Morgunblaðið - 27.09.2008, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sudoku
dagbók
Í dag er laugardagur 27. september,
271. dagur ársins 2008
Orð dagsins: „Á því munu allir þekkja,
að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér
berið elsku hver til annars.“ (Jh. 13, 35.)
Veit hann Jón Helgi af þessu? Áþetta virkilega að ganga svona
viku eftir viku – mánuð eftir mán-
uð? Kannski ég tali við versl-
unarstjórann í þetta sinn.“ Þannig
hugsar Víkverji ráfandi á göngum
uppáhaldsmatvöruverslunarinnar
sinnar, sem verður bráðum fyrrver-
andi uppáhaldsmatvöruverslunin
hans. Þetta er Krónan á Bíldshöfða,
og vandamálið er það, að maður fer
ekki svo í eina litla verslunarferð
þangað, að maður lendi ekki í vand-
ræðum með að finna út verð á þeim
vörum sem maður vill kaupa. Vík-
verji er satt að segja orðinn lang-
þreyttur, þótt honum þyki búðin
góð, vöruúrvalið vel fullnægjandi og
verðið á matvælunum gott.
Frammi við dyrnar inn í búðina
er gjarnan raðað vörum á tilboðs-
verði, eða vörum sem sérstök at-
hygli er talin þurfa að vekja athygli
á. Nú í vikunni var kominn þangað
kælir með ávaxtasafa frá nokkrum
fyrirtækjum. Aðeins tvær tegundir
voru verðmerktar og safinn sem
Víkverja langaði í var ekki þar á
meðal. Þetta er ekkert einsdæmi.
Verðmerkingar vantar iðulega, eða
þá að vöru hefur verið raðað í hillur
merktar allt annarri vöru, þannig
að kúnninn þarf að leita að réttu
verðmerkingunni. Þetta er óvið-
unandi, þetta er óþolandi, full-
komlega metnaðarlaust og í raun
ólöglegt.
x x x
Lágur aldur afgreiðslufólksins erhluti af vandamálinu og til
mikils vansa. Það þýðir ekki að
spyrja krakka rétt kominn af sár-
asta barnsaldri hvort ekki sé til
kúmen, en viðkomandi hefur ekki
hugmynd um hverslags fyrirbæri
kúmen er. „Spurðu þennan í grænu
peysunni,“ er ömurlegasta svar sem
Víkverji fær í verslunum, sér-
staklega þegar hann byrjaði á að
ræða við þann í grænu peysunni og
er búinn að fara í gegnum stelpuna
í rauða bolnum, eina kassadömu,
þann í bláu skyrtunni og þann í
íþróttagallanum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 móka, 4 stúf-
ur, 7 meðfædd tönn í
barni, 8 kvæði, 9 rekkja,
11 meðvitund, 13 dygg-
ur, 14 hestar, 15 verk-
færi, 17 borðar, 20 eld-
stæði, 22 svæfill, 23
ganga, 24 nálægt, 25
mannsnafni.
Lóðrétt | 1 atgervi, 2
víðan, 3 mjög, 4 brjóst, 5
fær af sér, 6 magrar, 10
kostnaður, 12 máttur, 13
viður, 15 móskan, 16
bárur, 18 hillingar, 19
sefaði, 20 lykkja, 21
slysni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gremjuleg, 8 arkar, 9 bælið, 10 róa, 11 garfa,
13 rýrar, 15 hafís, 18 subba, 21 tin, 22 ljóni, 23 æfing, 24
ósannindi.
Lóðrétt: 2 ríkar, 3 marra, 4 umbar, 5 eflir, 6 þang, 7 áð-
ur, 12 frí, 14 ýsu, 15 hóls, 16 Fróns, 17 stinn, 18 snæði,
19 blind, 20 agga.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. O–
O–O Bd7 9. f3 Be7 10. g4 h6 11. Be3 b5
12. h4 Hc8 13. Bd3 Re5 14. g5 Rxd3+
15. Dxd3 Rh5 16. Hdg1 g6 17. f4 b4 18.
Rce2 e5 19. Rf3 Bb5 20. Dd2 Bc6 21.
Dxb4 a5 22. Dc4 d5 23. Db3 a4 24. Dd3
exf4 25. Rxf4 Rxf4 26. Bxf4 a3 27. b3
dxe4 28. Dc3 O–O 29. gxh6 Bf6 30. Re5
Bb7 31. De3 De7 32. Rg4 Hc3 33. Db6
Hc6 34. De3 Hc3 35. De1 Hfc8 36. Hh2
Staðan kom upp í heimsmeist-
aramóti kvenna sem lauk fyrir skömmu
í Nalchik í Rússlandi. Hin 14 ára Yifan
Hou (2557) frá Kína hafði svart gegn
Bathuyan Mongontuul (2406) frá
Mongólíu. 36… Hxb3! 37. axb3 a2 38.
