Morgunblaðið - 26.10.2008, Page 10

Morgunblaðið - 26.10.2008, Page 10
10 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Vinstrihreyfingin – grænt framboðhefur boðað þingsályktun- artillögu um að fella niður fyrirhug- aða loftrýmisgæzlu Breta við Ísland í desember næstkomandi. VG er að reyna að notfæra sér óvinsældir brezkra stjórn- valda hér á landi til að eyðileggja loftrýmisgæzl- una. Enda vill flokkurinn „hætta öllum slík- um æfingum“. Þetta kemur ekki á óvart. VG og forverar þess flokks hafa alltaf verið á móti því að reynt væri að tryggja öryggi og varnir Íslands. Það kemur meira á óvart að ráð- herra í ríkisstjórninni, Össur Skarp- héðinsson, taki undir þennan mál- flutning.     Hann sagði í fréttum Stöðvar 2fyrir rúmri viku: „Við teljum að á þessari stundu sé ekki þörf á því að Bretar komi okkur til varnar. Sam- skipti ríkjanna hafa þróazt með þeim hætti að ég held að það myndi misbjóða þjóðarstolti Íslendinga, ef ofan í það sem gerzt hefur, kæmu Bretar hingað til að verja okkur.“     Rök íslenzkra stjórnvalda fyrir þvíað koma á loftrýmisgæzlunni á sínum tíma voru ekki aðeins þau að það þyrfti að verja Ísland. Þau voru líka að það væru sameiginlegir hagsmunir NATO-ríkjanna að stórt svæði á Norður-Atlantshafinu væri ekki án alls eftirlits. Á þetta féllust önnur NATO-ríki. Loftrýmisgæzlan er sameiginlegt verkefni Atlants- hafsbandalagsins.     Það er hvorki hagsmunum Íslandsné NATO í hag að koma loft- rýmisgæzlunni í uppnám. Við eigum að fást við Breta eins og siðaðir menn, með samningum og ef þörf krefur fyrir dómstólum, en ekki með stóryrtum yfirlýsingum. Og alls ekki blanda öryggi á Norður-Atlantshaf- inu inn í núverandi deilu. Össur Skarphéðinsson Höldum kúlinu, Össur                            ! " #$    %&'  ( )                             * (! +  ,- . / 0     + -                                    12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  ( ! !   ! !  !       " # $ #  %       &      &'  *$:;<               !  "    #  $   %    &    $   !  =  3'45>4 >*?5@ AB *C./B?5@ AB ,5D0C).B ( (   (   (          (                               *! $$ : *!   ) *  + # * #  "  &#  ,& ?2  ?!  ?2  ?!  ?2  ) "#+  -  % ./ &' < !-                      '      !(   " %  $ & $ ) *$ 6  2  +  '      )'  !*   !,   ,! "   " !*   $  -       ! $  %            ,$  %$  :   '  .     ,$    )'   / % "            -     $      0     01 &22 &#3 & &-  % 4  5 Kaupþing, eða 51% í þeim banka, eins og Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyr- issjóðs verslunarmanna, lagði til að stefnt yrði að? Hafa forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, sem bera ábyrgð á því að ávaxta okkar pund eftir bestu getu, svo okkar sem eig- um sjóðina bíði nú sem bjartast ævikvöld, sýnt í verki að þeir eigi það traust skilið að þeim verði trúað fyrir því að eiga og reka í okkar nafni stærsta banka lands- ins? Ég held ekki. Til að byrja með held ég að forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, fram- kvæmdastjórar og stjórnarformenn þurfi að gera mjög nákvæma grein fyrir því hver þeirra þáttur hefur verið í fjármögnun bankanna. Hverjir þeirra hafa þegið boðsferðir á vegum banka og fjárfestingarfélaga? Hverjir þeirra hafa farið í lúxusboðsferðir, segjum safaríveiðiferðir til Afr- íku, exótískar veiðiferðir til Suður-Ameríku, ótrú- legar lúxusskíðaferðir, veiðiferðir hér innanlands og aðrar lúxusferðir? Er það ekki staðreynd að ákveðnir forsvars- menn og stjórnarmenn lífeyrissjóða hafa feng- ið glýju í augun við tilhugsunina um að fá, þótt aðeins væri um skamma hríð, að taka þátt í lífi einkaþotuliðsins, sem er að vísu í dag að stórum hluta fyrrverandi einkaþotulið? Hefur það að þiggja boðsferðir, þar sem hægt er að baða sig upp úr kampavíni og úða í sig styrjuhrognum, ekki haft nein áhrif á fjárfesting- arstefnu lífeyrissjóð- anna? Þessu þurfa for- svarsmenn lífeyr- issjóðanna að svara áður en þeir fara fram á það að við, eig- endur lífeyrissjóð- anna, svo mikið sem hugleiðum að treysta þeim fyrir meiri fjár- ráðum en þeir þegar hafa. Ítrekað hefur verið reynt að fá þessa menn til að svara slíkum spurningum, án árang- urs enn sem komið er. ÞAÐ verður að segja Jóni Sigurðs- syni, formanni stjórnar Fjármálaeft- irlitsins, til