Fréttablaðið - 30.04.2009, Side 41
FIMMTUDAGUR 30. apríl 2009 25
UMRÆÐAN
Rúnar Vilhjálmsson skrifar um
Evrópuumál
Ýmsir talsmenn Samfylkingar-innar fóru mikinn í Evrópu-
umræðunni í nýliðinni kosninga-
baráttu. Sögðu þeir Íslendinga
bókstaflega verða að ganga í
Evrópusambandið sem allra
fyrst. Annars yrði hér allsherj-
ar efnahagshrun, stórfelldur fyr-
irtækja- og fólksflótti og viðvar-
andi svartnætti. Íslendingar ættu
ekkert val. Þessir talsmenn Sam-
fylkingarinnar byggja afstöðu
sína á bölskoðun á íslensku
efnahagslífi og brennandi trú
á Evrópusambandinu sem fátt
virðist geta haggað. Jafnframt
hafa þessir sömu talsmenn sagt
að tafarlaus undirbúningur að
aðild að Evrópusambandinu sé
skilyrði í stjórnarsamstarfi við
aðra flokka. Sumir þessarra tals-
manna bæta því samt við að þeir
séu ekkert endilega að leggja
til að Ísland gangi í ESB – þeir
séu bara að berjast fyrir því að
Íslendingar sæki um og semji um
aðild að ESB til að gá og sjá hvað
við fáum í svona samingi. Þjóðin
geti svo tekið afstöðu til samn-
ingsins.
Að gá og sjá
En er þetta trúverðugur mál-
flutningur? Ef áhugi þessara
talsmanna á inngöngu er svo
brennandi sem þeir láta, saman-
ber málflutninginn um að Íslend-
ingar „verði að ganga þarna inn“,
hverju eru þeir þá tilbúnir að
fórna fyrir samninginn? Getur
þá verið að afstaða þeirra til
aðildarviðræðna sé bara að „gá
og sjá“? Rétt er að hafa í huga í
þessu sambandi að ESB fer tæp-
lega í aðildarviðræður við þjóð-
ir sem ætla bara að semja til
prufu. Aðildarumsókn mætir
þeirri eðlilegu kröfu af hálfu
ESB að um ásetning og vilja til
inngöngu sé að ræða hjá viðkom-
andi stjórnvöldum. Þegar aðild-
arsamningur er frágenginn gerir
ESB jafnframt þá eðlilegu kröfu
að viðkomandi stjórnvöld standi
að baki slíks samnings og vinni
með ráðum og dáð að samþykkt
hans í viðkomandi ríki.
Sjávarútvegsstefnan
Aðildarumsóknir einstakra ríkja
á undanförnum árum hafa fylgt
þeirri forskrift. Við þetta má svo
bæta að ríki sem hyggjast ganga
í ESB verða að gera sér grein
fyrir því í upphafi að þau fara
inn í sambandið til að vera og
fara ekki þaðan út aftur þótt þau
kunni að telja síðar að það þjón-
aði betur hagsmunum þeirra.
Þessir hörðu talsmenn Samfylk-
ingarinnar í Evrópumálum hafa
lýst því yfir að þeir myndu ekki
styðja samning og inngöngu í
ESB sem fæli í sér að Íslend-
ingar afsöluðu sér forræði yfir
náttúruauðlindum sínum. En er
þetta raunhæfur málflutningur?
Ef eitthvað liggur yfirleitt fyrir
um innihald hugsanlegs aðildar-
samnings Íslands og ESB, er það
einmitt hin ófrávíkjanlega krafa
ESB (samkvæmt öllum helstu
talsmönnum sambandsins) að
Ísland félli undir auðlindastefnu
sambandsins og að forræði og
yfirstjórn auðlindanýtingar, svo
sem aflaheimildir og veiðistjórn,
færðist til sambandsins (Ísland
fengi í mesta lagi einhvern aðlög-
unartíma).
Hér er rétt að hafa í huga að
fiskveiðistjórnun Evrópusam-
bandsins hefur verið í miklum
ólestri á undanförnum árum
sökum margs konar undanbragða
og ofveiði. Nýjar hugmyndir sem
fram hafa komið innan sam-
bandsins fela í sér að
landskvótareglan um
„hlutfallslegan stöðug-
leika“ verði endurskoð-
uð eða lögð niður. Þetta
er þó einmitt sú regla
sem harðir Evrópusinn-
ar hafa talið að myndi
vera Íslendingum traust
vörn við úthlutun afla-
heimilda ef þeir gengju
inn í sambandið.
