Morgunblaðið - 14.10.2008, Síða 4
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmi | Upp úr miðjum nóv-
embermánuði í fyrra blasti við
Hólmurum óvenjuleg sjón þegar
stórir síldarbátar sigldu framhjá
Stykkishólmi inn á Breiðasund til
síldveiða. Þar var að finna mikið
magn af síld og skipin veiddu vel.
Nú virðist sama sagan að vera að
endurtaka sig. Það finnst mikið af
síld á Breiðasundi og um helgina
voru tveir síldarbátar þar á veiðum,
Birtingur NK og Ásgrímur Hall-
dórsson SF.
Birtingur fékk 200 tonn af ágætri
síld í fyrsta kasti en reif nótina og
gat því ekki haldið áfram veiðum.
Ægir Birgisson, skipstjóri á Ás-
grími Halldórssyni, segir að hann
hafi fengið gott kast af stórri og fal-
legri síld. Meðalþyngd síldarinnar er
um 300 grömm. Þetta er fín síld sem
fer öll í frystingu Að sögn Ægis er
töluvert af síld á Breiðasundi.
Hann segir að hann hafi ekki mik-
ið farið yfir svæðið en hann hafi
fundið tvær mjög þéttar lóðningar.
„Við erum ekki með réttu veið-
arfærin, við erum með allt of stórar
nætur og því er hætta á að rífa þær á
þessari grunnslóð,“ segir Ægir.
Hann segir að það hafi fundist
talsvert af smásíld frammi í Breiða-
firði og Kolluál. Engin síld finnst
ennþá í Grundarfirði, þar sem mikið
magn veiddist í fyrra. Ægir segist
vera bjartsýnn á að síldin fari að
ganga inn á öll sund í Breiðafirði. „Í
fyrra var vertíðin á Breiðafirði mjög
góð og sérstakt var að geta stundað
síldveiðar í skjóli fyrir stormum sem
þá voru tíðir. Það er vonandi að
sama sagan endurtaki sig,“ segir
Ægir.
Afla beggja skipanna, Ásgríms
Halldórssonar SF og Birtings NK,
verður landað á Hornafirði, en þang-
að er langt að sigla eða 300 mílur.
Moksíld
við Stykk-
ishólm
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Síldveiðar Fjöldi skipa við síldveið-
ar á Breiðasundi á síðasta ári.
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VLADIMIR Ashkenazy tónlistar-
maður og Ólafur Elíasson listamað-
ur hafa ásamt Peer Teglgaard
Jeppesen arkitekt og Jasper
Parrott ráðgjafa sent frá sér eft-
irfarandi bréf:
„Ofviðrinu sem geisar nú í kring-
um Ísland, bankakerfi þess og efna-
hagslíf, fylgja óneitanlega spurn-
ingar um framtíð Tónlistar- og
ráðstefnuhússins í Reykjavík.
Með þessu bréfi viljum við sýna
íslensku þjóðinni skilyrðislausan
stuðning okkar við að þetta mikil-
væga verkefni verði leitt til lykta.
Því er ætlað og það mun í bráð
skerpa og prýða höfnina og mið-
borgina. Það er ekki ætlun okkar
að hverfa frá verkefninu – eins og
aðrir hafa gert – en við viljum
koma á framfæri áhyggjum okkar
og samúð vegna þess sem nú dynur
á íslensku þjóðinni.
Við erum staðráðnir í að halda
áfram vinnu okkar samkvæmt
ströngustu gæðastuðlum því þetta
verkefni er tákngervingur drauma
allrar þjóðarinnar. Það mun veita
innblástur sem ímynd sköpunar-
krafts, sem ímynd Íslendinga og
einstaks lands þeirra, sögu og
menningar. Við þær aðstæður sem
hafa skapast eru þessi gildi mikil-
vægari en nokkru sinni.
Í þeirri brýnu og vandlegu yfir-
legu sem endurskipulagning yfir-
stjórnar verkefnisins krefst mun-
um við, hið skapandi teymi, gera
okkar besta til að beina sjónum að
mikilvægi verkefnisins fyrir ís-
lenskt samfélag. Það hefur alla
burði til að verða kraftmikil þunga-
miðja við að endurskapa efnahags-
legan stöðugleika og endurreisa
velmegun. Þessari uppbyggjandi
framkvæmd verður þess vegna að
halda áfram samkvæmt áætlun.
Byggingunni er ætlað að hýsa
væntingar íslensku þjóðarinnar
með hætti sem engar aðrar bygg-
ingar megna. Hún verður vett-
vangur fyrir menningarlega við-
leitni hennar og farvegur þekking-
ar; brú til umheimsins, vel til þess
fallin að laða að athygli, velþóknun
og fjármagn erlendis frá. Íslend-
ingar eiga þetta frábæra hús skilið
og við munum öll leggjast á eitt til
þess að vígsla þess heppnist sem
best.“
Vladimir
Ashkenazy
Tónlistarhúsið verði klárað
Ólafur
Elíasson
Morgunblaðið/RAX
Tónlistarhúsið Óvissa hefur ríkt um áframhaldandi framkvæmdir við ráð-
stefnu- og tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn.
