Fréttablaðið - 09.05.2009, Side 2
2 9. maí 2009 LAUGARDAGUR
Gylfi, eru þessir menn ekki
alveg í sambandi?
„Atvinnuþróunarfélögin virðast vera
í betra sambandi við kaldar excel-
formúlur en hina heitu hugmynda-
smíði. Maður spyr sig hvort þau séu
mönnuð réttum manngerðum.“
Gylfi Gylfason í Símabæ er óánægður
með dræmar viðtökur atvinnuþróunar-
félaga á þeirri hugmynd að setja á fót
GSM-minjasafn á landsbyggðinni.
HEILBRIGÐISMÁL Fyrstu fregnir af
svínaflensunni í Mexíkó báru með
sér að um banvæna sótt væri að
ræða sem legðist þungt á þá sem
fyrir henni urðu. Fólk um allan
heim bjó sig undir það versta; að
nýr faraldur á borð við spænsku
veikina væri á leiðinni með til-
heyrandi dauðsföllum. Nú, rétt-
um hálfum mánuði síðan fyrstu
fregnir bárust, hafa tæplega 2.500
manns sýkst, þar af um helmingur
í Mexíkó, og 46 hafa látist.
Það er því kannski ekki óeðli-
legt að menn spyrji sig hvort við-
brögðin hafi verið út úr kortinu.
Hvort það að hamstra flensulyf
og rykgrímur hafi verið nauðsyn-
legt. Nefna má til samanburðar
að í Bandaríkjunum einum deyja
um 36 þúsund úr venjulegri flensu
árlega og á bilinu 250 til 500 þús-
und um allan heim.
„Það er nú hægt að afsaka þessi
viðbrögð í upphafi þar sem fyrstu
fregnir báru með sér að pestin
væri skæð. Þær voru einnig óljós-
ar þannig að það var ekki verjandi
annað en að hafa viðbúnað. Þetta
voru óvissutímar og verður að fyr-
irgefast,“ segir Haraldur Briem,
sóttvarnarlæknir. Hann segir heil-
brigðisyfirvöld hér hafa talað gegn
því að fólk væri að hamstra lyf
og grímur. Nægar birgðir séu til
hjá yfirvöldum og hvað grímurn-
ar varði séu það helst heilbrigðis-
starfsmenn í návígi við sjúkdóm-
inn sem þurfi á þeim að halda.
Ýmsir, svo sem breski blaðamað-
urinn Simon Jenkins, hafa velt því
upp hvort stórfyrirtæki í lyfjaiðn-
aði og tengdum vörum ýti undir
ótta fólks um heimsfaraldur. Þá
hlaupi fjölmiðlar til í leit að æsi-
fréttum og helli olíu á eldinn til að
búa til góða frétt.
Haraldur segir að vissulega
stýri fjölmiðlar umræðunni og
ráði miklu um þá stemningu sem
ríkir. Hins vegar sé rétt að taka
hættuna alvarlega, 41 ár sé síðan
síðasti heimsfaraldur inflúensu
kom upp og því líklegt að annar
sé væntanlegur einhvern tímann
á næstunni. Hve alvarlegur hann
verði sé hins vegar ekki vitað.
Svínaflensan er nú að þróast
út í að verða inflúensa með nýrri
veiru. Haraldur segir útbreiðsluna
nú í takt við fyrstu bylgju slíkrar
flensu og gera megi ráð fyrir að
hún komi aftur upp í haust. Mikil-
vægt sé hins vegar að taka hlutun-
um með ró; nægur tími sé til stefnu
og verið sé að vinna að þróun bólu-
efnis. „Það er engin ástæða til að
vera með ofsahræðslu núna.“
kolbeinn@frettabladid.is
Viðbrögð við flensu
mikil en skiljanleg
Mikið er rætt um svínaflensuna um þessar mundir og þykir sumum nóg um.
Sumir telja að verið sé að hræða almenning að óþörfu til að auka sölu á lyfjum
og viðbúnaðarvörum. Aðrir telja að um eðlileg viðbrögð við hættu sé að ræða.
