Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 10
10 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Athyglisverð frétt birtist í Ríkis-sjónvarpinu í gærkvöldi. Þar
var sagt frá því að undanfarið hefði
kærunefnd jafnréttismála í vaxandi
mæli komizt að þeirri niðurstöðu að
jafnréttislög hefðu ekki verið brot-
in í málum, sem nefndin fær til um-
fjöllunar.
Enginn sáástæðu til að
fagna þessu.
Meðal lög-fræðinga
og embættis-
manna sem fjalla
um jafnréttismál
er nú vaxandi
kurr vegna þeirra úrskurða
nefndarinnar sem fallið hafa ný-
lega,“ hét það í frétt Sjónvarpsins.
Ástráður Haraldsson hæstaréttar-lögmaður sagði í viðtali við
fréttastofuna að kærunefndin virt-
ist taka mið af „nokkrum“ dómum
Hæstaréttar, þar sem rétturinn
„játaði atvinnurekendum nokkurt
svigrúm til mats á öðrum þáttum en
menntun og starfsreynslu.“
Ættu atvinnurekendur ekki aðtaka mið af öðrum þáttum en
varða menntun og starfsreynslu?
Það er hættulegur hugs-unarháttur ef menn ganga út
frá því að opinberar nefndir eigi
alltaf að komast að sömu, réttu nið-
urstöðunni.
Hlutfall karla og kvenna í stjórn-unarstöðum er ekki jafnt, en
ekki er þar með sagt að jafnrétt-
islög hafi verið brotin í öllum þeim
tilvikum, þar sem karl var valinn í
stöðu, en ekki kona – eða öfugt.
Kærunefnd jafnréttismála á aðkomast að niðurstöðu um hvort
jafnréttislög hafi verið brotin, ekki
að þau hafi verið brotin.
STAKSTEINAR
Ástráður
Haraldsson
Ekki rétta niðurstaðan
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
$
$
%% &%
&
"' '"%% &%
&
())
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
& $& & $& &
$& $&
$& &
&
&
*$BC
!
*!
$$B *!
*
+%
% %
!
,
<2
<! <2
<! <2
*!+ '"
%-
') .%/ "'#
CD$ -
62
8
" #
$
%
&
B
%'& #
$
(
)
&
*
*+
,
0("" %%11 '"% %2 %-
')
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
„ÞETTA yrði
samvinnuvett-
vangur til þess
gerður að sam-
ræma orðræðu og
aðgerðir og skapa
ábyrgð,“ segir
Guðni Ágústsson,
formaður Fram-
sóknarflokksins
um tillögu til
þingsályktunar um stofnun efna-
hagsráðs Íslands.
Í greinargerð með tillögu Guðna
kemur fram að lausn verði ekki fund-
in á vandkvæðum íslensks efnahags-
lífs nema þjóðin taki höndum saman.
Hann leggur því til að myndaður
verði vettvangur þar sem lykilaðilar
samfélagsins hafi það verkefni að
leita leiða úr efnahagskröggunum.
Allir setjist við sama borð
Í hópnum verði forystumenn
stjórnmálaflokkanna á Alþingi,
fulltrúar atvinnulífs, launþega, sveit-
arfélaga, fjármálafyrirtækja og
Bændasamtaka Íslands. Hópnum til
fulltingis verði svo úrval sérfræðinga
frá Seðlabanka Íslands, Hagfræði-
stofnun Háskóla Íslands í samráði
við færustu erlendu sérfræðinga á
sviði efnahagsmála.
„Ég held að svona vettvangur
væri okkur gríðarlega mikilvægur
og gæti skilað því að þeir menn færu
að vinna saman sem það eiga að gera
og hér myndaðist samstaða,“ segir
Guðni. „Oft var þörf en nú er nauð-
syn að menn setjist að sama borði í
stað þess að hver tali úr sínu horni og
hendi fram sprengjum sem valda
ótta hjá almenningi.“
Guðni segir mikilvægt að setja í
sameiningu ný markmið til að fást
við vandann og skapa þannig ró og
festu. Þannig megi leggja grunn að
styrku íslensku efnahagslífi til fram-
búðar „Við erum ekkert stödd öðru-
vísi en aðrar þjóðir og við verðum að
taka á þessu saman og bjarga okkur
sjálf út úr þessum vanda, því það
gera það engir aðrir.“ una@mbl.is
Vinni sam-
an að lausn
vandans
Leggur til að stofnað
verði efnahagsráð
Guðni Ágústsson
MYNDLISTA- og menningarsýning
í anda Karíbahafsins stendur nú yfir
á hótelinu Park Inn í Reykjavík.