Da5 a1=D+ 39. Dxa1 Bxa1 40. h5 Kh7
41. hxg6+ fxg6 42. Hd2 e3 43. Bxe3
Da3+ 44. Kd1 Bf3+ 45. Ke1 Bxg4 46.
Hxg4 Bc3 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hamman í klípu.
Norður
♠K52
♥107
♦ÁKDG64
♣73
Vestur Austur
♠Á9 ♠G108643
♥KD62 ♥954
♦75 ♦1083
♣KD654 ♣2
Suður
♠D7
♥ÁG83
♦92
♣ÁG1098
Suður spilar 3G.
Þrátt fyrir opnun suðurs á eðlilegu
laufi valdi Bob Hamman að spila út
litlu laufi frá hjónunum fimmtu. Það
var illa heppnað. Norðmaðurinn Boye
Brogeland fékk þannig ódýran slag, en
líka mikilvægar upplýsingar. Spilið er
frá Buffett-bikarnum. Hamman hafði
sagt 1♥ við 1♣, þannig að Boye hafði
glögga mynd af spilinu. Eftir útkom-
una eru tíu slagir öryggir, en Boye náði
þeim ellefta þannig: Hann tók slag á
tígul og spilaði síðan ♠K. Besta vörn
vesturs er að drepa og spila tígli, en þá
var hugmynd Boye að taka tíglana og
skilja eftir ♠D, ♥Á og ♣ÁG10 heima.
Spaði á drottninguna átti síðan að af-
greiða Hamman – ef hann fer niður á
eitt hjarta og ♣KDx er ♥Á tekinn og
millilaufi spilað. En þessi ráðagerð fór
fyrir lítið, því Hamman gaf 11. slaginn
strax með því að spila ♥K.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur áform og það er auðvelt
fyrir þig að trúa því að alheimurinn hafi
það líka. Það eru engar tilviljanir. Hver
atburður er mikilvægur þáttur á þroska-
braut sálar þinnar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú leikur tveimur skjöldum og því
er erfitt að komast áfram. Sársauki í for-
tíðinni er yfirstaðinn, en enn þarf að vinna
úr gömlum minningum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ætlarðu aldrei að hætta að tala!
Þótt það sé gaman hjá þér í góðra vina
hópi verður þú að leyfa öðrum að komast
að. Líka þeim sem segja frá leiðindum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nýir vinir leggja sig fram við að
kynnast þér. Ef þú efast um hvernig eigi
að bregðast við má lesa sér til í bókum um
kurteisissiði. Þá má alltaf nýta sér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú kynnist nýju fólki og spennandi
hlutir gerast. Þú leitar ekki vina að
ástæðulausu. Þú leitar einhvers og munt
finna það á hárréttu augnabliki.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur mikinn skilning á því sem
fólk vill. Þú sérð um leið drifkraft og áætl-
un allra sem þú hittir. Nýttu þér þetta
með því að uppfylla þarfir einhvers.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur þörf fyrir að vera aðlaðandi,
tengdur öðrum og jákvæður. Önnur hvöt
verður henni yfirsterkari. Þú brosir bara
og brátt brosir þú líka innanfrá.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarfnast umhyggju og af
henni færðu nóg. Nafnið þitt er eins og
töfraþula. Þú verður gagntekinn í kvöld
þegar einhver segir nafn þitt ástríðufullt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Bilið milli þess staðar sem þú
ert á og þess sem þú vilt vera á virðist
stórt, en í raun ertu á réttum stað. Þegar
þú sættir þig við það færist þú fram á við.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vinir þínir bjóða þér að gera
hluti sem hljóma ekki vel í fyrstu. Láttu á
það reyna. Þér kemur vel saman við fólk
sem hefur aðrar hugmyndir en þú um
skemmtun.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það væri indælt ef sambönd
væru nákvæmlega eins og mann dreymir
um. Eiginlega þarftu að þjálfa aðra í um-
gengni við þig. Farðu fínt í hlutina.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er kyrrð – sérstaklega innra
með þér – sem leyfir þér að slaka á.
Róaðu hugann, finndu vandann sem vill
ekki þagna. Sjáðu fyrir þér lausnina á
honum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
27. september 1922
Íslensk mynt fór í dreifingu í
Reykjavík. Upphaflega voru
slegnir 10 aurar og 25 aurar
en krónan var slegin 1925.
27. september 1966
Rússneska skemmtiferðaskip-
ið Baltika lagði af stað frá
Reykjavík áleiðis til Miðjarð-
arhafs og Svartahafs með 421
íslenskan farþega. Ferðin var
umtöluð, m.a. vegna áfeng-
isneyslu.
