Morgunblaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 24
24 Hvað varð um…
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008
Ekki þarf að fjölyrða um aumingja Hugh Grant. Frá hans bæjardyrum séð
var leynifundurinn með Divine Brown ígildi hamfara. Niðurlægingin var al-
gjör og mannorð hans fór lóðbeint í svaðið enda kappinn fyrst og fremst
þekktur fyrir að gera umkomulausum öðlingum skil. Svona gera þeir ekki.
Á einni nóttu breyttist Grant úr ástmegi bresku þjóðarinnar í algeran
dónakall. Unnusta hans, kynbomban Liz Hurley, lét hann róa og ýmsir ef-
uðust um að hann ætti sér viðreisnar von sem leikari. Grant brá á það ráð
að biðjast opinberlega afsökunar á athæfi sínu í spjallþætti Jays Lenos
og hægt og bítandi náði hann sér aftur á strik. Frægð hans jókst raunar til
muna í Bandaríkjunum í kjölfarið jafnvel þótt hún væri að endemum. Það
sannar að illt umtal er betra en ekkert umtal í „sjó-mennskunni“. En þótt
ferill Grants hafi lifað blásturinn af er ljóst að skuggi Divine Brown mun
hanga yfir honum um aldur og ævi.
bandarískum fangelsum fyrir
hangs?
Hún taldi heldur ekki eftir
sér að sitja fyrir á Evuklæð-
unum í Penthouse og Cent-
erfold og leika í harð-
bannaðri heimildarmynd
um téð atvik, Sunset and
Divine: The British Ex-
perience. Meðreiðarsveinn
Divine þar var enginn annar
en klámkóngurinn Ron Jeremy sem
er, eins og flestir vita, annálaður
áhugamaður um jarðhita á Íslandi.
En það er önnur saga.
En eftir þessi hliðarskref mun
vændiskonan Divine Brown end-
anlega hafa lagt hendur í skaut.
Allt sem hugurinn
girntist
Sem elskhugi og „umboðsmaður“
Divine naut Gangsta líka góðs af
gullinu. „Versta kvöld lífs míns
varð skyndilega að besta
kvöldi lífs míns,“ segir hann
í nýlegri heimildarmynd.
„Peningarnir streymdu
inn. Við festum kaup á
nýju húsi, nýjum bíl,
Rolls Royce, og öllu
sem hugurinn girntist.
Við höfðum líka efni á að
senda dætur okkar í einkaskóla.“
Og Gangsta gleymir ekki velgjörð-
armanni sínum. „Ég elska Hugh
Grant. Hann borgaði skólagöngu
barnanna minna og bauð okkur upp
á líf sem við hefðum aldrei eignast
ella. Mér hefur meira að segja gefist
tækifæri til að ferðast með einkaþot-
um. Hitti ég hann einhvern tíma
ætla ég að taka í höndina á honum
varða að BMW-inn blikkaði
bremsuljósunum ótt og títt. „Hann
hlýtur að hafa notið augnabliksins,“
sagði Divine síðar um lagsmann
sinn.
Fyrstu viðbrögð hennar þegar
lögreglan knúði dyra voru von-
brigði. „Þar fór innkoman í kvöld.“
Parið var fært á lögreglustöðina í
járnum en Divine sleppt jafnharðan
án ákæru. Hún beið því ekki boð-
anna, heldur hélt rakleiðis niður á
horn að nýju. Tíminn er peningar.
Þegar hún sneri aftur til Oakland
daginn eftir hafði tilveru henn-
ar aftur á móti verið snúið á
hvolf. Ljósmyndir af henni
höfðu birst á flestum sjón-
varpsstöðvum um morg-
uninn og við heimkomuna
gekk hún í fangið á geltandi
heimspressunni sem
heimtaði að fá upplýs-
ingar um hvert smáat-
riði. Þá fyrst gerði Di-
vine sér grein fyrir því
hver viðskiptavinur
hennar hafði verið –
breski kvikmyndaleik-
arinn og hjartaknúsarinn
Hugh Grant. Hún fékk
klums.
Kastljós heimsins beind-
ist í kjölfarið að Divine
Brown og á augabragði
urðu 60 dalirnir að millj-
ónum, nánar tiltekið
tæpum 180 milljónum
íslenskra króna á nú-
virði, en það mun vera
upphæðin sem Divine
fékk greidda fyrir að
segja sögu sína,
meðal annars í þátt-
um Jerrys Spring-
ers og Howards
Sterns. Hæstu
upphæðirnar
fengust þó hjá
gulu press-
unni í
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
F
östudaginn 26. júní 1995
skarst í odda með
vændiskonunni Divine
Brown og elskhuga
hennar og „umboðs-
manni“, Gangsta
Brown, á heimili þeirra í Oakland,
Kaliforníu. Orðaskakinu lauk með
því að hún tók fjólubláu hælaskóna
sína í fússi, útvegaði barnapíu fyrir
tvær ungar dætur þeirra Gangstas,
og flaug sem leið lá til Los Angeles,
þar sem hún vonaðist til að þéna
1.000 dollara á Sunset Boulevard
um nóttina. Til að standa skulda-
skil. Í tilviki hinnar 25 ára gömlu
Divine, sem gekk undir nafninu
„Rauðhetta“ þar um slóðir, var það
raunhæft markmið.
