Morgunblaðið - 26.10.2008, Side 19

Morgunblaðið - 26.10.2008, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Mamma er staðfastur sveimhugi Gunnar Theodór „ Hún mamma hefur alltaf verið til staðar í mínu lífi. Þess vegna hef ég aldrei hugs- að út í það hvenær ég man fyrst eftir henni. En það hlýtur að vera í Skaftahlíð 9, þar sem við áttum heima fyrstu 8 árin hjá mér. Hún hefur alltaf verið ofsalega ljúf. Ég var alltaf sjálfstæð ur og hún var ekkert að ráðskast með mig. Nú vinn ég með börn á frístundaheim- ili Hlíðaskóla, en ekkert slíkt var í boði þegar ég var barn. Ég fór bara heim, þegar skólinn var bú- inn. Ég var lyklabarn. Þegar ég var 8 ára í Ísaksskóla fluttum við í Vesturbæinn og ég tók einn strætó fram og aftur. Ég var ein- mitt að tala við mömmu um þetta um daginn, hvort hún hefði treyst mér svona vel. Hún játaði að hafa verið smeyk í byrjun en treysti mér og ég reyndist vand- anum vaxinn. Tónlistin tengir okkur saman Ég man eftir gönguferðum og fjöruferðum. Og við fórum oft með systkinum hennar og börnum þeirra í ferðalög út fyrir bæinn, meðal annars á berjamó. Píanóið hefur alltaf verið tengt mömmu. Það er svona okkar. Tónlistin tengir okkur saman. Bæði pabbi og mamma lásu fyrir mig og ég hlustaði á spólur, sem þau lásu inn á. Ég las sjálfur inn á spólu, en þoldi ekki að hlusta á hana og tók yfir lesturinn. Svo lá ég í æv- intýrabókum, þetta voru sömu bækurnar og ég er að lesa fyrir börnin núna. Mamma er með ein- staka hæfileika til að vinna í törn- um. Ég man aldrei eftir því að ég mætti ekki leika mér heima, þótt hún væri að vinna. Það var aldrei hrópað á þögn. Ég vissi auðvitað vel af því að hún væri rithöfundur. Ég var 8 ára þegar Snorri í Húsa- felli kom út. Það var alltaf sérstök stemning þegar bók kom út. Þegar kassinn með fyrstu eintökunum birtist, þá var hún svo glöð og stolt og við urðum öll svo glöð og stolt. Þetta voru svona litlujól á heimilinu, sannkölluð bókajól. Pælir oft upphátt í hlutunum Mamma er góð manneskja. Hún er bæði sveimhugi og stað- föst kona. Stundum þegar ég er að tala við hana, þá er hún allt í einu komin út í eitthvað allt ann- að, hefur gripið eitthvað sem fór hjá og ég verð að byrja upp á nýtt. Hún segir beint út það sem henni dettur í hug og pælir oft upphátt í hlutunum. Hún getur farið í svo margar áttir. Svo er hún ákaflega staðföst í því sem hún vill. Og hún hefur alltaf hvatt mig og stutt. Hún er líka mjög kjörkuð kona og alltaf til í að takast á við eitthvað nýtt. Það sýndi hún til dæmis með bókinni Kalt er annars blóð. Þar réðst Kannski er ástæðan sú að ég þekki hana svo vel. Hún hefur aldrei haldið bókum sínum að mér og hún segist skilja það vel að ég hafi ekki lagt í að lesa neina frá upphafi til enda. En ég hef skýr fyrirmæli um það að þegar ég á endanum setzt niður til að lesa bók eftir hana, þá á það að vera fyrsta bókin; Júlía. Þótt ég hafi farið utan til náms og sé nú fluttur að heiman hefur mér aldrei fundizt nein fjarlægð milli okkar mömmu. Þegar við hittumst þá tökum við upp þráð- inn einsog það hafi gerzt í gær. Við erum í sérstaklega góðum fíl- ingi á morgnana. Mamma er nátengd dýraríkinu og pælir mikið í tengingum milli manna og dýra. Það hafa alltaf verið kettir heima hjá okkur, oft- ast tveir og kettir koma oft fyrir í bókum hennar. Hún hefur smitað mig af dýra- áhuganum og hann skilar sér í verkunum mínum. Ég veit til dæmis um tilvik þar sem við höfum unnið með sömu pælinguna í ólíkum myndum, ég í masters ritgerð minni og hún í glæpasögu, án þess að vita af því hjá hvoru öðru. Þá yfirfærðum við hryllinginn í dýraslátrun yfir á mannfólk, nánar tiltekið hrein- dýraverkun. Ég las ekki söguna hennar, né hún ritgerðina mína, þetta eru bara tengingar okkar á milli. Þá er erfitt að vita hver hefur áhrif á hvern og það er mjög fallegt samband. Mér finnst gaman að fá að kynnast mömmu sífellt betur.“ ‘‘ÞÓTT ÉG HAFI FARIÐ UTAN TIL NÁMSOG SÉ NÚ FLUTTUR AÐHEIMAN HEFUR MÉR ALDREI FUNDIZT NEIN FJARLÆGÐ MILLI OKKAR MÖMMU. Hann fæddist 9. janúar 1982. Eftir stúdentspróf við MR fór hann í bókmenntafræði í Háskóla Íslands með listfræði sem aukagrein. Lokaritgerð hans var um myndasögur. Hann nam síðan kvikmynda- fræði við háskóla í Amsterdam og kláraði mast- erinn þar. Þegar hann kom heim aftur hóf hann starf á frístundaheimili Hlíðaskóla, þar sem hann hefur starfað síðan. Í haust hóf hann dokt- orsnám í bókmenntafræði við H.Í. Fyrir smásöguna Vetrarsögu, sem er hryllings- saga um jólasveinana, fékk Gunnar Gaddakylfuna 2005 og fyrir sína fyrstu bók, Steindýrin, hlaut hann í vikunni Íslensku barnabókaverðlaunin. GUNNAR THEODÓR EGGERTSSON hún ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með tengslunum við Njálu. Fólk sem maður þekkir vel er allt af að koma manni á óvart. Hún kemur öðrum á óvart með því hversu flínkur píanóleik- ari hún er. En ekki mér. Aftur á móti kom það mér á óvart, þegar ég gerðist grænmetisæta hvað hún var vel inní þeim hlutum. Ég vissi reyndar að hún hafði þefað af þeim lífsmáta sjálf, en ekki að hún hefði eldað grænmetisfæði á veitingastað í Mexíkó. Og þótt hún komi mér ekki á óvart í pí- anóleiknum, þá er ég alltaf að uppgötva hvað hún er með margs konar tónlist á hreinu. Ég er að ganga aftur í tónlistarsmekk og uppgötva gömul lög, sem ég ætla að láta koma henni á óvart, en þá þekkir hún þau einsog ekkert sé. Í góðum fíling á morgnana Nei, ég hef aldrei lesið heila bók eftir hana; bara búta og brot.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.