Morgunblaðið - 14.10.2008, Page 20
|þriðjudagur|14. 10. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Systkinin Heiðrún Birta og
Hafþór Bjartur Sveinsbörn urðu bæði fluglæs á
5. aldursári. Bækur og lestur hafa skipað stóran
sess í lífi þeirra frá fæðingu, en móðir þeirra
Halldóra Björk Guðmundsdóttir (Dórý) sagðist
hafa lært um mikilvægi bókarinnar í leikskóla-
kennaranámi, áður en hún varð móðir. Þau
fengu nýverið verðlaun á uppskeruhátíð sum-
arlesturs á Bókasafni Reykjanesbæjar sem
sprettlesarar en þau lásu samtals 132 bækur.
Kvöldlestur eru gæðastundir fjölskyldu
þeirra Heiðrúnar Birtu og Hafþórs Bjarts,
barna Halldóru Bjarkar Guðmundsdóttur og
Sveins Inga Þórarinssonar. Yngri er síðan
Snævar Ingi 3 ára sem leiddi blaðamann inn í
herbergi sitt til að sýna honum bækurnar sínar.
Það stefnir í að hann verði jafnfljótur að læra að
lesa og systkini hans en hann þekkir orðið flest-
alla stafina og dundaði við að setja bækur í
bókapoka sinn, svo hann væri tilbúinn í næsta
ferðalag. Ekkert barnanna vill vera bókalaust í
ferðalögum. „Við höfum lesið fyrir börnin frá
því að þau voru nýfædd og við skiptum okkur
niður á þau, því við lítum á lesturinn sem gæða-
stundir. Heiðrún Birta er reyndar farin að lesa
sjálf á kvöldin og gulrótin er að ef hún er komin
í rúmið klukkan 9 þá má hún lesa til 9:30. Hún
vill sjaldan missa af kvöldlestrinum. Hún kemur
líka oft inn til strákanna þegar við erum að lesa
og hlustar,“ sagði Dórý í samtali við blaðamann.
Hafþór Bjartur byrjar á því að lesa fyrir for-
eldra sína, en síðan lesa þau fyrir hann. „Með
þessu fyrirkomulagi höldum við honum við,“
sagði Dórý en Hafþór Bjartur er einn í leik-
skóla.
Árangur systurinnar hvatning til lesturs
Dórý sagði að Heiðrún Birta hefði farið að
sýna stöfunum áhuga þegar hún var 2 ára og að
hún hefði einungis nýtt þann áhuga til að efla
hana í lestrinum. Rúmum tveimur árum síðar
var hún orðin fluglæs en þá var Dórý heima í
fæðingarorlofi með Hafþór Bjart og gat því nýtt
tímann með Heiðrúnu Birtu. Hafþór Bjartur
var hins vegar tilraunadýr, eins og Dórý orðar
það. „Eftir að hann fæddist fór ég á lestr-
arnámskeið hjá Helgu Sigurjónsdóttur og ég
notaði hann til að sannreyna aðferðirnar. Hann
hafði ekki þennan áhuga sem Heiðrún Birta
hafði, en eftir að hún var krýnd lestrardrottning
í sumarlestri Bókasafns Reykjanesbæjar haust-
ið 2007 var hann ákveðinn í að læra að lesa svo
hann gæti tekið þátt næsta sumar.“ Hafþór
Bjartur hélt sig við áform sín, tók þátt í sum-
arlestrinum í sumar og las 58 bækur.
Í herbergjum allra barnanna eru bókahillur
fullar af bókum þannig að þau hafa ávallt að-
gang að fjölbreyttum bókakosti. Uppáhalds-
bækurnar eru gjarnan lesnar aftur og aftur en
auk bókaúrvalsins heimavið eru bókasafnsferðir
tíðar og Dórý sagðist mikið nota bókakoffortið á
leikskólanum Heiðarseli þar sem strákarnir
nema. Hún sagðist auk þess mjög ánægð með
þá áherslu sem starfsfólk leikskólans leggur á
lestur.
Hvorki Heiðrún Birta né Hafþór Bjartur
voru tilbúin til svara spurningum blaðamanns,
en hann fékk þó að vita að slökkviliðsbækur
væru í uppáhaldi hjá Hafþóri Bjarti, sem auk
þess langar að verða slökkviliðsmaður, en Heið-
rún Birta er hrifin af bókum Astridar Lindgren.
Stelpan Fíasól er einnig ofarlega á lista, sem og
aðrar bækur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur.
Núna eru bækurnar um Nancy gjarnan á nátt-
borðinu.
Fluglæs á fimmta ári
Litið er á kvöldlestur sem gæða-
stundir á heimili þriggja fróð-
leiksfúsra systkina í Reykja-
nesbæ sem vita fátt skemmti-
legra en að lesa bækur - ekki síst
á ferðalögum með fjölskyldunni.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sjáðu þennan! Hafþór Bjartur og Heiðrún Birta skoða saman bók um hákarla.