Í stað þess að nota hótelherbergi,
eins og Gangsta mæltist til, hélt
Divine rakleiðis niður á götuhorn
ásamt vinkonu sinni. Grunlaus um
hvað var í vændum. Ekki hafði
söguhetja okkar staðið þar lengi
þegar gljáandi BMW gaf henni
merki. Hún var hálfsmeyk við bíl-
stjórann í fyrstu enda var hann
leyndardómsfullur með hafnabolta-
húfu ofan í augum. „Þetta gat alveg
eins verið einhver perri,“ rifjaði hún
upp síðar. En þegar hann blikkaði
ljósunum öðru sinni lét hún slag
standa og fylgdi honum inn í hlið-
argötu. Divine vildi fá 100 dali fyrir
að fara upp á hótelherbergi en bíl-
stjórinn var bara með 60 dali á sér.
Það var því ekki um annað að ræða
en taka til óspilltra málanna í bíln-
um. Bílstjórinn mun hafa verið hin
viðkunnanlegasti og tilkynnti Di-
vine m.a. að hún „ilmaði yndislega“.
Blikkandi bremsuljós
Fundurinn varð þó styttri en til
stóð. Parinu til óheilla var nefnilega
lögreglubíll á eftirlitsferð í grennd-
inni og vakti það athygli laganna
Bretlandi sem bar Divine á höndum
sér.
Djörf mynd með Jeremy
„Gæfan gekk mér í lið,“ sagði hún
í fyrra í samtali við ITV-sjónvarps-
stöðina. „Atvikið á Sunset Boulev-
ard varð til þess að ég komst á rétt-
an kjöl. Sagði skilið við þennan
lífsstíl.“
Ekki er þetta alveg nákvæm frá-
sögn því Divine blessunin var tekin
höndum á ný í Las Vegas haustið
1996 grunuð um hangs og
vændi. Ætli margt fólk sitji í
og segja: Kærar þakkir. Þú ert
maður að mínu skapi og ég vona að
ég geti gert eitthvað fyrir þig í
staðinn. Ef til vill getum við orðið
vinir.“
Tja, þeir kumpánar hafa alltént
sama smekk á kvenfólki.
Sjálf er Divine afar þakklát fyrir
hið óvænta tækifæri sem hún hefur
lýst sem „blessun“. Móðir hennar
var einstæð og ól börn sín sex upp
við kröpp kjör. „Ég átti erfiða
æsku. Börnin mín hafa alltaf haft
algjöran forgang og ég leit á það
sem skyldu mína að draga björg í
bú, jafnvel þó að það þýddi að selja
mig á götunni. Allt snerist um að
afla fjár, breyta rétt og ala börnin
mín upp við sem best skilyrði,“ seg-
ir Divine en það var rafmagnsreikn-
ingurinn, að upphæð um 15.000 kr.,
sem atti henni á sínum tíma út í
vændið.
„Tvær vinkonur mínar höfðu val-
ið þessa leið og vegnaði vel. Þær
höfðu eignast fín heimili og sáu
fjölskyldum sínum farborða. Þess
vegna lét ég til leiðast,“ segir Di-
vine sem hafði yfir 50.000 kr. upp
úr fyrsta kvöldinu, fyrir fimm tíma
vinnu. Upp frá því varð ekki aftur
snúið – fyrr en Grant hljóp á snær-
ið.
Gangsta og Divine eru skilin að
skiptum í dag. Hún býr nú með
plötuútgefandanum Richard Fet-
tuccini og gegnir lykilhlutverk í út-
gáfustarfsemi hans sem upptöku-
stjóri og framleiðandi. Þá kveðst
hún hafa slegið í gegn sem söng-
kona í þremur lögum í útvarpi
vestra.
Kann einhver að nefna þau?
bandarísku portkonuna Divine Brown?
Blásið til sóknar
Divine Brown
Divine Brown heitir réttu
nafni Estella Marie Thompson
og fæddist 9. ágúst 1969.
Hún varð fræg á einni nóttu
þegar hún var gripin við
ósiðlegt athæfi ásamt
breska kvikmyndaleik-
aranum Hugh Grant.
Hugh Grant
Hugh John Mungo Grant
fæddist 9. september 1960.
Hann var sektaður um
ríflega 150.000 kr. fyrir
hliðarspor sitt með Divine
Brown og skikkaður
á alnæmisnámskeið. Hann
starfar enn sem leikari.
Grunlaus Divine Brown hafði
ekki hugmynd um hver við-
skiptavinur hennar var.
Skömm Hugh Grant vissi upp á
sig skömmina við handtökuna að-
faranótt 27. júni 1995.
Ígildi hamfara
– bankinn þinn
...á áunna vexti!
vaxtaauki ...10%
*V
ax
ta
au
ki
nn
le
gg
st
in
n
á
re
ik
ni
ng
in
n
um
næ
st
u
ár
am
ót
.
Þeir sem stofna sparnaðarreikningana
SPRON Vaxtabót, Viðbót eða Veltubót
á Netinu fyrir 10. nóvember nk. fá um
næstu áramót 10% vaxtaauka á áunna vexti.*
Reikningarnir njóta ríkisábyrgðar samkvæmt
yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar.
Nýttu þér þetta TILBOÐ og
stofnaðu reikning á spron.is.