Morgunblaðið - 18.07.2008, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 18.07.2008, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er föstudagur 18. júlí, 200. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. (Lk. 12, 32.) Ný bók um viðurnefni í Vest-mannaeyjum kom til tals milli Víkverja og viðmælanda hans. Þá rifjaði viðmælandinn upp ýmis viðurnefni úr bernsku sinni; t.d. um strákinn sem braut brunaboðann, en brást illa við þegar hann fékk viðurnefnið „brunaboði“. Því var þá auðvitað umsvifalaust breytt í „ekki brunaboði“. Annar fékk við- urnefnið „þrípungur“. Ekki af því að hann væri svo vel kýldur heldur hinu, að hann féll þrisvar á punga- prófinu. x x x Víkverji er, eins og hann teluralla Íslendinga vera, ákaflega stoltur af Benedikt Hjartarsyni og Ermarsundsafreki hans. Hvílíkt þrek og þrautseigja! Og að synda til baka, frá Frakklandi, í nokkurn tíma til þess að ná svo landi ber vott um geysilega sjálfsstjórn undir miklu álagi. Víkverji hefði nú bara bitið gat á bát skipstjórans sem hefði látið sér detta í hug að snúa honum við þegar takmarkið var innan seilingar. En Benedikt Hjartarson bara synti og synti og komst í mark. Sannkallaður dáðadrengur. x x x Víkverji fylgdi í vikunni barni tilrútu, sem skyldi flytja það í sumarbúðirnar Ölver. Þegar til kom var börnunum í upphafi ferðar boðið að kaupa boli sérmerkta sum- arbúðunum og geisladisk. Víkverji var ekki með peninga til slíkra kaupa enda taldi hann víst að slíkur bolur væri innifalinn í sumarbúða- gjaldinu; 30 þúsund krónum fyrir eina viku, og sagði barninu að fara og velja sér bol. Þegar til kom kost- aði bolurinn 800 krónur, sem ekki lágu á lausu, og urðu vonbrigði barnsins að vonum mikil að missa af bolnum. Víkverja blöskraði þetta enda fleiri peningalausir og á end- anum fór rútan með tvískiptan hóp, helmingurinn skartaði Ölversbolum en hinn ekki. Víkverja fannst þetta ekki gæfulegt upphaf á dvöl í sumarbúðum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 afkastamikil, 8 korn, 9 drekkur, 10 fyrir utan, 11 afkom- anda, 13 fugls,15 þref, 18 hellir, 21 rödd, 22 smá, 23 báran, 24 þekkingin. Lóðrétt | 2 starfið, 3 duglegar, 4 duglega, 5 niðurgangurinn, 6 ótta, 7 illgjarn, 12 for,14 auðug, 15 geta borið, 16 hindra, 17 vit- laus, 18 klettur, 19 rotni, 20 iðjusama. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 þukla, 4 bólur, 7 æsing, 8 næpum, 9 apa, 11 arar, 13 garn, 14 ólata, 15 barm, 17 tjón, 20 ham, 22 tolla, 23 áttur, 24 rausa, 25 terta. Lóðrétt: 1 þræta, 2 keika, 3 auga, 4 bana, 5 loppa, 6 ráman, 10 plata, 12 róm, 13 gat, 15 bútur, 16 rellu, 18 játar, 19 narra, 20 hala, 21 mátt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3 Rbd7 8. Bg5 h6 9. Bh4 Rc5 10. De2 Be7 11. O–O–O O–O 12. Bg3 Dc7 13. e5 dxe5 14. Bxe5 Da5 15. Kb1 Bd7 16. f4 b5 17. g4 b4 18. g5 bxc3 19. gxf6 gxf6 Staðan kom upp á ofurmótinu í Dortmund í Þýskalandi sem lauk fyrir skömmu. Þýski stórmeistarinn Arkadij Nai- ditsch (2624) hafði hvítt gegn Hol- lendingnum Loek Van Wely (2677). 20. Rf5! exf5 21. Bxc3 Dd8 22. Dh5! hvítur byggir sókn sína á að opna h- línuna og nýta sér að g-línan sé op- in. Framhaldið varð: 22…Kh7 23. Hhg1 De8 24. Hg3 Hg8 25. Bxf7 Hxg3 26. hxg3 og svartur gafst upp enda stutt í að hann verði mát. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Frönsk snilld. Norður ♠Á432 ♥Á105432 ♦Á54 ♣-- Vestur Austur ♠6 ♠-- ♥976 ♥DG8 ♦2 ♦KD1098 ♣KG986532 ♣ÁD1074 Suður ♠KDG109875 ♥K ♦G763 ♣-- Suður spilar 6♠. Austur opnar á 1♦, suður stekkur í 4♠, sem norður hækkar í slemmu. Tíg- ultvistur út. Skoðun á spaðalitnum í blindum leiðir í ljós að þar á bæ er ekki nema ein innkoma. Því miður er ekkert lauf til að trompa og fjarki-þristur- tvistur eru lægstu spilin í stokknum. Því er vandséð hvernig hægt er að nýta hjartalitinn, jafnvel þótt hann brotni 3-3. Frakkinn Henri Svarc er skrifaður fyrir eftirfarandi snilld: Hann stakk upp ♦Á, fór heim á ♥K, spilaði ♠5 og lét tvistinn undir í borði! Vestur fékk sem sagt slaginn á spaðasexu, eina tromp varnarinnar. Þessi óvænta „gjöf“ reyndist þó vera okurlán – hvort sem vestur spilar hjarta eða laufi í tvö- falda eyðu, fæst innkoman sem þarf til að nýta hjartalitinn. Enskumælandi menn myndu kalla þetta „gríska gjöf“. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ekki halda þig heima þótt þig langi til þess. Þegar þú ert kominn út í hinn ólgandi heim, lifnar yfir þér. Þú hef- ur gott af því að vera á meðal fólks. (20. apríl - 20. maí)  Naut Allar ákvarðanir þínar – frá vali á fötum og elskhugum til ákvarðana í fjár- festingum – tekur þú næstum ósjálfrátt. Haltu áfram að hlusta á tilfinningar þín- ar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Orkan þín tvöfaldast þegar þú skerð á tilfinningalegar áhyggjur. Breyt- ingar í vinnuumhverfi hjálpa líka með því að gefa þér meira frelsi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert svo móttækilegur að fólkið í kringum þig vill endilega veita þér upp- lýsingar eða kenna þér eitthvað. Spurðu spurninga sem þú hefur aldrei spurt áður. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þessi dagur skiptir miklu máli varð- andi verkefni sem þú ert með á prjón- unum. Taktu tíma til að ákveða hver næstu skref verða. Þannig kemurðu öllu í verk. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Stundum hindrar það þig að ein- beita þér um of að smáatriðunum. En nú kemur það þér til góða. Smáatriðin frelsa þig og hjálpa þér að meta vinnuna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú reynir að bæta fyrir eitthvað slæmt sem vinur þinn hefur gert. Ekki nota fyrstu lausnina sem kemur upp. Hugsaðu upp 10 og notaðu þá bestu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Áhyggjur hverfa ef þú hunsar þær nógu lengi. Mundu orð Roberts Louis Stevenson: „Haltu óttanum fyrir sjálfan þig, en deildu hugrekkinu.“ (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vinsældir þínar aukast. Það er samfélag skapandi fólks sem bíður eftir að þú og hugmyndir þínar sláist í hópinn. Vertu þar sem þínir líkar halda sig. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Stundum hjálpar að fara eftir reglunum þegar maður vill ná að sökkva sér ofan í vinnuna. Aðra daga á það alls ekki við. Brjóttu upp hversdaginn og farðu út að leika með vini. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þig hefur lengi dreymt um að vinna í lottóinu, en í dag er eins og á viss- an hátt hafi þér tekist það. Sambönd þín styrkjast óðum – hvað meira viltu? (19. feb. - 20. mars) Fiskar Tíminn líður hraðar þegar þú ert í návist vissrar manneskju – kannski af því að hjartslátturinn eykst? Já, þú ert skot- inn, og láttu á það reyna! Stjörnuspá Holiday Mathis 18. júlí 1644 Mislingar bárust til landsins í fyrsta sinn, með skipi sem kom til Eyrarbakka. Í Skarðsár- annál er sagt að sóttin hafi gengið yfir allt landið og verið mjög mannskæð. 18. júlí 1931 Framkvæmdir hófust við verkamannabústaðina við Hringbraut, Bræðraborgar- stíg og Ásvallagötu í Reykja- vík. Alls voru íbúðirnar 54 og var flutt inn í flestar þeirra í maí 1932. 18. júlí 1999 Stórhlaup varð í Jökulsá á Sól- heimasandi og sigketill mynd- aðist í Mýrdalsjökli. Þetta voru mestu umbrot í jöklinum í 44 ár. 18. júlí 2000 Þjóðlagahátíð hófst á Siglu- firði í fyrsta sinn og stóð í fimm daga. Hún var tileinkuð séra Bjarna Þorsteinssyni og þjóðlagasöfnun hans. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist þá… Brúðhjónin Ingibjörg Jónsdóttir Kolka og Guðmundur Sæmundsson voru gefin saman í Selfosskirkju 28. júlí 2007. Prestur var sr. Gunnar Björnsson. Heimili þeirra er á Laugarvatni. Brúðkaup „ÉG ÆTLA að fara á Egilsstaði með flestöllum vinum mínum,“ segir Helga Lilja Magnúsdóttir, fatahönnuður, um fyrirætlanir sínar á þessum merkisdegi og um afmælishelgina. Helga Lilja fagnar í dag aldarfjórðungsafmæli sínu. Á Egils- stöðum ætlar hún að skemmta sér með sínu fólki og heimsækja LungA-hátíðina sem er listahátíð fyrir ungt fólk. Þar leikur meðal annarra danski raftónlistarmaðurinn Trentemøller og hyggst af- mælisbarnið ljá honum eyra. Helga Lilja útskrifaðist úr fatahönnun við Listaháskóla Íslands fyrir tveimur árum og starf- ar nú við vöruþróun hjá tískufatamerkinu Nikita. Hún hannar líka sín eigin föt undir merkinu Helicopter. Er það aðallega svokallað „streetwear“, götuklæðnaður eða hversdagsföt, sem hún lýsir sem þægilegum en flottum. Vinnan hjá Nikita gengur þó fyrir. „Núna situr þetta kannski aðeins á hakanum, en ég er ekkert hætt,“ segir Helga. Fjallað er um hönnun hennar í nýútkominni bók ljósmyndarans Charlie Strand, Project Iceland. „Ég er ekki með eitthvað eins og að hnýta blómakransa,“ segir Helga Lilja aðspurð um áhugamál sín, hún hafi gaman að því að ferðast eins og flestir og njóta lífsins með vinum. Hennar helsta áhugamál er fatahönnun og hún segist mjög lánsöm að fá að vinna við það. skulias@mbl.is Helga Lilja Magnúsdóttir 25 ára Hnýtir ekki blómakransa ;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.