Peer
Teglgaard
Jasper
Parrott
MAÐUR á fertugsaldri hefur verið
sakfelldur af ákæru fyrir að stela
bensíni hjá Olís á Hellu og taka tvo
nuddpotta fyrir hálfa milljón út í
reikning hjá Norm-X en selja þá
öðrum án þess að borga Norm-X.
Ennfremur var hann sakfelldur fyr-
ir skjalafals með því að svíkja bíl af
konu og telja henni trú um að kaup-
andi bílsins væri ekki hann sjálfur
heldur annar maður á afsali. Mann-
inum var hinsvegar ekki gerð refs-
ing. Er hann margdæmdur og hlaut
m.a. þriggja og hálfs árs dóm fyrir
nauðgun og fleiri brot í desember
2007 og þar áður fékk hann tveggja
og hálfs árs dóm árið 2003. Dóm-
urinn taldi að ef málið nú hefði ver-
ið dæmt með fyrra málinu hefði
refsing ekki orðið þyngri og var því
ekki dæmd refsing nú.
Sekur en
ekki refsað
HÓPUR nemenda í Álftamýrarskóla hefur nú
lokið sérstökum áfanga í hjólafærni sem miðar
að því að þjálfa hjólreiðafólk í að nota hjól eins
og ökutæki. Hugmyndafræðin að hjólafærni
barst frá Bretlandi en síðastliðið vor var breskur
kennari ráðinn til landsins til að þjálfa íslenska
kennara í greininni. Börnin sem nú hafa útskrif-
ast í hjólafærni hafa fengið sex klst. kennslu og
lokið 1. og 2. stigi í greininni. Á 1. stigi er farið í
grundvallaratriði eins og að þekkja hjólið og
hafa fulla stjórn á því. Á 2. stigi er kennt hvernig
hjóla skal á götu og farið í umferðarreglur og
hvernig á að taka af stað og stansa og að fara um
gatnamót.
Allir nemendurnir í Álftamýrarskóla stóðust
námskeiðið og voru sérstaklega duglegir en þeir
eru fyrstu nemendur landsins sem boðið er að
læra hjólafærni. orsi@mbl.is
Fyrstu nemendurnir í hjólafærni útskrifast með glans
Morgunblaðið/Frikki
Læra að nota hjólin sem ökutæki í umferð
„VIÐ erum að
bíða eftir niður-
stöðum frá sér-
fræðingahópnum
[frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum]
sem er á Íslandi,“
sagði Árni M.
Mathiesen fjár-
málaráðherra
sem nú situr árs-
fund Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (IMF) og Al-
þjóðabankans í Washington. „Þegar
þær liggja fyrir, sem ég geri ráð fyr-
ir að verði um miðja vikuna, þá ættu
að vera forsendur til þess að meta
stöðuna og taka ákvarðanir.“
Árni sagði ekkert liggja fyrir um
hvernig IMF kunni að koma hér að
málum. „Það er það sem menn ræða
þegar og ef menn komast að þeirri
niðurstöðu að biðja um aðstoðina.“
Árni kvaðst ekkert geta tjáð sig
um mögulega stærðargráðu slíkrar
aðstoðar. Málið væri ekki komið á
það stig. Hann sagði lítið hafa gerst í
viðræðum við sjóðinn um Ísland í
gær. Þá fór aðalfundur sjóðsins og
Alþjóðabankans fram. gudni@mbl.is
Beðið niðurstaðna hjá
sérfræðingum IMF
Fjármálaráðherra væntir álits þeirra um miðja vikuna
Í HNOTSKURN
»Taldar eru meiri líkur enminni á því að Íslendingar
óski eftir aðstoð IMF.
»Sjóðurinn hefur lýst viljatil að lána fé til ríkja sem
þarfnast aðstoðar vegna fjár-
málakreppunnar.
» Ísland hefur fjórum sinn-um fengið lán hjá IMF.
Árni M.
Mathiesen
UM fimm þúsund lítrar af svartolíu
láku úr tanki olíuflutningabíls sem
lenti utan vegar í norðanverðum
Hólmahálsi á milli Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar í gær. Ökumaður slapp
með minniháttar meiðsl.
Lögreglan á Eskifirði girti vett-
vanginn af og tókst fljótlega að
stöðva olíulekann. Var Slökkvilið
Fjarðabyggðar sent af stað til að
vinna að mengunarvörnum á vett-
vangi. Tókst að forða því að olía læki
í sjóinn og verður farið aftur stað í
dag til að hreinsa upp síðustu olíu-
leifarnar með sérstökum hreinsiefn-
um slökkviliðsins
Svartolía
slapp úr tanki
Slys Ökumaður slapp með minni-
háttar meiðsli og olían náðist upp.