Evran og efnahagslífið
Loks hafa hinir hörðu
talsmenn sagt að Íslendingar
þurfi að ganga sem fyrst í Evr-
ópusambandið til að taka upp
evru svo rétta megi efnahahags-
lífið við. En er það trúverðug-
ur málflutningur? Inn-
ganga í ESB tryggir
engan veginn upptöku
evru. Hér er um tvö mál
að ræða. Ýmis ríki ESB
uppfylla ekki skilyrði
sambandsins fyrir upp-
töku evru og hafa aldrei
gert. Íslendingar hafa
heldur ekki uppfyllt öll
þessi skilyrði samtímis
og ekki útlit fyrir að svo
verði á næstu árum. Til
viðbótar kemur svo að ef
af upptöku evru yrði ein-
hvern tíma í framtíðinni tryggði
það ekki Íslendinga gegn efna-
hagslegum áföllum og erfiðleik-
um. Nægir þar að nefna reynslu
Spánverja og Íra.
Loks er að nefna að Evrópu-
samstarfið felur í sér pólitískt
ekki síður en efnahagslegt sam-
starf og samrunaþróun. Embætt-
ismenn í Brussel og stjórnmála-
og áhrifamenn aðildarríkja
Evrópusambandsins sem skem-
ur vilja ganga á hinni pólitísku
braut vilja auka vægi sambands-
ins sem yfirþjóðlegrar valdstofn-
unar og draga sem því svarar úr
valdi þjóðríkjanna sem mynda
bandalagið, en þeir sem lengst
vilja ganga innan sambandsins
stefna að evrópsku stórríki með
afnámi fullveldis aðildarríkjanna
sem yrðu fylki og héruð í evr-
ópska stórríkinu. Hér má minna
á viðeigandi orð Uffe Elleman
Jensen á dögunum um að lönd
sem ætla sér inngöngu í Evrópu-
sambandið verði að hafa áhuga á
hinu pólitíska samstarfi og sam-
runa. Menn gangi ekki inn í Evr-
ópusambandið einungis á efna-
hagslegum forsendum.
Galli á málflutningi hinna
hörðu stuðningsmanna Evrópu-
aðildar er hve umræðan er þröng
í kringum tiltekin efnahagsleg
atriði, hve kostir ESB-aðildar
eru illa rökstuddir og hve lítið
er gert úr ókostunum sé yfirleitt
á þá minnst. Úr verður áróður í
stað þeirrar upplýsandi umræðu
sem mikil þörf er á um þessar
mundir.
Höfundur er prófessor
í félagsfræði.
Samfylkingin og Evrópusambandið
RÚNAR
VILHJÁLMSSON
CINTAMANI EYGLÓ
Dúnúlpa með hettu og ekta loðkraga.
Fylling er 95% dúnn og 5% fiður sem
gerir úlpuna létta og hlýja.
CINTAMANI EGILL
Dúnúlpa fyrir herra með hettu og ekta
loðkraga. Fylling er 95% dúnn og 5%
fiður sem gerir úlpuna létta og hlýja.
CINTAMANI SKÓR
Hallveig og Hallmar. Skór með Green
Diamond sóla. Green Diamond sólarnir
hafa gríðarlegt grip sem byggist á þú-
sundum lítilla grófkorna sem eru
innbyggð í sólann.
CINTAMANI JAKOB
Heilrenndur jakki. Tecnostretch® efni
frá Pontetorto®. Mjúkur og hlýr.
CINTAMANI HRINGUR
Léttur jakki úr Soft Shell® efni frá
Pontetorto®.
CINTAMANI HREFNA
Vatnsfráhrindandi jakki með öndun úr
2.5 laga IceGuard® efni. Vatnsheldir
rennilásar að framan og á vösum.
OPIÐ:
10-18 MÁN – FÖST.
11-16 LAUGARD.
1. MAÍ LOKAÐ
AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ
Rey
kja
nes
bra
ut
kapl
akri
ki
15.990.-áður 29.990.-
8.990.-áður 15.990.-
10.990-áður 26.990.-
12.990.-áður 24.990.-
19.990.-áður 32.990.-
SPJARAÐU ÞIG
7.990.-áður 12.990.-