Morgunblaðið - 14.10.2008, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Hvernig gengu gjaldeyris-
viðskipti í gær?
Það var misjafnt eftir bönkum en
ákveðnar takmarkanir voru enn í gildi
að leiðbeinandi tilmælum Seðlabank-
ans frá því fyrir helgi. Seðlabankinn
segir, að á meðan viðskiptabankarnir
þrír séu að hefja starfsemi eftir þær
breytingar sem átt hafi sér stað á eign-
arhaldi þeirra hafi orðið tafir á gjaldeyr-
isviðskiptum. Hnökrarnir fari þó minnk-
andi. Tilmæli frá Seðlabanka Íslands frá
því sl. föstudag um temprun viðskipta
eru enn í gildi.
Hvenær má eiga von á að gjaldeyris-
viðskiptin komist í samt horf?
Landsbankinn hefur hafið starfsemi
undir merkjum nýs eiganda og hann
sinnti hluta gjaldeyrisviðskipta í dag.
Þegar formbreytingu annarra viðskipta-
banka er lokið hefja þeir einnig gjald-
eyrisviðskipti, samkvæmt upplýsingum
Seðlabankans.
Hvað eru margir atvinnulausir
á Íslandi núna?
Í gær voru 3.143 skráðir atvinnulausir
hjá Vinnumálastofnun. Að meðaltali
voru 2.229 manns atvinnulausir í sept-
ember. Það er 4% aukning frá því í
ágúst. »12
Er atvinnuleysi alls
staðar á landinu?
Nei, „þenslan kom aldrei hingað og
kreppan nær ekki sömu tökum á okkar
samfélagi og höfuðborgarsvæðið finnur
nú fyrir illu heilli,“ segir sveitarstjóri í
Langanesbyggð. Á Þórshöfn vantar
starfsmenn hjá mörgum fyrirtækjum.
»6
Hvað missa margir vinnuna í bönk-
unum vegna þjóðnýtingar þeirra?
Það er enn óvíst en allt bendir til að þeir
verði færri en búist var við. Líklega
missa 300 manns vinnuna í Lands-
bankanum í stað 500 eins og sagt var í
fyrstu. »12
Á ég rétt á endurgreiðslu vegna
pakkaferðar sem ég hætti við að
fara í vegna efnahagsástandsins?
Nei, samkvæmt lögum áttu ekki rétt á
endurgreiðslu vegna gjaldeyrisskorts
eða ótryggs efnahagsástands. Forfalla-
tryggingar kreditkortanna taka heldur
ekki til ástandsins. Neytendasamtökin
vísa í almennar reglur Samtaka ferða-
þjónustunnar. Skv. þeim er heimilt að
afpanta gegn endurgreiðslu að frá-
dregnu staðfestingargjaldi svo lengi
sem það er gert a.m.k. 4 vikum fyrir
brottför. Með 14-28 daga fyrirvara
endurgreiðast 75% af verðinu en 50%
sé afpantað með 2-14 daga fyrirvara.
Séu minna en 2 dagar í ferð er allt far-
gjaldið óafturkræft. »12
Hvað með þá sem vilja losna
við bíla á bílalánum?
Fjármögnunarfyrirtæki segjast reyna að
koma til móts við lántakendur, t.d. með
því að semja um að þeir borgi aðeins
vexti í tiltekinn tíma. Fyrirtækin geta
leyst til sín bíla standi fólk ekki í skilum.
Ef söluverð þeirra dugar ekki til að
borga upp lán lendir mismunurinn á
skuldaranum. »16
Hvenær má búast við því, að einhver
festa komist á gengi krónunnar?
Gengi krónunnar er mjög á reiki enda
eru nær engin viðskipti með hana á er-
lendum gjaldeyrismörkuðum. Við nú-
verandi aðstæður vilja erlendir fjárfesta
ekki líta við íslensku krónunni. Til að
styrkja krónuna þarf annaðhvort meiri
gjaldeyrisforða eða að stór, erlend fjár-
málastofnun ábyrgist viðskipti með
hana. »19
Lesendur geta sent Morg-
unblaðinu spurningar sem
brenna á þeim vegna að-
stæðna sem uppi eru í
þjóðfélaginu, og leitast
verður við að svara þeim.
Spurningar má senda á
netfangið frett@mbl.is
S&S
Morgunblaðið/Frikki
Atvinnuleysi Margir í byggingariðnaði hafa misst vinnuna undanfarnar
vikur og hefur atvinnuleysi aukist nokkuð frá því í ágústmánuði.
Enn voru takmarkanir á
sölu og kaupum á gjald-
eyri í gær sem og annarri
hefðbundinni bankaþjón-
ustu. Seðlabankinn full-
yrðir að hnökrar í gjald-
eyrisviðskiptum „fari
minnkandi.“ Áfram sé
unnið að því að koma slík-
um viðskiptum í rétt horf í
samstarfi Seðlabanka Ís-
lands og annarra fjár-
málastofnana.
Eftir Guðmund Sv. Hermannsson
og Önund Pál Ragnarsson
BJÖRGVIN G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra staðfesti í gær að
forsvarsmenn lífeyrissjóða hefðu
áhuga á að kaupa og reka eignir
og rekstur Kaupþings. Vinna er í
gangi að frumkvæði stórra
lífeyrissjóða við að kanna fýsileika
þess að sjóðirnir komi að kaup-
unum.
