Morgunblaðið - 27.09.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 31
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Seðla-
banka Íslands við grein Jóns
Steinssonar í Morgunblaðinu:
„Í grein í Morgunblaðinu föstu-
daginn 26. september segir Jón
Steinsson lektor Seðlabankann sofa
á verðinum. Hann beinir því ein-
dregið til bankans að sjá til þess að
nægilegt magn ríkistryggðra
skuldabréfa sé til á markaðnum til
að anna eftirspurn erlendra aðila
sem hafa áhuga á að taka stöðu
með krónunni og að hann rýmki
reglur um veðhæfar eignir í við-
skiptum við bankann.
Að þessu tilefni er rétt að taka
fram að útgáfa ríkisbréfa var aukin
til muna í ár frá því sem áður var
ráðgert. Þess utan bauð Seðlabank-
inn innstæðubréf til sölu fyrr á
þessu ári. Á dögunum voru inn-
stæðubréfin endurnýjuð – ný bréf
voru í boði á móti þeim sem féllu í
gjalddaga. Í vikunni fór einnig
fram ríkisbréfaútboð á grundvelli
breyttrar áætlunar ríkissjóðs um
slíka útgáfu. Þessari viðbótarútgáfu
var beinlínis ætlað að koma til móts
við þarfir erlendra fjárfesta. Þeir
hafa hins vegar ekki haft þann
áhuga sem vænst var, inn-
stæðubréfin voru að mestu end-
urnýjuð en ekki að fullu. Reglur
Seðlabankans um veðlánaviðskipti
fjármálafyrirtækja við bankann
hafa verið rýmkaðar í áföngum í ár
til þess að greiða fyrir aðgengi að
lausafé og hefur veðlánafyr-
irgreiðsla bankans stóraukist. Hún
er nú trúlega meiri en þekkist víð-
ast annars staðar. Af fram-
angreindu er ljóst að Seðlabankinn
og ríkissjóður hafa þegar gert það
sem Jón Steinsson leggur til. Það
breytir þó ekki því að erfið skilyrði
ríkja á gjaldeyrismarkaði. Vandinn
sem við er að kljást á að drjúgum
hluta rætur að rekja til aðstæðna í
alþjóðlegu fjármálakerfi þessa dag-
ana sem einkennast m.a. af áhættu-
fælni og leit eftir öruggu skjóli.
Í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar
Seðlabankans 11. september sl.
sagði meðal annars: Undanfarin
misseri hefur Seðlabankinn í sam-
vinnu við ríkisstjórnina unnið að
því að auka traust á fjármálakerfið
og virkni markaða. Auk skipta-
samninga við norræna seðlabanka,
útgáfu innstæðubréfa og aukinnar
útgáfu ríkissjóðs á ríkisbréfum hef-
ur gjaldeyrisforðinn verið stækk-
aður umtalsvert. Þá hefur Seðla-
bankinn fært reglur sínar um
veðlánaviðskipti við fjármálafyr-
irtæki nær því sem gildir í Seðla-
banka Evrópu. Áfram verður unnið
að því að treysta innviði fjár-
málakerfisins. “
Útgáfa ríkisbréfa hefur verið
aukin til muna umfram áætlanir
GUNNAR Birg-
isson skoraði í grein í
Morgunblaðinu 11.
september sl. á Kópa-
vogsbúa að koma
hreint fram í sam-
skiptum sínum við
bæjaryfirvöld. „Eyð-
um tortryggni“ eru
nýjustu vígorð bæj-
arstjórans, sem virðist
nú sjá pólitískan and-
stæðing í hverjum
þeim íbúa sem vogar
að lýsa opinberlega
óánægju með stefnu
bæjarins í skipulags-
málum.
Svart verður hvítt
Frá bæjardyrum
okkar, sem höfum þurft að eiga í
samskiptum við bæjaryfirvöld í
Kópavogi vegna þeirrar gegnd-
arlausu ofþéttingarstefnu sem þar
ríkir, eru þessi skrif enn ein
sönnum þess hversu tamt bæj-
arstjóranum er að hagræða sann-
leikanum þegar hann skortir mál-
efnaleg rök. Svart verður hvítt,
austur verður vestur og venjuleg-
ir íbúar breytast í svarna póli-
tíska fjendur. Það er með hrein-
um ólíkindum að bæjarstjóri næst
stærsta bæjarfélags landsins skuli
leyfa sér slíka framkomu.
