Fréttablaðið - 30.04.2009, Side 64

Fréttablaðið - 30.04.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er fimmtudagurinn 30. apríl, 120. dagur ársins. 5.03 13.25 21.49 4.36 13.10 21.46 Alveg var mér sama um áhrif ofbeldistölvuleikja og rassa- dillandi söngglyðra á ungmenni áður en ég eignaðist sjálfur börn. Ég hefði líklega talið það bölvað kerlingavæl ef umræða um þetta hefði orðið á vegi mínum. NÚ ER öldin önnur. Ég er stöðugt á varðbergi fyrir mannskemmandi sulli úr skemmtanaiðnaðinum svo barnæskan verði tær og hrein, ekki ósvipað minni eigin. Eða hvað? Kannski er ég skemmdur fyrir lífstíð af Boney M umslaginu Love for Sale og auðvitað fannst mér gaman að plaffa á stráka í byssó. Púðurreykur úr knallettu- byssu er lykt æsku minnar. Auð- vitað var alltaf verið að drepa einhverja í fréttunum þá líka, og endalaus spenna á milli stórvelda. Geðveikir menn gátu ýtt á rauða takka hvenær sem var og bæ bæ alheimur. Í DAG höfum við kannski ekki spennu á milli stórvelda til að hræða úr manni líftóruna, en við höfum Geim Tíví. Sonurinn stelst í þáttinn hvenær sem færi gefst og færin eru nokkur því Skjár einn endurtekur þættina í góðmennsku sinni á morgnana, svona innan um barnaefnið á öðrum stöðvum. Kannski er ég óþarflega stress- aður yfir þessu. Mér býður bara í grun að springandi hausar, blóð- slettur og innyfladreifing sé ekki endilega uppbyggjandi andlegt fóður fyrir fimm ára. Fréttatímar eru auðvitað bannaðir börnum, eða allavega vandlega ritskoðað- ir. Maður er nógu stressaður yfir þessu öllu sjálfur þótt maður sé ekki að bögga börnin með þessu líka. ÞÓ AÐ dóttir mín sé ekki orðin tveggja hefur hún eignast uppá- haldssöngkonu, Lady Gaga. Helst er það lagið frábæra Poker Face sem dóttir mín fílar og syngur oft upp úr þurru, „pa pa pa pa pa pa eis“. Mikið vildi ég að Lady Gaga þyrfti ekki að líta út eins og hún ynni hjá Geira í Goldfinger. Væri frekar eins og búttuð bóndastúlka með skuplu eða ein af stelpunum í UVG. Af hverju heldur fólk að það sé ekki hægt að búa til popp án þess að glenna sig endalaust á nærbuxunum? Í FJÖLSKYLDUBÍLTÚR nýlega vorum við á rauðu ljósi á horni Frakkastígs og Hverfisgötu þar sem erótísk nærfatabúð er til húsa. Þegar dóttirin sá erótísku nærbuxnaauglýsingarnar með glennulegu glyðrunum í gluggun- um fór hún að syngja Pa pa eis sem óð væri og benti ólm á gluggann. Nýju fötin keisarans hvað? Lady Gaga BAKÞANKAR Dr. Gunna Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.