hróss, að hann sló út af borðinu hugmyndir forsvarsmanna nokkurra lífeyrissjóða um að þeir fengju að kaupa meirihlutann í Kaup- þingi, bara sisvona. Blessunarlega hafði Jón vit fyrir bankaráðherranum og augljóslega er ekki vanþörf á því að spakir menn hafi sem oftast vit fyrir honum. Eða hvað finnst mönnum um það að ráðherra bankamála virðist með orðum sínum og æði í fjölmiðlum þeg- ar vera farinn að ganga út frá því sem gefnu að fyrrum eigendur og stjórnendur viðskiptabank- anna þriggja séu bara ótíndir glæpamenn sem hann ætlar að hirða allar eignir af?! Hefur ráð- herrann enga dómgreind? Ef hann hefur hana, hvers vegna notar hann hana ekki? Það væri vitaskuld algjörlega út í hött af stjórn- völdum að fara á þessu stigi að selja frá sér meiri- hlutann í stærstu eigninni sem nýlega hefur verið þjóðnýtt. Bara hugleiðing í þá veru er fáránleg. Hvers vegna ættu lífeyrissjóðirnir að njóta for- gangs, þegar og ef að því kemur að hinar þjóð- nýttu eignir verða einkavæddar á ný? Hvað með jafnræðisregluna? Hvað með okkur hin? Kannski rekur einhverja lesendur minni til þess að ég skrifaði viðhorfspistil hér í Morgunblaðið í apríl 2005 undir fyrirsögninni „Halló! Halló! Vaknið Íslendingar!“ Í þessum pistli gagnrýndi ég nokkuð harkalega hvernig ríkisstjórnin og Alþingi stóðu að einka- væðingu bankanna á sínum tíma, því mér sýndist sem klúður væri í uppsiglingu hvað varðaði und- irbúning að einkavæðingu Símans. Þessi litli pist- ill minn vakti slík viðbrögð almennings á Íslandi, að örfáum dögum síðar var ég komin í frí frá Mogganum mínum kæra til þess að leiða fjölda- hreyfingu almennings ásamt félaga mínum Orra Vigfússyni og við stofnuðum Almenning ehf. sem reyndi í félagi við aðra fjárfesta að fá að kaupa Símann. Ekki veit ég hversu oft við Orri höfum prísað okkur sæl að hafa ekki fengið að kaupa, en það er önnur saga! Hvers vegna ættum við, sem eigum lífeyrissjóð- ina, að vera því fylgjandi að sjóðirnir okkar kaupi Agnes segir … Ég verð að berjast við af- borganir af íbúðarláninu þennan mánuðinn. Það sjást engar einkaþotur á flugvellinum og engir milljarðamæringar eru sjáanlegir. Katrín Sigmundsdóttir þegar blaða- maður The Daily Telegraph hitti hana á Laugaveginum. Ísland verður ekki selt á bruna- útsölu. Össur Skarphéðinsson iðn- aðarráðherra, á fundi Samfylking- arinnar. Bindum nú enda á þennan skrípaleik. Bandaríski sagnfræðingurinn Paul Ken- nedy, í grein í The Wall Street Journal, þar sem hann segir ekki viðeigandi að ríki í ör- yggisráðinu geti greitt atkvæði um hern- aðaraðgerðir án þess að það geti stutt slíka aðgerð með eigin hermönnum. Ríkisstjórn Íslands og seðlabanki eru engu hæfari sem stjórnendur nútíma- hagkerfis en þau væru sem stjarnvís- indamenn. Robert Z. Aliber, prófessor emeritus við há- skólann í Chicago, í grein í Morgunblaðinu um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Ég held að Guð geti ekki verið hlutur á himnum er gengur undir karlmanns- nöfnum. Daphne Hampson, breskur guðfræðingur og trúarheimspekingur, sem yfirgaf bresku þjóðkirkjuna eftir að hún neitaði að vígja hana og aðrar konur til prests. Það hefur sem betur fer ekki orðið neitt gengisfall á íslenskum bókmenntum. Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri, á bókamessunni í Frankfurt. Ég ræði þetta ekki. Umræðuefnið er ekki þess virði. Hvers vegna? Vegna þess að þetta er ekki svona? Ég á vini sem eru svartir, sígaunar og Japanir, þeirra á meðal einn sem vinnur við það að greina kyn alifugla. Luis Aragonés, knattspyrnustjóri Fener- bahçe, þegar hann var spurður hvort hann hygðist biðja Thierry Henry, framherja Barcelona, afsökunar á niðrandi ummælum um litarhátt hans fyrir nokkrum árum. Nú fer ég fram á það að fá að vera „memm“ sem Nýja Guðbjörg og fá allar mínar skuldir settar á 0,-. Guðbjörg eða Nýja Guðbjörg í bréfi til Vel- vakanda. ’ Spá Þýska fréttatímaritið Der Spiegel segir þægindin á enda. Ummæli Þorgeir Eyjólfsson Hafði vit fyrir ráðherra Spakur Jón Sigurðsson, formaður Fjármálaeft- irlitsins hafði, góðu heilli, vit fyrir bankamálaráð- herranum, Björgvin G. Sigurðssyni, og sló út af borðinu hugmyndir um sölu á meirihluta nýlega þjóðnýtts Kaupþings til líf- eyrissjóðanna. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.