Bækur alltaf með í för Snævar Ingi setur
uppáhaldsbækurnar sínar í bókapoka svo
hann sé tilbúinn í næsta ferðalag.
Hvenær er best að byrja að lesa?
Það er aldrei of snemmt að byrja að lesa fyrir
barnið, því er best að byrja sem fyrst. Lesið
stutt í fyrstu en lengið lestrarstundina eftir
því sem barnið eldist.
Hversu mikilvægur er lestur börnum?
Barn sem lesið er fyrir frá unga aldri er lík-
legra til þess að verða vel læst. Með því að
lesa fyrir barnið eflist málþroski og stuðlað
er að góðu lestraruppeldi.
Hvernig er best að haga lestrarstundum?
Gera ráð fyrir bókum og daglegum lestri í
uppeldi barnsins. Best er að hafa bækur
áberandi á heimilinu og í barnaherberginu
þannig að barnið geti ávallt valið lestur.
S & S
Skelfing í skammdeginu er yfirskrift
Rökkurdaga þetta haustið. Rökk-
urdagar er heiti á menningar-
viðburðum og uppákomum sem
Fræðslu- og menningarmálanefnd
Grundarfjarðarbæjar stendur fyrir
dagana 24. – 26. október og er þetta
fimmta árið í röð sem slíkir Rökk-
urdagar eru haldnir. Að þessu sinni
hefur nefndin ákveðið að gera draug-
um og draugagangi hátt undir höfði
m.a. með smásögusamkeppni þar
sem vegleg verðlaun verða í boði auk
þess sem boðið verður upp á kvik-
myndasýningar, upplestur og aðra
viðburði þessa daga, samkvæmt aug-
lýsingu frá Fræðslu- og menningar-
málanefnd. Það hefur örugglega eng-
an í undirbúningsnefnd
Rökkurdaganna órað fyrir því þegar
yfirskriftin var ákveðin að hún yrði
jafn nærri raunveruleikanum og nú
hefur komið á daginn í heimi fjármál-
anna.
Það var þó enga skelfingu að sjá í
hópi eldri borgara af Snæfellsnesi
sem komu saman til árlegs fagnaðar í
Samkomuhúsinu í Grundarfirði sl.
laugardagskvöld. Hátt í 90 manns á
besta aldri af öllu Snæfellsnesi voru
þá saman komnir til að eiga saman
skemmtilega kvöldstund í boði Eldri-
borgafélags Grundarfjarðar. Til
þjónustu við undirbúning og fram-
kvæmd lögðu félagar úr Lionsklúbbi,
Kvenfélagi og Rauðakrossdeild stað-
arins gjörva hönd á plóg og gleði og
ánægja skein úr hvers manns svip.
Það var greinilegt að þar gilti hið
fornkveðna að maður er manns gam-
an.
Góður prestur er mikilvægur hverju
byggðarlagi og kannski aldrei mik-
ilvægari en þegar viðsjárverðir tímar
ganga yfir líkt og nú. Á sunnudaginn
var nýr prestur settur í embætti í
Setbergsprestakalli. Aðalsteinn Þor-
valdsson heitir hann og var hann
vígður til starfa af biskupi Íslands
séra Karli Sigurbjörnssyni sunnu-
daginn 5 október sl. Innsetningu hins
nýja prests Grundfirðinga annaðist
prófasturinn í Snæfellsness- og Dala-
prófastdæmi, sr. Gunnar Eiríkur
Hauksson. Í sinni fyrstu predikun
hvatti hinn nýi sóknarprestur söfnuð
sinn til að sýna styrk í trúnni. Eftir
athöfnina var þéttskipað í safn-
aðarheimilinu í kirkjukaffi.
Útgerð og fiskvinnsla, undirstaða
mannlífs í Grundarfirði, gengur sinn
vanagang þótt vindar blási í banka-
heiminum. Hjá Guðmundi Runólfs-
syni hf. er hefðbundin fiskvinnsla í
fullum ganga alla daga, í Fisk Sea-
food er unnin rækja, þar innan sömu
veggja er einnig verið að vinna sæ-
bjúgu á vegum Reykofnsins ehf. Hjá
Soffaníasi Cecilssyni hf. er áherslan
á saltfiskverkun, Tangi vinnur hinar
ýmsu fisktegundir í neytendapakkn-
ingar og Sægarpur ehf vinnur beitu-
kóng til útflutnings. Til þess að sjá
þessum fyrirtækjum fyrir hráefni
róa bátar og skip af ýmsum stærðum
á haf út hvern dag og færa aflann að
landi eftir mislanga útveru undir
kjörorðinu þeir fiska sem róa. Sem
sagt, lífið er fiskur.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Þeir fiska sem róa Útgerð og fiskvinnsla gengur sinn vanagang.
GRUNDARFJÖRÐUR
Gunnar Kristjánsson fréttaritari
úr bæjarlífinu