku tali
Sýnd kl. 10
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
eeeee
K.H. - DV
eeee
24 stundir
Sýnd kl. 1, 4 og 7
M Y N D O G H L J Ó Ð M Y N D O G H L J Ó Ð
500 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
HRYLLINGSMYNDIN The Fly,
Flugan, frá árinu 1986 er fyr-
irmyndin að óperu sem frumflutt
var í Théatre de Chatelet í París
miðvikudaginn sl. Í Flugunni segir
af vísindamanni sem tekst að flytja
lifandi verur úr einu hylki í annað
um rafmagnssnúru, en er heldur
óheppinn þegar hann flytur sjálfan
sig milli hylkja, því fluga slæst með
í för og rennur saman við hann með
skelfilegum afleiðingum.
Slagorð myndarinnar þótti gríp-
andi á sínum tíma: „Be afraid. Be
very afraid,“ og má telja nær
öruggt að margir bíógestir hafi
orðið dauðhræddir þegar flugu-
maðurinn tók hamskiptum og hóf
að snæða andstæðinga sína.
Leikstjóri kvikmyndarinnar,
David Cronenberg, leikstýrir óp-
erunni einnig. Kvikmyndin var
byggð á eldri hryllingsmynd frá
árinu 1958 með sama nafni. Það eru
engir aukvisar sem taka þátt í upp-
setningu óperunnar, tenórinn Pla-
cido Domingo er tónlistarstjóri en
höfundur tónlistar er ósk-
arsverðlaunahafinn Howard Shore,
sá er samdi tónlistina við kvik-
myndirnar um Hringadróttinssögu
og kvikmynd Cronenbergs um
flugumanninn. Jeff Goldblum fór
þar með aðalhlutverkið og Geena
Davis lék óttaslegna unnustu hans.
Í söngleiknum er það hins vegar
Daniel Okulitch og Laurent Alvaro
sem syngja hlutverk vísindamanns-
ins, Seth Brundle, og með hlutverk
unnustu hans, Veronicu Quaife, fer
Ruxandra Donose.
Hamskipti Jeff Goldblum illa haldinn
sem vísindamaðurinn í The Fly.
Maður og fluga Hugvitsamlega
hannað merki óperunnar, sem
heitir La Mouche á frönsku.
Frönsk ópera
um flugumann