Fréttablaðið - 30.04.2009, Side 36
30. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● heilsa og útivist
Útilegur á Íslandi verða ugglaust
með vinsælasta móti í sumar hjá
landsmönnum, meðal annars
vegna gengismála.
Þeir sem hyggja á slíkar ferð-
ir með tjald, fellihýsi eða hjólhýsi
geta nú sótt sér upplýsingar um
tjaldstæði landsins inn á nýjan
vef, www.tjalda.is. Þar er hægt
að skoða staðsetningu tjaldstæða
og finna allt um opnunartíma, að-
stöðu og verð.
Meðal nýjustu og heitustu
frétta sem fram koma á tjalda.
is er að nýtt tjaldsvæði verður
opnað í Grindavík í maí. Það er
13.500 fermetrar og er við Austur-
veg, skammt frá sundlauginni og
bryggjunni. Þaðan er stutt alla
þjónustu.
Í Grindavík og nágrenni eru
margar góðar gönguleiðir, innan
um sögulega jarðfræði og nátt-
úruminjar.
Þjónustuhús við tjaldstæðið í
Grindavík verður opnað síðar. - gun
Allir út að
tjalda í sumar
Það er gaman í tjaldútilegu í góðu veðri.
Fjallað verður um tengslin milli orku-
kerfisins, sálrænna og líkamlegra þátta.
NORDICPHOTOS/GETTY
Uppbygging orkukerfis mannsins
og hvernig hægt er að nýta það á
meðvitaðan hátt er til umfjöllunar
í fyrirlestri Kristjáns Viðars Har-
aldssonar í Manni lifandi, Borgar-
túni 24, næstkomandi þriðjudag.
Í fyrirlestrinum, sem ber yfir-
skriftina Hvað er heilun, ætlar
Kristján auk þess að varpa fram
ýmsum spurningum sem kunna
að tengjast heilun og leitast við að
svara þeim.
Þess skal getið að Kristján Viðar
hefur margra ára reynslu sem ráð-
gjafi og íþróttaþjálfari. Hann er
með gráðu í heilun frá Barbara
Brennan School of Healing og
hefur auk þess gráðu í sálarfræði
frá Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn hefst klukkan
17.30 og stendur yfir til klukkan
19. Þátttökugjald er 1.500 krón-
ur. Hægt er að skrá sig á madur-
lifandi@madurlifandi.is. - vg
Uppbygging
orkukerfisins
Í versluninni Betra líf í Kringlunni
fæst fjöldinn allur af hreinum ilm-
kjarnaolíum.
Hafa ber í huga að þær þarf að
blanda við grunnolíur eins og til
dæmis ólífuolíu, apríkósuolíu eða
hnetuolíu áður en þær eru notað-
ar á húðina. Þó má alveg nota þær
óblandaðar beint í baðið.
Mælt er með hafa bómullar-
hnoðra við hendina ef við ætlum
okkur að lykta af þeim og upplifa
þau áhrif sem þær hafa á líkama
og sál.
Eins og margir vita hefur
lofnarblómaolía róandi áhrif og
piparmyntuolía styrkjandi áhrif.
Rósmarín- og furuviðarlínurnar
þykja einstaklega góðar í saunu.
Við höfuðverk þykir basilolía góð,
og eins fyrir þá sem finna fyrir
mikilli streitu.
Sítrónulínan hefur aftur á móti
hreinsandi áhrif á meðan olía
unnin úr sítrónutré er talin vera
orkugefandi. Nú er bara að finna
út hvaða ilmkjarnaolía á best við
þig. - vg
Olíur sem hafa góð áhrif á líkama og sál
Reykjavíkur Apótek er nýtt apótek sem leitast við að
bjóða hagstæð verð og framúrskarandi þjónustu.
í gamla Héðinshúsinu, Seljavegi 2
Sel javegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is
Höfum opnað nýtt apótek
Eftir erfiðan dag
er tilvalið að grípa
til ilmolía.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY