Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 27
EVRA á Íslandi – hvenær og
hvernig var yfirskrift ráðstefnu
sem viðskiptaráðuneytið stóð að í
vikunni ásamt HR og Háskólanum
á Bifröst. Þar voru kynntar rann-
sóknir fjögurra háskólastofnana á
umfangi og áhrifum svokallaðrar
evruvæðingar, eða sjálfkrafa upp-
töku evru og annarrar erlendrar
myntar á Íslandi. Þar kom margt
afar athyglisvert fram sem snertir
grundvallaratriði í þessari umræðu
og er fræðilegt innlegg í mikilvæg-
ustu stjórnmálaumræðu dagsins í dag og næstu
missera.
Opin og upplýsandi umræða um framtíðarfyr-
irkomulag peningamálastefnunnar og gjaldmið-
ilsins er mikilvæg. Fyrst og fremst skiptir hún
máli þegar horft er til lengri tíma í efnahagslegu
tilliti. Helstu kostir og gallar þess að taka upp
evru á Íslandi snúa að langtímahagsmunum þó
að umræðan verði ágengari þegar þrengir að í
þjóðarbúinu. Það er þó augljóst að skýr stefna til
framtíðar er nauðsynlegur þáttur í að ná sem
fyrst jafnvægi í efnahagsmálum. Evruumræðan
snýst því bæði um langtíma og skammtíma hags-
muni og ómögulegt er að skilja þar á milli með
rökrænum hætti.
Engin evra án aðildar
Vikan sem nú er að líða undir lok var ein-
staklega tíðindamikil í þessari umræðu og varð-
aði mikilvæga áfanga í þróun umræðunnar. Á
flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar fyrir
réttri viku komu fram afar skýr sjónarmið fram-
kvæmdastjóra stærstu samtaka launþega og
vinnuveitenda. Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Gylfi
Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambandsins, fóru þar hörðum orðum um núver-
andi peningamálastefnu og töldu einboðið að Ís-
lendingar leituðu leiða til að taka upp evru sem
mynt með formlegum hætti, með tvíhliða samn-
ingi við eða aukaaðild að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópusambandsins (EMU).
Ljóst er að margir eru á sama máli enda var
megintilgangur ferðar hinna tvíhöfða Evrópu-
nefndar að kanna lagalegar og pólitískar for-
sendur slíkrar aukaaðildar. Ferð nefndarinnar
var mikilvæg og árangursrík að því marki að
skýr svör bárust við þeim vangaveltum, hvort Ís-
land gæti tengst EMU með einum eða öðrum
hætti. Joaquín Almunia, sem fer fyrir pen-
ingastefnu- og efnahagsmálum í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB) svaraði spurn-
ingum íslensku sendinefndarinnar skýrt og
greinilega, að lagalega væri ekki svigrúm innan
sáttmála ESB að Ísland tæki upp evruna nema í
kjölfar aðildar að ESB.
Ýmsir hafa gælt við þann möguleika að hægt
væri að komast að annarri niðurstöðu á pólitísk-
um vettvangi. Það er þó hæpið að
gefa sér að svo djúp gjá sé á milli
framkvæmdastjórnar ESB og for-
ystumanna Evrópuríkjanna sem
skipa ráðherraráðið að niðurstaðan
verði önnur á síðarnefnda vettvang-
inum. Því síður að til staðar sé næg-
ur pólitískur vilji til að breyta sátt-
mála ESB svo Íslandi geti gerst
aðili að ESB á grundvelli EES-
samningsins.
Einhliða upptaka evru er óraun-
hæf, nema sem tímabundin aðlögun
að aðild að ESB og EMU. Af þeim
sökum er umræðan enn á ný stödd
á krossgötum. Valkostirnir eru aðeins tveir, ann-
aðhvort höldum við fast og óhikað við markaða
peningastefnu og íslensku krónuna eða setjum
stefnuna með afgerandi hætti á aðild að ESB og
í kjölfarið EMU.
Af-evruvæðing eða full evruvæðing
Enn öðrum áfanga í evruumræðunni var náð á
þriðjudaginn var þegar kynntar voru rannsóknir
fjögurra háskólastofnana á umfangi og áhrifum
af svokallaðri evruvæðingu, eða sjálfkrafa upp-
töku evru og annarrar erlendrar myntar á Ís-
landi. Í janúar síðastliðnum ákvað viðskiptaráðu-
neytið að styrkja háskólastofnanirnar fjórar til
rannsókna á þessu fyrirbæri og var afraksturinn
kynntur á vel sóttri ráðstefnu sem ráðuneytið
hélt í samstarfi við Háskólana á Bifröst og í
Reykjavík.
Mikill samhljómur var í máli Friðriks Más
Baldurssonar, Eiríks Bergmanns Einarssonar og
Emils B. Karlssonar sem allir fjölluðu um ofan-
greint viðfangsefni frá ólíkum hliðum.
Að mati Friðriks Más og Richard Portes með-
höfundar hans eru valkostirnir í raun aðeins
tveir. Annaðhvort af-evruvæðing hagkerfisins
eða full evruvæðing þess með upptöku evru sem
myntar. Óbreytt stefna sem hægt og bítandi hef-
ur leitt til aukinnar notkunar erlendra gjald-
miðla á fjármagnsmarkaði, vinnumarkaði og
vörumarkaði, sé til þess gerð að grafa undan
fjármálastöðugleika og skapa frekari óstöð-
ugleika í þjóðarbúskapnum.
Af-evruvæðing felur í sér að undið sé ofan af
lántökum í erlendri mynt, auknar öryggiskröfur
gerðar vegna lánveitinga til innlendra aðila í er-
lendri mynt og aðskilinn innlendi og erlendi hluti
viðskipta bankanna. Að mati Friðriks Más og
Richard Portes myndu slíkar takmarkanir á
markaðshegðun bankanna að öllum líkindum
fæla þá frá landinu. Niðurstaðan yrði því með
öðrum orðum á þá leið að stór hluti bankakerf-
isins yrði í raun sendur úr landi. Slíkar ráðstaf-
anir myndu þar með draga tennurnar úr at-
vinnugrein sem nú stendur undir tíunda hluta
verðmætasköpunarinnar. Niðurstaða fræðimann-
anna er því ótvírætt sú að út frá sjónarmiði fjár-
málastöðugleika sé full aðild að EMU vænleg-
asta leiðin.
Eiríkur Bergmann taldi að evruvæðing væri
óheppilegasti kosturinn í peningamálum, að í
henni fælust flestir gallar upptöku evru en án
ávinnings af EMU aðild og tók Emil í svipaðan
streng.
Auk þeirra þriggja hélt Peter Dyrberg, for-
stöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR, erindi
um lagalega færar leiðir til tengingar Íslands við
evru. Niðurstaða hans var mjög skýr og á sömu
lund og skilaboð Joaquín Almunia degi síðar.
Ekki er lagaleg stoð í sáttmála sambandsins til
upptöku evru án aðildar að ESB.
Lærdómur vikunnar
Lærdómur vikunnar er skýr og á að leiða okk-
ur áfram í umræðunni um framtíðarfyr-
irkomulag peningamála. Í fyrsta lagi er ljóst að
fyrir því eru alvarlegar lagalegar hindranir að
Íslandi bindist EMU án aðildar að ESB. Teljast
verður nær útilokað svo víðtæk pólitísk samstaða
geti myndast innan ráðherraráðs ESB að sátt-
mála Evrópusambandsins verði breytt í þágu Ís-
lands. Sérstaklega ef fyrir liggur að Íslendingar
kæra sig ekki um fulla aðild að Evrópusamband-
inu.
Í öðru lagi eru sterkar vísbendingar um að
hægt og bítandi sé Ísland að færast í átt að
evruvæðingu sem getur haft alvarlegar efna-
hagslegar afleiðingar. Fræðimenn hafa haft uppi
alvarleg varnaðarorð og hvatt stjórnvöld til að
taka af skarið áfram eða aftur á bak.
Það er ábyrgðarhluti að stuðla að óbreyttu
ástandi þegar í því felast stórar hættur og mik-
ilvægt að mörkuð verði skýr stefna til framtíðar.
Það er ekki aðeins gert til að skapa framtíð-
arhagvaxtarskilyrði heldur einnig til að lægja
öldur í efnahagslífinu nú, því óvissa um framtíð-
arfyrirkomulag í peningamálum fælir fjárfesta
frá landinu.
Á fyrrnefndum flokksstjórnarfundi Samfylk-
ingarinnar átti Jónas Haralz, fyrrverandi banka-
stjóri, líklegast kollgátuna um hvaða skref ber
að taka. Að hans mati er eina leiðin til að ganga
úr skugga um hvað í aðild að Evrópusambandinu
felst að hefja aðildarviðræður. Ef samningsnið-
urstaðan verður slíkum annmörkum háð að þjóð-
in sættir sig ekki við, þá og fyrst þá er eðlilegt
að leita sérstakrar úrlausnar fyrir Ísland um að-
ild að EMU án fullrar aðildar að sambandinu.
Eftir Björgvin G. Sigurðsson » Valkostirnir eru aðeins tveir,
annaðhvort höldum við fast
og óhikað við markaða pen-
ingastefnu og íslensku krónuna
eða setjum stefnuna með afger-
andi hætti á aðild að ESB og í
kjölfarið EMU.