„Ég get staðfest að þeir kynntu
hugmyndir um þetta, en ég hef
ekki séð útfærðari hugmynd um
þetta,“ sagði Björgvin við mbl.is.
„Þeir eiga gríðarlega mikið und-
ir í Kaupþingi, en voru þarna að
segja frá frumhugmyndum um
þetta,“ sagði hann. Björgvin sagði
nokkra ráðherra hafa fundað með
fulltrúum lífeyrissjóða út af öðrum
málum, en þá hefði þetta borið á
góma. Hann útilokaði ekki að slík
kaup yrðu framkvæmanleg, en
sagðist ekki vita hversu erfitt eða
auðvelt væri að útfæra það.
Um ástæður þess að lífeyrissjóð-
irnir kynnu að óska viðræðna um
kaupin sagði Þorgeir Eyjólfsson,
forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, að aðalástæðan væri sú að
gæta hagsmuna sjóðfélaga.
„Við teljum að mikil verðmæti
og þekking séu fólgin í Kaupþingi.
Veruleg verðmæti hafa tapast en
við sjáum í þessum viðskiptum
möguleika til ávinnings sem kæmi
sjóðfélögum lífeyrissjóðanna til
góða,“ sagði hann við mbl.is.
Hugmyndin, sem nú er unnið
með, gerir ekki ráð fyrir að lífeyr-
issjóðirnir eigi meira en 51% hlut í
kaupunum og því ljóst að fleiri
fjárfestar þurfa að koma að borð-
inu. Að sögn Þorgeirs er stefnt að
því að fyrir liggi um hádegisbil í
dag hvort þeir sendi sameiginlega
formlegt erindi til stjórnvalda þar
sem óskað verði eftir viðræðum.
Stjórnir lífeyrissjóða sem áttu
umtalsverðan hlut í Kaupþingi
munu funda áfram í dag.
Lífeyrissjóðir íhuga
að kaupa Kaupþing
Myndu þó ekki eignast meira en 51% af eignum og rekstri
Í HNOTSKURN
»Kaupþing náði að ryðja sértil rúms í þrettán löndum,
þar á meðal alls staðar á Norð-
urlöndunum, í Bandaríkjunum
og víðar. Í lok júní 2008 voru
3.207 starfsmenn hjá Kaup-
þingi og dótturfélögum.
»Gildi – lífeyrissjóður ereinn þeirra sjóða sem íhuga
kaupin. Hann hefur verið val-
inn besti lífeyrissjóðurinn á Ís-
landi undanfarin þrjú ár hjá
tímaritinu Investment & Pen-
sions Europe (IPE).
Morgunblaðið/Golli
Kaupþing Nýir eigendur að eignast
bankann á næstu dögum?
ÞRÍR grunnskólanemar urðu hlutskarpastir í ljóða-
samkeppni grunnskólanna á vegum Íslenskrar mál-
nefndar og Samtaka móðurmálskennara. Fengu þeir
verðlaun úr hendi Þórarins Eldjárns, formanns dóm-
nefndar. Vinningshafarnir eru (f.v.) Elín Elísabet Ein-
arsdóttir, Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir og Guð-
mundur Loki Rúnarsson. Verðlaunin voru afhent í
Þjóðarbókhlöðunni á fæðingardegi Steins Steinars 13.
október. Verðlaunaljóðin verða birt í Morgunblaðinu
auk sjö annarra ljóða. Á fjórða hundrað ljóða barst.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ungskáldin verðlaunuð fyrir ljóðagerð
ÖSSUR Skarphéðinsson, starfandi
utanríkisráðherra, segir það af og
frá að íslenskir diplómatar hafi beðið
ESB um fjárstuðning vegna efna-
hagskreppunnar hérlendis eins og
fullyrt sé í þýskri útgáfu Financial
Times í gær. Samkvæmt upplýsing-
um FT áttu diplómatarnir að hafa
sett sig í samband við ráðgjafa Ben-
itu Ferero-Waldner sem fer með
utanríkismál, Olli Rehn sem fer með
stækkunarmál og Joaquín Almunia
sem fer með gjaldmiðilsmál. Össur
segir íslenska diplómata vissulega
hafa átt fundi með fulltrúum þriggja
skrifstofa hjá ESB. „Fundirnir voru
einungis til að veita upplýsingar um
stöðu mála á Íslandi og hvernig þau
væru að þróast,“ segir Össur. „En
það hefur alls ekki verið óskað eftir
fjárstuðningi frá Evrópusamband-
inu.“ »17 orsi@mbl.is
Hafa alls ekki
biðlað til ESB UMFERÐARÓHAPP varð í gær-kvöldi þegar vöruflutningabíll með
tank fullan af fljótandi sykri valt á
hliðina í hringtorginu norðan við
Hvalfjarðargöngin um klukkan 19.
Bílstjórinn sagðist ekki kenna sér
meins en var engu að síður sendur á
sjúkrahús til skoðunar.
Ekki urðu teljandi tafir á umferð
að sögn lögreglunnar en skömmu
eftir óhappið var hafist handa við að
koma bifreiðinni á réttan kjöl og
fjarlægja hana. Ekki lak neinn sykur
úr bílnum.
Vörubíll valt
við göngin