Fréttablaðið - 30.04.2009, Side 11
FIMMTUDAGUR 30. apríl 2009
DÓMSTÓLAR Tæplega fertug kona
hefur verið dæmd í sextíu daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnaði.
Konan stal í allmörg skipti
áfengi úr vínbúðum ÁTVR. Hún
valdi tegundir af sterkari gerð-
inni svo sem koníak, viskí og
vodka. Að auki stal hún fötum
og snakki úr Hagkaupum, svo og
fimm DVD-myndum úr Krón-
unni.
Auk ofangreindrar refsingar
var konunni gert að greiða skaða-
bætur upp á tæplega níu þúsund
krónur til Hagkaupa og skaða-
bætur til ÁTVR að upphæð rúm-
lega 24 þúsund krónur. - jss
Tæplega fertug kona:
Stal koníaki,
viskí og vodka
VÍNBÚÐIRNAR Konan hélt sig aðallega
við sterkari tegundirnar.
SJÁVARÚTVEGUR Eigið fé íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja í árslok
2007 var 110 milljarðar, eða 25,3
prósent. Þetta kemur fram í ritinu
Hagur fiskveiða og fiskvinnslu
árið 2007 sem Hagstofa Íslands
hefur gefið út. Niðurstöður efna-
hagsreiknings sýna að heildar-
eignir sjávarútvegsins voru 435
milljarðar króna en heildarskuld-
ir 325 milljarðar.
Afkoma sjávarútvegsins á
árinu 2007 var almennt viðun-
andi þrátt fyrir erfið ytri skil-
yrði. Tekjur fiskveiða námu 85,4
milljörðum króna og heildargjöld
námu 67,1 milljarði króna. Tekjur
fiskvinnslu námu 94,3 milljörðum
króna og rekstrarkostnaður nam
87,7 milljörðum króna. - shá
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki:
Eigið fé 110
milljarðar 2007
Hebron-Vinnufatnaður
Smiðjuvegi 1, Grá gata
www.hebron.is
s. 567-6000
20%
kynningAr
afsláttur
til 8. maí
V INNUFATNAÐUR
FÆST NÚ Í HEBRON
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
58
78
0
4/
09
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist
fjármálum heimilisins og breyttum aðstæðum og leitar
hentugra úrræða fyrir þig.
• Stöðumat • Úrræði í greiðsluerfiðleikum
• Ráðgjöf • Greiðslujöfnun
• Heimilisbókhald • Breyting á lánaskilmálum
• Lífeyris- og tryggingamál • Lenging lánstíma
• Netdreifing/útgjaldadreifing • Tímabundin frestun afborgana
• Sparnaðarleiðir
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband
í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi Kaupþings.
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF
FYRIR ÞIG
DÓMSMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri, Sverrir Pétur Péturs-
son, hefur verið dæmdur í ellefu
mánaða fangelsi, skilorðsbund-
ið til tveggja ára, fyrir að skjóta
60 milljónum króna undan skatti
á tveggja ára tímabili. Honum er
gert að greiða 120 milljóna sekt í
ríkissjóð.
Sverrir, sem er málarameist-
ari, bar að hann hefði skilað
öllum virðisaukaskattskýrslum
eftir að rannsókn málsins hófst,
en gögn málsins bera það hins
vegar ekki með sér, að því er
segir í dómi. Sverrir hefur ekki
áður gerst sekur um lögbrot. - sh
Dæmdur fyrir stórfelld svik:
Skattsvikari
sektaður um
120 milljónir
EFNAHAGSMÁL Skattrannsóknar-
stjóri rannsakar nú hugsanleg
skattabrot félags og býst við að
kæra málið til ríkislögreglustjóra.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri segir þetta mál vera
hluta af stærra máli.
Það teygi anga sína til Lúxem-
borgar, eins og mörg önnur mál
sem tengjast bankahruninu. Lengra
komist rannsókn slíkra mála ekki,
vegna bankaleyndar þar ytra.
„Það dúkka upp fleiri og fleiri
svona mál sem tengjast Lúxemborg
þannig að það er alveg klárlega mín
skoðun að þau gögn sem þar liggja
eru lykilgögn til að ná utan um
starfsemi bankanna,“ segir hún.
Í desember 2008 fór þáver-
andi bankamálaráðherra fram á
að stjórnvöld í Lúxemborg afléttu
bankaleynd gagnvart íslenskum
rannsakendum. Sigrún segir að
ekki hafi verið opnað fyrir aðgang
að þessum gögnum. Alþjóðleg
þróun, þrýstingur annarra landa,
þoki þessu þó í rétta átt. Afar þýð-
ingarmikið væri að fá þessari leynd
aflétt, fyrir íslensk yfirvöld.
Ekki náðist í Gylfa Magnússon,
núverandi bankamálaráðherra.
- kóþ
Skattrannsóknarstjóri segir ekkert þokast í bönkunum í Lúxemborg:
Verði kært til ríkislögreglustjóra
BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Skattrann-
sóknarstjóri segir að miklu máli myndi
skipta fyrir íslenska rannsakendur að fá
bankaleynd aflétt.