Á sýningunni má njóta hitabelt-
isstemningar í formi myndlistar,
tónlistar og skartgripa frá Banda-
rísku Jómfrúaeyjum, við Púertó
Ríkó í Karíbahafinu.
Sýningin er liður í sambandi Ís-
lands við eyjuna St. Croix, en þar
hafa aðilar í ferðaþjónustu tekið
saman höndum við að bjóða Íslend-
ingum sem þangað ferðast svokallað
„Vegabréf til paradísar.“ Þetta er
fyrsta ár verkefnisins, sem mun
standa í 5 ár, og býðst Íslendingum í
ferðahug allt að 50% afsláttur að
ýmsum minjagripum, skoð-
unarferðum og gistingu á eyjunni St.
Croix. Sýningin stendur frá 11-22 í
dag á hótelinu Park Inn, Ármúla 9.
Morgunblaðið/Golli
Myndlist frá paradísar-
eyjum Karíbahafsins
Í HNOTSKURN
»St. Croix er ein af fjórumstærstu eyjunum í klas-
anum Jómfrúaeyjum.
»Ferðaþjónusta á St. Croixbýður Íslendinga vel-
komna til að fagna samkennd
milli eyþjóðanna.
FJALLVÁKUR sást í Siglufirði í gær. Þetta var í 19. sinn sem vitað er til að
fugl af þessari tegund hafi sést hér á landi.
Fjallvákurinn hélt sig við Selgil og þar í kring. Hann andæfði í loftinu og
gaumgæfði umhverfið, eflaust á höttunum eftir mús eða annarri bráð, að
mati séra Sigurðar Ægissonar fuglaáhugamanns.
Yann Kolbeinsson líffræðingur telur að um ungan fugl sé að ræða. Hann
segir að norður-ameríska undirtegund fjallváka sýni tvö litaafbrigði, ljóst
og dökkt, og hafa tvisvar sést hér dökkir fuglar. Þeir evrópsku eru af ljósa
litaafbrigðinu líkt og fuglinn sem sást í Siglufirði. Hann getur því hvort
sem er verið amerískur eða evrópskur og ekki hægt að segja um hvort á
við um þennan fugl.
Fjallvákur er stór ránfugl, brúnleitur. Hann er líkur fálka að stærð, en
vængirnir eru breiðari og lítið eitt lengri. Fjallvákurinn á varpheimkynni
sín í Norður-Evrópu og er þar farfugl og hrekst hingað stöku sinnum á far-
flugi sínu á haustin. Það eru aðallega ungfuglar, sem lenda á flækingi, eins
og umræddur fugl.
Fjallvákar lifa aðallega á nagdýrum. Þeir andæfa allhátt í lofti og steypa
sér svo niður þegar þeir sjá bráð á jörðinni. Þessi sýndi einmitt þannig
hegðun, á útkíkki sínu í Siglufirði í fyrradag. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Á flugi Fjallvákurinn flaug vængjum þöndum og gladdi fuglaáhugamenn á Siglufirði með nærveru sinni.
Fjallvákur heimsótti Siglufjörð
Í HNOTSKURN
»Tvær tegundir váka lifa íNorður-Evrópu, fjallvákur
og músvákur. Báðar tegundir
hafa flækst hingað, en þó mun
færri músvákar en fjallvákar í
áranna rás.
»Heimkynni fjallváka eru íNorður-Ameríku og í
norðanverðri Evrópu og Asíu.
Norðu-Ameríska undirteg-
undin skiptist í dökka og ljósa
fugla. Evrópskir fjallvákar
eru allir af ljósa litaafbrigð-
inu.