27. september 2005
Davíð Oddsson lét af ráð-
herraembætti, sem hann hafði
gegnt samfellt síðan 30. apríl
1991, eða í rúm fjórtán ár.
Lengst af var hann forsætis-
ráðherra, í rúm þrettán ár,
lengur en allir aðrir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Jón E. Árna-
son, Hjallabraut
2, Hafnarfirði,
verður sextugur
mánudaginn 29.
september. Í til-
efni dagsins býð-
ur afmælisbarnið
vinum, vanda-
mönnum og vel-
unnurum að þiggja léttar veitingar
að heimili sínu á afmælisdaginn frá
kl. 20.
60 ára
Erna Sól Sigmarsdóttir, Sig-
urbjörg María Kristjánsdóttir og
Hrafnhildur Jónsdóttir héldu þrisv-
ar sinnum tombólu í sumar, í
Spönginni í Grafarvogi. Þær söfn-
uðu 7.728 kr. sem þær gáfu Barna-
spítala Hringsins.
Hlutavelta
„ÉG hef nánast alltaf haldið upp á afmælið með
svipuðum hætti enda er mikið afmælisfólk í fjöl-
skyldunni,“ segir Helgi Pálsson rafiðnfræðingur
sem fagnar 45 ára afmæli sínu í dag. Helgi er gift-
ur Guðrúnu Þórarinsdóttur og eiga þau tvo syni,
en hann ætlar að njóta dagsins með allri stórfjöl-
skyldunni. „Við notum tækifærið til að hittast í af-
mælum og einhverjar veitingar verða á borðum.“
Helgi ákvað að söðla um starfsvettvang fyrir
um áratug og útskrifaðist úr rafiðnfræði frá
Tækniskóla Íslands árið 2000, en hafði þá lokið
meistaranámi í rafvélavirkjun frá Iðnskólanum.
Honum er þó fleira til lista lagt því hann er mikill tónlistarunnandi,
starfaði m.a. sem tónlistarkennari „í gamla daga“, og syngur jafn-
framt annan tenór í Karlakór Kjalarness. „Svo er ég reyndar líka að
spila í Lúðrasveit Mosfellsbæjar núna, svaraði neyðarkalli þar þegar
vantaði trompetleikara og ég held að ég hafi híft meðalaldurinn veru-
lega upp,“ segir Helgi hlæjandi og útskýrir að flestir í sveitinni séu á
aldrinum 12-20 ára. Hann lætur ekki þar við sitja heldur er að end-
urmennta sig til kennsluréttinda hjá Háskólanum á Akureyri. Þrátt
fyrir annríkið ætlar hann að gefa sér tíma til að halda upp á afmælið í
dag og fara með köku til vinnufélaganna á mánudag, en hana hyggst
hann reyndar ekki baka sjálfur. „Nei, það er víst fullt af mönnum sem
hafa lært það sérstaklega og ætli ég nýti mér þá ekki.“ una@mbl.is
Helgi Pálsson er 45 ára í dag
Blæs í lúðra og syngur tenór
6 9 2 5 4
8 1 6 3
8 7 6
1 7 8
2 8 3 9 6 4
5 1 3
2 7 4
4 5 7 2
5 9 6 8 4
6 5 2 9
9 1 7 4
9 4 6
2 9
3 1
7 4
6 2 7
1 5 8 2
2 8 6 5
2 9 8 1 3 5 7 4 6
3 4 7 2 8 6 5 9 1
5 6 1 9 4 7 3 2 8
4 3 2 6 5 8 1 7 9
7 5 6 4 9 1 2 8 3
8 1 9 3 7 2 4 6 5
1 8 5 7 2 9 6 3 4
9 2 4 5 6 3 8 1 7
6 7 3 8 1 4 9 5 2
5 9 7 1 3 8 2 4 6
3 2 8 7 4 6 9 1 5
6 4 1 5 9 2 7 8 3
7 8 5 9 1 4 3 6 2
4 6 9 2 5 3 1 7 8
1 3 2 8 6 7 5 9 4
2 5 6 4 7 9 8 3 1
9 1 3 6 8 5 4 2 7
8 7 4 3 2 1 6 5 9
5 9 4 1 6 3 8 7 2
1 7 8 2 5 9 6 3 4
6 3 2 8 4 7 9 5 1
3 2 6 4 9 1 5 8 7
9 8 1 7 2 5 3 4 6
4 5 7 6 3 8 1 2 9
7 6 5 9 8 4 2 1 3
8 1 9 3 7 2 4 6 5
2 4 3 5 1 6 7 9 8
2 8 7 1
3 9 4 8
7 3
6 2 5 7 8
7 4
4 3 7 2 5
4 6
5 6 1 9
6 9 2 5
Frumstig Miðstig Efstastig Lausn síðustu Sudoki.
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is