Morgunblaðið - 26.10.2008, Side 38

Morgunblaðið - 26.10.2008, Side 38
38 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Fjársterkur kaupandi óskar eftir 2ja herbergja íbúðum í lyftuhúsi á svæðum 101, 104, 105, 108 og 200 (smárinn). Sterkar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson sölumaður í síma 892 3686. ÓSKUM EFTIR ÍBÚÐUM Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095 www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i Faxafen 10 - 108 Reykjavík - eignir@eignir.is Áþreifanleg fjárfesting til framtíðar Steypa eða gull? 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir vel staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Góðir útleigumöguleikar. Góð einbýlishús á góðum stöðum, ýmis skipti möguleg. Atvinnuhúsnæði af ýmsum stærðum. Fasteignir á Spáni, Ítalíu, Slóvakíu og Marokkó. Gullstangir - hvar og hvernig er best að kaupa? Upplýsingar á skrifstofu Eignaumboðsins. Sími 580 4600 Aðalheiður Karlsdóttir, lögg.fasteignasali www.eignir.is FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. HÚSEIGN ÓSKAST Í ÞINGHOLTUNUM Óskum eftir til kaups eða leigu fyrir traustan aðila um 400 fm húseign í Þingholtunum með stórri lóð. Eignin þarf að vera laus til afhendingar um nk. áramót. VAXANDI borg- arastétt á fyrri öld- um notaði hug- myndir frjálshyggjunnar gegn forréttindum aðalsins. Forrétt- indastéttir væru ekki betri eða skyn- samari en aðrir held- ur fæddust allir menn jafnir og besta leiðin til jafnréttis væri að verja eigna- réttinn og veita frelsi til viðskipta. Eiginhagsmunir væru til góðs fyrir alla og lögmál mark- aðarins kæmu á jafnvægi. Komm- únisminn gerði hins vegar ráð fyrir að sameign kæmi á mestum jöfnuði. Meðan þessi tvö hugmyndakerfi tókust á sátu Norðurlöndin á miðju vegasaltinu með sitt blandaða hagkerfi og fé- lagslegu samhjálp. Fall komm- únismans varð síðan sigur frjáls- hyggjunnar. Einkavæðing var svarið og allt kapp lagt á að losa bundið fjár- magn og láta markaðinn vinna sína vinnu. Það virðist þó svo vera að þegar markaðurinn fær trú á einhverju eins og mögu- leikum internetsins á sínum tíma þá á hann erfitt með að hemja sig og það myndast bóla sem þenst um of og springur. Bólan sem nú er að springa byggðist á oftrú á veðsetningu. Fjármagn sem hafði verið bundið í ríkisfyrirtækjum, al- mennum fyrirtækjum, veiðiheimildum og húsnæði var losað. Fjármagns- tekjuskattur var lækkaður og skattaaf- sláttur veittur á hlutabréf og eigendur fyrirtækja fóru að selja og peningamenn að kaupa með skuld- settri yfirtöku. Veð- setning kvóta var leyfð og hann seldur, keyptur og veðsettur. Ríkisfyrirtæki voru seld, keypt og veðsett og íbúðir voru seldar, keyptar og veðsettar. Alltaf hækkaði verðið með hverri sölu og þá aftur hægt að veð- setja þó markaðs- virðið væri á end- anum komið hátt yfir raunveruleg verð- mæti. Milljarðar streymdu í hag- kerfið og við vorum komin með nýja forréttindastétt sem hólfaði flugvélar niður í fyrsta og annað farrými og kom sér fyrir í heiðursstúkum á fótboltaleikjum. Þó að kenningin segi að mark- aðurinn leiti alltaf jafnvægis þá leiddu eiginhagsmunir þeirra til þess að veðbólan stækkaði þar til hún sprakk. Við lærum það vonandi af þess- ari ferð, að fiskurinn má vera verðmætur þar sem hann syndir í sjónum, og húsin okkar og fyr- irtæki eiga að vera