Morgunblaðið - 27.09.2008, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 37
Ég minnist Sigur-
björns Einarssonar
með einstöku þakk-
læti. Fyrstu kynni
mín af honum voru gegnum sálma
hans, sem ég las og söng við guð-
þjónustur í kirkjum og í kapellu Há-
skólans, þegar ég stundaði nám við
guðfræðideild 2001–2006. Sálmar
hans hrifu hjarta mitt. Prédikanir
og greinar eftir hann voru kynntar
og alltaf var talað um hann af mikilli
virðingu.
Eftir útskriftina tók við reynslu-
tími, sem var oft mjög einmanaleg-
ur. Á námstímanum var ég um-
kringd skólafélögum og kennurum,
sem alltaf var hægt að spjalla við,
tala um guðfræði og fá stuðning. Nú
átti ég að klára mig sjálf. Ég hélt
áfram að læra og lesa, bók eftir bók,
ásamt því að fá þjálfun í að vera
Sigurbjörn Einarsson
✝ Sigurbjörn Ein-arsson fæddist á
Efri-Steinsmýri í
Meðallandi 30. júní
1911. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 28.
ágúst síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hallgríms-
kirkju 6. september.
spítalaprestur og að
sinna sálgæslu. Ég
lærði um fjölmenn-
ingu og mismunandi
trúarbrögð. Mér
fannst ég oft vera
alein mitt í mikilli
hringiðu skoðana og
hugmynda. Það var
þá, sem ég leitaði í
bók Sigurbjörns
„Meðan þín náð,“ og
þar fékk ég svör, sem
gáfu mér frið. Ég var
þakklát fyrir að eiga
þessa bók. Ég skrifaði
Sigurbirni jólakort og þakkaði hon-
um fyrir hjálpina. Hann sendi mér
jólabréf til baka með mikilli blessun.
Hvílíkur heiður að eiga bréf frá hon-
um.
Svo lengi sem menn hafa lagt
stund á guðfræði hafa raddir og
hugmyndir verið mismunandi. Þar
deila menn um hver sannleikurinn
sé. Jesús minnti á og varaði við að
margir falsspámenn yrðu á vegi
okkar, sem myndu reyna að afvega-
leiða okkur. Í hinu mikla hafi hug-
mynda og skoðana hef ég oft fundið
fyrir þreytu og áhyggjum yfir að ég
gæti aðhyllst skoðanir og hugmynd-
ir falsspámanna.
Dag einn í vor var ég í þungum
þönkum, alein og í hálfgerðu
myrkri.
Allt í einu var eins og brosað væri
til mín. Augu mín beindust að bók í
bókahillunni: „Um landið hér“ eftir
Sigurbjörn Einarsson, með mynd af
honum utan á. Átti ég virkilega
þessa bók líka? Ég greip hana með
mikilli ákefð, settist niður og las
þangað til tárin streymdu niður
vanga mína. Þarna var allt, svo
dásamlega úskýrt, sem ég ekki hafði
skilið í Biblíunni. Orð hans töluðu
inn í hjarta mitt, sefuðu mig og gáfu
mér frið.
Ég vil gefa öllum það ráð að út-
vega sér bækur eftir Sigurbjörn
Einarsson. Þeir sem þrá huggun og
skilning á Biblíunni lesi prédikanir
hans og orð.
Rit hans ættu að vera fast náms-
efni í guðfræðideild. Hvílíkur auður
það er fyrir Íslendinga að eiga verk
Sigurbjörns. Ég mun ekki hafa
bækur hans faldar í hillum heldur
handhægar á borði.
Ég sendi Sigurbirni afmæliskort
og þakkaði honum fyrir stuðning-
inn. Fallegt bréf fékk ég til baka
með dýrmætri blessun. Ég fann
hversu mjög ég styrktist af blessun
hans. Í Sigurbirni Einarssyni hafði
ég fengið traustan og kærleiksríkan
vin, í sálmum hans, prédikunum og
blessun hans.
Þakkir séu Guði fyrir líf Sigur-
björns, rit og störf.
Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir.
Elsku mamma. Þú
varst víðsýn kona og
lést þig varða aðstæður þeirra sem
minna mega sín, hvar í heiminum
sem er. Þú kenndir mér að við eig-
um að hafa skoðanir og kemur við
hvað gerist í veröldinni, að allir eiga
sama rétt óháð litarhætti. Þú
kenndir mér að meta bækur sem
voru gull í þínum augum, natni þín
við bækur var mikil. Þú bjóst í einu
Sigríður Ingibjörg
Eyjólfsdóttir
✝ Sigríður Ingi-björg Eyjólfs-
dóttir fæddist á
Bjargi í Borgarfirði
eystra hinn 30. júlí
1921. Hún lést á
sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum 17.
september síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Bakkagerðiskirkju
25. september.
fámennasta þorpi
landsins við frum-
stæðar aðstæður þess
tíma, en fróðleiksfýsn
þín kallaði á upplýs-
ingar um hinn stóra
heim.
Söngur þinn fyrir
svefninn, þulurnar og
ljóðin, dansinn eftir
danslögunum í út-
varpinu, allur fróð-
leikurinn um gamla
tíð, hvílíkur hafsjór.
Þú kenndir mér að
þekkja blóm, tré og
jurtir sem hér vaxa. Þú kenndir mér
líka að bragða á þeim til að ná betri
tengingu við náttúruna. Þetta er
öldungis rétt. Þetta tileinkaði ég
mér og hef reynt að miðla því. Þú
hafðir yndi af að flakka um og njóta
óspilltrar náttúru, að klöngrast um
fjöll og firnindi og teyga í þig fersk-
leikann þótti þér ekki ónýtt og ég er
fegin því að bröltið við Kárahnjúka
fór fram hjá þér.