Björgvin G. Sigurðsson
Höfundur er viðskiptaráðherra.
Áfangar í evruumræðunni
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 27
Líflaust Lífið við Laugaveginn birtist mönnum með ýmsum hætti. Stundum er þar mikið líf en stundum er þessi aðalverslunargata Reykjavíkur líflítil.
Golli Blog.is
Guðrún Þóra Hjaltadóttir | 26. sept.
Mun offita sliga
heilbrigðiskerfið?
Ef fram fer sem horfir
mun ofþyngd þjóðarinnar
sliga íslenskt heilbrigð-
iskerfi eftir nokkur ár.
Í dag er talið að fimmti
hver Íslendingur sé of
þungur og það er í öllum
aldurshópum.
Það virðist vera eins og yfirvöld átti
sig ekki á ástandinu sem mun koma, því
vandamálið er rétt að byrja og það mun
breiðast hratt út og kosta okkur alveg
glás af peningum.
Ofþyngd er dauðans alvara og þá er
ég ekki eingöngu að tala um fituna sjálfa
heldur alla þá fylgikvilla sem fylgja offitu.
Það hljóta flestir að átta sig á því að lík-
ami okkar er byggður fyrir ákveðna
stærð og þegar stærð okkar verður meiri
en líffærin ráða við lætur líkaminn í sér
„heyra“, það gerir hann svo í formi sjúk-
dóma.
Það verður að takast á við þessa þró-
un og það strax.
Meira: gudruntora.blog.is
Ómar Ragnarsson | 26. september
Halda límingarnar?
Það er títt að tekið sé svo
til orða í seinni tíð að
þessir eða hinir séu að
fara á límingunum út af
einhverju þegar örvænt-
ing eða ótti ná yfirhönd-
inni. Í öllu umrótinu nú, þegar aðvör-
unarorð undanfarinna ára eru að sanna
sig, koma fram ýmsar hugmyndir, sem
benda til þess að skammt sé í að menn
séu að fara á límingunum.
Límingarnar, sem hafa haldið íslensku
samfélagi saman hafa falist í umráðum
og eign þjóðarinnar yfir auðlindum sín-
um á sjó og landi. Þessar límingar verða
að halda, hvað sem öðru líður – það
verður að vera tryggt að þessar auðlindir
komist ekki á örfárra hendur og að lok-
um í hendur útlendinga. …
Meira: omarragnarsson.blog.is
Guðmundur Jónas Kristjánsson | 26. sept.
Þörf á þjóðlegri
stjórnlyndisstefnu?
Í ljósi upplausnar á fjár-
málamörkuðum heimsins í
dag og nánast efnahags-
öngþveitis á Íslandi með
gengishruni, vaxataokri og
verðbólgubáli, má fyllilega
spyrja, hvort einskonar
þjóðleg stjórnlyndisstefna þurfi ekki að
koma til? Ljóst er að peningamálastefna
undanfarinna ára er gjaldþrota. Seðla-
bankinn er eins og náttröll, og ríkisstjórn-
in stendur agndofa og gerir ekki neitt.
Fyrst stærsta fjármálaveldi heims virð-
ist tilbúið að beita einum mestu stjórn-
lyndisaðgerðum sem sögur fara af til
bjargar efnahag sínum, Bandaríkjanna,
hvers vegna ætti þá litla Ísland ekki að
þurfa að gera það sama? Í þeim ólgusjó
sem nú er á peninga- og gjaldeyrismörk-
uðum heims gengur ekki að vera með
nánast minnstu mynt heims fljótandi eins
og korktappa óvarða fyrir veðri og vind-
um. …
Meira: zumann.blog.is
Stefán Gíslason | 26. september
Fróðleiksferða-
mennska?
Á dögunum fékk ég at-
hyglisverðan tölvupóst
frá ungri konu í Svíþjóð,
þar sem hún var að leita
eftir góðum ráðum við
allsérstæðu vandamáli
sem plagar sænsk sveitarfélög og op-
inberar stofnanir. Svíar hafa nefnilega
tekið svo afgerandi forystu í ýmsum
þáttum umhverfismála að þangað
streyma heilu sendinefndirnar víða að til
að fræðast um það hvernig Svíar leysi
hin ýmsu viðfangsefni, svo sem sjálf-
bært skipulag borga og bæja, stjórnun
úrgangsmála og uppbyggingu sjálfbærra
orkukerfa. Nú er svo komið að margir
opinberir starfsmenn hafa ekki undan að
taka við gestum og útskýra fyrir þeim
hvernig hin ýmsu umhverfismál eru leyst
í viðkomandi stofnun. …
Meira: stefangisla.blog.is