einhvers virði þegar þau ganga til næstu kyn- slóða. Hver vegur að heiman … Guðmundur Guð- finnsson skrifar um frjálshyggju og kommúnisma Guðmundur Guðfinnsson » Ferðin með eimreiðinni endaði í blind- götu. Hvað get- um við lært af þessu ferða- lagi? Höfundur er bakari. MÁNUDAGINN 13. október var haldinn evrópskur umferðarör- yggisdagur sem til- einkaður er umferð- aröryggi í borgum. Umferðarstofa ákvað að helga þennan dag öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Þessi hópur vegfarenda hefur stund- um verið kallaður óvarðir vegfar- endur þar sem hvorki járngrind né -búr hlífir þeim ef slys ber að hönd- um. Fyrstu sjö mánuði þessa árs höfðu 73 einstaklingar slasast í þess- um hópi vegfarenda. Þar af voru 10 sem slösuðust alvarlega. Í öllum til- fellum var um að ræða gangandi en á þessu tímabili slasaðist enginn á hjóli. Það að hjóla og ganga á ekki síst erindi núna þegar miklu skiptir að fólk leiti leiða til sparnaðar og efl- ingar á andlegri og líkamlegri hreysti. Í því sambandi skiptir miklu máli að öryggi þessara vegfarenda sé eflt til muna. Mikilvægt er að allir þeir sem koma að umferðarörygg- ismálum og uppbyggingu og skipu- lagi samgöngu- mannvirkja séu meðvitaðir um mik- ilvægi þess að öryggi þessa hóps sé sett í öndvegi. Það má oft gera á einfaldan og ódýran hátt. Sem dæmi má nefna að við fram- kvæmdir sé ekki bara hugað að gerð hjáleiða fyrir akandi heldur einnig fyrir hjólandi og gangandi. Að við snjó- mokstur sé þess gætt að gangstéttar séu ekki þaktar illfærum snjó og ís sem m.a. hefur verið rutt af akbrautum. Það eru einnig nokkur atriði sem ökumenn, gangandi vegfarendur og hjólandi þurfa að hafa í huga: Sér- stök ástæða er til að minna ökumenn á að þegar tekin er beygja á gatna- mótum þarf að gæta þess að veita gangandi vegfarendum og hjólreiða- mönnum forgang þvert yfir þá ak- braut sem ekið er inn á. Þetta á einn- ig við um hringtorg þar sem ekið er inn í eða út úr hringtorgum. Öku- maður skal sýna gangandi vegfar- endum sérstaka tillitssemi og víkja fyrir þeim. Nota skal gangbraut, ef hún er nálæg, og ber ökumanni ætíð skylda til að stoppa fyrir gangandi vegfarendum við gangbraut. Þar sem umferð er stjórnað með umferð- arljósum má einungis ganga yfir ak- braut þegar grænt ljós er fyrir um- ferð gangandi vegfarenda. Ökumaður skal ekki stoppa fyrir gangandi umferð á gangbraut- arljósum nema gult eða rautt ljós logi á móti honum. Gangandi vegfar- endum stafar ekki eingöngu hætta af tillitsleysi ökumanna heldur og einnig því að í hópi gangandi vegfar- enda eru margir sem ekki virða rautt ljós. Sumstaðar heyrir það nánast til undantekninga og hefur það í för með sér mikla hættu og truflun á annarri umferð. Umferðarstofa vill hvetja hjól- reiðamenn til að kynna sér fræðslu- mynd um öryggi hjólreiðamanna á www.us.is. Kort sem sýnir hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu má finna á www.reykjavik.is. Góða ferð! Óvarðir vegfarendur? Einar Magnús Magnússon fjallar um öryggi gang- andi og hjólandi vegfarenda » Allir sem koma að umferðarörygg- ismálum og skipulagi samgöngumála þurfa að vera meðvitaðir um mikilvægi þess að ör- yggi þessa hóps sé sett í öndvegi. Einar Magnús Magnússon Höfundur er upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. ÞAÐ er orðið alvar- legt ástand á atvinnu- markaði og yfir okkur vofir eitthvert mesta atvinnuleysi sem þjóðin hefur séð í ára- tugi. Í öllu krepputal- inu undanfarið hefur margt eldra fólk minnt okkur á að ekki sé hægt að tala um raunverulega kreppu fyrr en atvinnuleysið geri vart við sig. Ástandið verður sennilega alvarlegast á höfuðborg- arsvæðinu þar sem uppgangurinn hefur verið mestur á undanförnum árum. Við þessari þróun verðum við að bregðast af fullum þunga með aukinni uppbyggingu orku- freks iðnaðar og eflingu annarra grunnatvinnugreina. Sá augljósi kostur sem við eigum er skyn- samleg nýting náttúruauðlinda okkar til lands og sjávar auk sókn- ar í ferðamannagreinum. And- stæðingar stóriðju hafa í öllum sínum málflutningi talað um aðra möguleika í uppbyggingu atvinnu- lífs án þess þó að nefna eitthvað haldbært til sögunnar. Við eigum að líta til allra möguleika til að auka fjölbreytni í atvinnulífi okkar og stuðla þannig að því að vera ekki háð tiltölulega fáum upp- sprettum. En sú vinna má ekki standa í vegi fyrir eðlilegum vexti þess atvinnulífs sem fyrir hendi er. Hvar værum við stödd í verðmæta- sköpum þjóðarinnar ef farið hefði verið að tillögum andstæðinga stóriðju og ekkert framkvæmt á þeim vettvangi sl. ár. Aukn- ing álframleiðslu skiptir sköpum í aukningu útflutnings- verðmæta á þessum erfiðu tímum. Atvinnuleysi er eitt það versta sem hendir ein- staklinga og fjölskyldur. Ábyrgð stjórnmálamanna er aldrei meiri en nú í að greiða götu fyrirtækja til að efla starfsemi sína og draga þar með eins og mögulegt er úr áhrifum yfirvof- andi atvinnuleysis. Í sjávarútvegi verðum við að líta til breyttra að- stæðna og auka kvóta í þorski og mögulega öðrum tegundum. Við verðum að sætta okkur við að það geti haft þær afleiðingar að upp- bygging stofnanna verði hægari en við lögðum upp með við núverandi aflamark. Nú þegar útflutningur er hafinn á hvalaafurðum verðum við að gefa út kvóta samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hvalveiðar munu þannig geta skil- að milljarða útflutningstekjum og haft jákvæð áhrif í uppbyggingu á helstu nytjastofnum sjávar. Í ferðaþjónustu verðum við að leggja áherslu á aukna markaðs- setningu. Öflugt net samgagna til og frá landinu byggist á sterkum rekstri flugfélaga og ferðaþjón- ustufyrirtækja. Við megum ekki við því að það net skerðist. Varð- andi stóriðju verðum við að senda skýr skilaboð til umheimsins að hér verði áfram farið í virkjanir til öflunar orku fyrir orkufrekan iðn- að. Þeim framkvæmdum sem eru í pípunum verður að greiða leið. Þar getur umhverfisráðherra gefið já- kvæð skilaboð með því að breyta ákvörðun sinni um heildstætt um- hverfismat vegna framkvæmda við Húsavík. Forystumenn í Hafn- arfirði geta einnig í ljósi breyttra aðstæðna hraðað vinnu við að gera mögulega stækkun álvers í Straumsvík. Sú stækkun mun fjölga störfum þar um tæplega 400 auk allra þeirra hliðaráhrifa sem fylgja slíkri stórframkvæmd. Við höfum ekki efni á því að draga lappirnar í þessum málum. Blásum til sóknar Jón Gunnarsson vill sporna við atvinnu- leysi með aukinni uppbyggingu » Við eigum að líta til allra möguleika til að auka fjölbreytni í at- vinnulífi okkar og stuðla þannig að því að vera ekki háð tiltölulega fáum uppsprettum. Jón Gunnarsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins.@ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.