Ljóðin þín sem þú skildir eftir
mættu vera fleiri, þú áttir svo auð-
velt með að yrkja, en vegna hlé-
drægni þinnar var því ekki flíkað.
Þú varst stolt kona mamma mín og
barst höfuðið hátt. Veraldlegir hlut-
ir skiptu þig litlu máli, utan bók-
anna. Ég er glöð með að börnin mín
skyldu alast upp í nágrenni afa og
ömmu, það gerir minningabókina
þeirra auðugri.
Ég kveð þig mamma mín. Ég er
glöð að þú ert laus frá því lífi sem
ekki var orðið neitt líf, en ég á eftir
að sakna þín mikið. Þú skilur eftir
stóra bók minninga í huganum mín-
um, hana varðveiti ég eins og þú
varðveittir bækurnar þínar. Bless.
Þín
Ásta.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku amma Fríða.
Okkur langar að
minnast þín með
nokkrum orðum.
Það eru margar minningar sem
rifjast upp þegar við setjumst niður
og hugsum um gamla tíma úr Kára-
húsi. Jólaboðin eru sérstaklega of-
arlega í huga okkar þegar stórfjöl-
skyldan kom saman. Borðið
svignaði undan kræsingunum og
alltaf var glatt á hjalla, mikið hlegið
og gantast. Aldrei klikkuðu klein-
urnar hennar ömmu þó engin væri
uppskriftin, slatti af þessu og slatti
af hinu. En alltaf urðu þær bestar í
heimi. Engum sem til þekkti brá í
brún, þó að stór hluti af búslóðinni
Hólmfríður Kristjana
Grímsdóttir
✝ HólmfríðurKristjana
Grímsdóttir fæddist
á Húsavík 24. júlí
1920. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 1.
september síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Húsavíkurkirkju 13.
september.
væri komin eld-
snemma út á pall á
laugardagsmorgni til
að viðra, og allt var
þrifið hátt og lágt.
Ekki var bíllinn und-
anskilinn. Þú lést
ekkert stoppa þig.
Það er okkur ofarlega
í huga þegar þú, kona
á sjötugsaldri, fórst
og trekktir upp vél-
sleðann hans Helga
Þórs og þeystir á hon-
um í vinnuna í snar-
vitlausu veðri og
ófærð. Eða þegar þú fórst á Bronc-
onum með stóru dekkjunum í búð-
ina að versla, því alltaf þurfti að
vera til nóg af öllu, ef gesti bæri að
garði.
Tíminn er voldugur hringur,
hann hefur ekkert upphaf og engan
endi. Hann kemur aftur, enn og aft-
ur að eilífu. Við kveðjum þig með
miklu þakklæti og virðingu.
Hvíl í friði, elsku amma.
Agnar Kári, Heiðrún,
börn og barnabörn.
Sigurlaug (Didda), Hilmar
og börn.
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
kærleika í ýmsum myndum við fráfall og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
ELÍNBORGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Vésteinsholti
í Haukadal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu í Hafnar-
firði fyrir hjúkrun og elskulega umönnun í erfiðum
veikindum hinnar látnu og nærgætni og hlýju við
aðstandendur.
Guðmundur Jónsson, Magnea E. Auðunsdóttir,
Sigurlaug J. Jónsdóttir, Ólafur K. Guðmundsson,
Kristín Jónsdóttir, Haukur Björnsson,
Kristbjörg Jónsdóttir, Jón Hreiðar Hansson,
Vésteinn Jónsson, Þorbjörg Jónsdóttir,
Jón Friðrik Jónsson, Jenný L. Kjartansdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Hjartans þakklæti sendum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
JÓHÖNNU FRIÐRIKSDÓTTUR
frá Látrum í Aðalvík,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar mánu-
daginn 1. september.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum
öldrunardeildar Fjórðungssjúkrahúss Ísafjarðar
fyrir hlýju og góða umönnun.
Högni Sturluson,
Mikkalína Pálmadóttir, Halldór G. Þórðarson,
Matthías Pálmason, Súsanna Sigurðardóttir,
Guðmundur Pálmason, Ingibjörg S. Torfadóttir,
Jóna Sigurlína Pálmadóttir,
Elísabet María Pálmadóttir, Rúnar Guðmundsson,
Sigurveig Pálmadóttir,
Ingibjörg Ottósdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn
og aðstandendur.
✝
Okkar ástkæra
GUNNLAUG F. OLSEN,
Kirkjuvegi 14,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
25. september.
Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 2. október kl. 14.00.
Jón Kr. Olsen,
Júlía S. Olsen,
Helga R. Taylor, Jessie W. Taylor,
Henry Olsen,
Rut Olsen, Ingólfur Halldórsson,
Gunnlaug Olsen, Hólmar Gunnlaugsson,
Jóna Kr. Olsen,
Helgi Olsen,
Kristján Helgi, Emelía Rut, Ásthildur Eva
og aðrir afkomendur.
✝
Okkar ástkæri
EÐVALD EINAR GÍSLASON,
Suðurbraut 22,
Hafnarfirði,
lést mánudaginn 22. september á Landspítala
háskólasjúkrahúsi.
Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 30. september kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Ágústa Hinriksdóttir,
Ragnhildur Rósa Eðvaldsdóttir,
Andrea Gísladóttir, Ólafur Þ. Jóhannesson,
Andrea Eðvaldsdóttir,
Katrín Rósa Eðvaldsdóttir, Þorsteinn Helgi Stefánsson,
Fannar Eðvaldsson, Árdís Ethel Hrafnsdóttir,
Eyrún Eðvaldsdóttir, Gunnar Örn Jóhannsson
og barnabörn.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800