Rétt skal vera rétt
Í greininni biður bæjarstjórinn
íbúasamtök Lindahverfis að upp-
lýsa hvers vegna forsvarsmenn
þeirra fari að dæmi íbúasamtak-
anna Betri byggðar á Kársnesi og
afþakki „samráðsfundi“ með
Kópavogsbæ. Rétt
skal vera rétt, sama
hvað Gunnar Birg-
isson segir. Sann-
leikurinn í okkar
máli er sá að við af-
þökkuðum ekki einn
einasta fund heldur
voru það bæjaryf-
irvöld sem slitu ein-
hliða því „samráði“
sem hófst við Betri
byggð í Kársnesi í
byrjun síðasta sum-
ars. Þegar í ljós kom
á þriðja „samráðs-
fundinum“ í júní sl.
að íbúasamtökin ætl-
uðu ekki að kvitta
athugasemdarlaust
upp á ráðagerð bæj-
aryfirvalda – með
lófataki – var þeim
einfaldlega þakkað
pent fyrir komuna.
Og síðan ekki sög-
una meir.
Ósannindi
Samráð er í fínu lagi hjá bæj-
arstjóranum, svo framarlega að
allir séu sammála honum. Það
kemur því síður en svo á óvart, að
íbúasamtökin í Lindarhverfi taki
á sig hina verstu mynd í hans
huga, fyrst þeim varð það á að
vera á annarri skoðun. Því miður
getum við í Betri byggð á Kárs-
nesi aðeins ráðlagt systurfélaginu
okkar í Lindarhverfinu að búa sig
undir það versta. Við höfum áður
orðið fyrir barðinu á ósannsögli
bæjarstjórans og framkomu sem
telst seint til þess fallin að „eyða
tortryggni“. Fyrsta gusan kom
skömmu eftir að samtökin okkar
voru stofnuð, en þá fullyrti bæj-
arstjórinn blákalt í viðtali að við
værum ekki til og ættum því ekk-
ert með það að tjá okkur um
skipulagsmál í Kópavogi. Þarna
er ég að vísa í viðtal við bæj-
arstjórann, sem birtist í Morg-
unblaðinu í ágúst í fyrra þar sem
hann staðhæfði án þess að blikna,
að samtökin Betri byggð á Kárs-
nesi hefðu aldrei verið formlega
stofnuð. Hið rétta í því máli er að
samtökin höfðu þá verið starfandi
um allnokkurt skeið eða allt frá
27. júní 2007 þegar formlegur
stofnfundur þeirra fór fram.
Fundarstjóri var hæstarétt-
arlögmaður, lög samtakanna voru
borin upp og samþykkt og sjö
manna stjórn kjörin ásamt tveim-
ur skoðunarmönnum. Þann dag
sem Gunnar sagði ósatt í blaði
allra landsmanna hefði hann ekki
þurft annað en að fletta félaginu
upp í þjóðskrá til að sjá kennitölu
þess.
Að eyða tortryggni
Við sem stöndum að samtökum
íbúa í Kópavogi erum venjulegt
fólk sem gengur það eitt til að
standa vörð um þau sjálfsögðu
mannréttindi að verja lífsgæði og
öryggi fjölskyldna okkar. Gunnar
Birgisson er í vinnu hjá okkur
sem framkvæmdastjóri bæjarins.
Hlutverk hans er að gæta hags-
muna okkar. Í stað þess að sýna
þann manndóm að vinna að far-
sælli lausn mála með samráði við
íbúa hefur Gunnar ítrekað kosið
að troða fremur illsakir við um-
bjóðendur sína á opinberum jafnt
sem óopinberum vettvangi. Telji
Gunnar það mikilvæga forsendu
fyrir góðri samvinnu við íbúa að
tortryggni verði eytt, er kominn
tími til að hann líti í eigin barm
og spyrji sig heiðarlega hversu
vel hans eigin framkoma sam-
ræmist því markmiði.
Bæjarstjóri á hálum ís
Arna Harðardóttir
er ósátt með
framkomu
bæjarstjórans
í Kópavogi
Arna Harðardóttir
» Svart verður
hvítt, austur
verður vestur
og venjulegir
íbúar breytast í
svarna pólitíska
fjendur.
Höfundur er formaður samtakanna
Betri byggð á Kársnesi.
- kemur þér við
Börnum stolið í Asíu
og þau seld
Seðlabanki Íslands
varð út undan
Sérfræðingar meta tjón
samráðsins
Fasteignamarkaðurinn
í heljargreipum
Allt um Airwaves-
hátíðina sem er
framundan
Haustlitirnir æðislegir
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir til ykkar allra sem gerðuð mér
75 ára afmælisdaginn þann 14. september
ógleymanlegan. ABC barnahjálp hefur móttekið
framlag ykkar með þökkum.
Guð og gæfan fylgi ykkur öllum.
Marinella Ragnheiður Haraldsdóttir.