Morgunblaðið - 14.10.2008, Side 41
eins og ég gat að láta kvefið
ekki stöðva mig, en undir lokin
átti ég engra kosta völ. Ég er
fegin að hafa fengið annað tæki-
færi.“
Spurð um ástæður þess að
hún sagði skilið við hljómsveita-
lífið og ákvað að fara sínar eigin
leiðir, segir hún að það hafi tek-
ið sig tíma að finna kjark. „Ég
lenti í einhvers konar tilvist-
arkreppu og varð að endurmeta
samband mitt við tónlistina og
lífið almennt. Á því tímabili
hætti ég alveg að gera tónlist og
ákvað svo síðar að byrja alveg á
byrjuninni. Út frá því uppgötv-
aði ég að ég vildi gera allt öðru-
vísi tónlist og frá öðru sjón-
arhorni en áður.“
Undarlegir tímar
Vanalega kemur El Perro del
Mar fram með hljómsveit en á
Airwaves spilar hún ásamt ein-
um aðstoðarmanni. Hún segir
fjárhagsástæður ráða því að hún hafi ekki náð að mæta
með alla hljómsveitina. „Ástandið er slæmt og alveg
sérstaklega slæmt hjá ykkur. Tímarnir yfirhöfuð eru
mjög undarlegir og ég er að vonast til þess að list-
sköpun geti hjálpað til við að lífga upp á ástandið,“ seg-
ir Sarah, uppörvandi að lokum.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
HIN sænska Sarah Assbring
trúir augljóslega á hugmyndina
um annað tækifæri. Eftir nokk-
urra ára hljómsveitarbrask í
mislukkuðum teknósveitum í
Gautaborg sem skiluðu henni
litlum árangri ákvað hún að
leggja árar í bát og endurmeta
líf sitt frá grunni. Það var svo á
afar fögru augnabliki í frekar
dapurlegu fríi á Spáni sem hún
fékk hugmyndin um El Perro
del Mar (ísl. Sjávarhundurinn).
Sarah sat þá ein á ströndinni,
þunglynd og í annarlegu hugar-
ástandi þegar heimilislaus hund-
ur ráfaði til hennar og gerði sér
dælt við hana. Af einhverjum
ástæðum varð þetta augnablik
til þess að Sarah ákvað að tjá
tilfinningar sínar í gegnum tón-
list. Stuttu síðar hóf hún að
hljóðrita sín eigin lög. Afar ang-
urværa og þægilega blöndu af soul-tónlist og banda-
rískri sönglagahefð og þá byrjuðu hjólin loks að snúast.
Með kvef í fyrra
Sarah átti að spila á Iceland Airwaves-hátíðinni í
fyrra, en örlögin gripu inn í.
„Ég fékk eitt versta tilfelli af kvefi sem ég hef upp-
lifað á ævinni,“ segir Sarah sem hefur aldrei komið til
Reykjavíkur áður, á öllum sínum þrjátíu árum. „Það
var ömurlegt því ég hlakkaði svo mikið til. Ég reyndi
Iceland Airwaves: El Perro del Mar
Annað tækifæri
Sarah Assbring Komst ekki á hátíðina í
fyrra vegna heiftarlegs kvefs.
El Perro del Mar kemur fram á Nasa á fimmtudags-
kvöldið kl. 22.15.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 41
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
RIGHTEOUS KILL kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
QUEEN RAQUELA kl. 8 B.i. 12 ára
BABYLON A.D. kl. 10 B.i. 16 ára
EMMA ROBERTS ER NÝJA STELPAN,
Í NÝJA SKÓLANUM ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU TIL VANDRÆÐA!
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
QUEEN RAQUELA kl. 8 B.i. 12 ára
PATHOLOGY kl. 10 B.i. 16 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára
QUEEN RAQUELA kl. 10:10 B.i. 12 ára
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Á AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRAMTÍÐAR
SPENNUTRYLLIR Í
ANDA BLADE RUNNER
SÝND Á AKUREYRI
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
S.V. - MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Á SELFOSSI
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
EINHVER HROTTALEGASTA
SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA,
Í ANDA HINNA MÖGNUÐU
FLATLINERS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI
-BBC
-HJ.,MBL
Vertu viðbúin(n) vetrinum
Glæsilegt sérblað tileinkað vetrinum
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 31. október.
• Utanlandsferðir yfir vetrartímann.
• Skemmtileg afþreying innanlands.
• Vetraríþróttir - góð hreyfing og útivera.
• Hvað má gera sér til skemmtunar í vetur,
leikhús fleira.
• Teppi, kerti, bækur og annað hlýlegt.
• Haustskreytingar.
Meðal efnis er:
• Skemmtilegir og kósý hlutir fyrir
heimilið.
• Matarboð á veturna.
• Hvernig má verjast kvefi og öðrum
leiðindakvillum sem fylgja vetrinum.
• Bíllinn í vetrarbúning.
• Góð og hlý föt fyrir alla aldurshópa.
• Andleg heilsa.
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 27. október.
FRÆGT er að Robert De Niro og Al
Pacino léku báðir í Godfather II án
þess þó að deila nokkru sinni tjald-
inu. Árið 1995 gátu þessir frægustu
leikarar sinnar kynslóðar enn treyst
á ljómann af fornri frægð, og því var
tilhugsunin um samstarf De Niros
og Pacinos spennandi þegar Michael
Mann leiddi þá saman í hinni ágætu
spennumynd Heat. Sú stund er hins
vegar löngu liðin. Enginn glans er
lengur yfir þessum þreyttu stjörn-
um og hin afleita spennumynd
Hefndarmorð (Righteous Kill) sýnir
svo ekki verður um villst að báðir
hafa þeir félagar gefist upp á ný-
sköpun á hvíta tjaldinu. Persón-
urnar sem þeir leika hér, löggurnar
Turk og Rooster, eru hálfgerðar
skrípamyndir af þeim sögu-
persónum sem De Niro og Pacino
eru kunnir fyrir að túlka, og ekkert
lífsmark er að sjá á frammistöðu
þeirra. Þar með er tilverugrundvell-
inum að mörgu leyti kippt undan
myndinni því hún stendur á brauð-
fótum þegar kemur að handriti eða
röklegri sögusmíð og hefur því lítið
upp á að bjóða utan við samspil
„stórleikaranna“. Hér er á ferðinni
raðmorðingjamynd sem er með öllu
ófrumleg í efnistökum og fer end-
anlega í vaskinn þegar kemur að úr-
lasun fléttunnar og uppgjöri sögu-
hetjanna í lokin.
KVIKMYND
Laugarásbíó og Sambíóin
Akureyri
Leikstjórn: Jon Avnet. Aðalhlutverk: Al
Pacino, Robert De Niro, Curtis Jackson
og Carla Gugino. Bandaríkin, 101 mín.
Hefndarmorð (Righteous Kill)
bnnnn
Þreyttar stjörnur
Heiða Jóhannsdóttir
Stórleikarar „Enginn glans er lengur yfir þessum þreyttu stjörnum og hin
afleita spennumynd . . ,“ segir meðal annars í dómi.