HARALDUR BRIEM
ÓTTINN VIÐ FLENSUNA Fólk víða um heim bjó sig undir heimsfaraldur á við spænsku
veikina. Hér heima seldust rykgrímur upp í sumum apótekum. Myndin sýnir kennslu-
stofu í Mexíkó. NORDIC PHOTOS/AFP
VEÐUR „Það er auðvitað draumi líkast að fá svona
veður ofan í þennan harða vetur í efnahagslífi þjóð-
arinnar og alkulið sem ríkir í peningamálum bank-
anna. Ætli þetta séu ekki einu hlýindin sem munu
sjást í bili,“ segir Sigurður Þórður Ragnarsson, Siggi
stormur, veðurfræðingur. Siggi spáir hlýindum á
landinu í næstu viku og gætu hitatölur á Norðaustur-
landi náð allt upp í tuttugu stig um miðja vikuna.
Að sögn Sigga verða íbúar Norðausturlands vænt-
anlega vitni að algjörum veðurfarslegum viðsnún-
ingi í byrjun vikunnar. „Þeir hafa þurft að þola þetta
mikla norðanáhlaup, en sumarið kemur á mánudag-
inn. Ég staðfesti það hér með og legg mannorðið að
veði,“ segir Siggi og skellir upp úr.
Þótt veðrið verði sýnu best fyrir norðan segir
Siggi að spár geri ráð fyrir almennum hlýindum
á landinu. „Þetta gerist hægar sunnan- og vestan-
lands, en hitinn er líka á uppleið þar og gæti orðið
á bilinu þrettán til sextán gráður á miðvikudaginn.
Um miðja vikuna verður sem sagt orðið gott veður
um allt land, og vonandi fáum við líka fleiri góðar
fréttir af Jóhönnu Guðrúnu í Eurovision. Þetta eru
óvenju mikil hlýindi miðað við árstíma.“
Um sumarið fram undan segir Siggi að veðurlags-
spár séu hagstæðar. Júní verði í meðallagi, júlí yfir
meðallagi og ágúst verði þurr og hlýr. „En auðvitað
verða þarna myndarlegar rigningarlægðir. Það er
jafn öruggt og að sólin rís í fyrramálið,“ segir Siggi
stormur. - kg
Siggi stormur spáir mikilli hitasveiflu á landinu í næstu viku:
Hitinn gæti náð tuttugu stigum
SUMARIÐ Á LEIÐINNI Siggi stormur lofar sumarkomu á mánu-
dag. Besta veðrið verður á Norðausturlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁSTRALÍA, AP Ástralíuher hyggst
drepa sex þúsund kengúrur á
æfingasvæði hersins skammt frá
Canberra, höfuðborg Ástralíu.
Drápin eru sögð til þess ætluð
að vernda sjaldgæfar gróðurteg-
undir og skordýr.
Ekki eru þó allir á þetta sáttir.
Í fyrra hugðist herinn drepa 400
kengúrur á öðru æfingasvæði
en mótmælendur stöðvuðu þær
framkvæmdir.
„Við ætlum ekki að sitja hjá og
láta þetta gerast,“ segir Bernard
Brennan hjá áströlskum dýra-
verndarsamtökum. Mótmælend-
ur ætla að fara inn á svæðið í
stórum hópum á næstu dögum. - gb
Ástralíuher rýmir til:
Kengúrudrápin
vekja mótmæli
INNFLYTJENDUR Á fjórða þúsund
hefur nú skráð sig í hóp á netinu
til stuðnings Japsý Jacob, ind-
verskri konu á
Seyðisfirði, sem
bíður niður-
stöðu Útlend-
ingastofnunar
um hvort hún
megi vera á
landinu eður ei.
„Það mun
vekja mikla
óánægju ef hún
fær ekki land-
vistarleyfi,“ segir Pétur Kristj-
ánsson, stofnandi hópsins. Hann
telur málefni innflytjenda og
hælisleitenda hér í miklum ólestri.
Eftir að hann hóf afskipti af máli
Japsýar, hafi hann gert sér betur
grein fyrir þessu: „Aðstæður
þeirra sem sækja um sem flótta-
menn eru til dæmis alveg hörmu-
legar, sýnist mér.“ - kóþ
Indversk kona á Seyðisfirði:
Á fjórða þús-
und styður nú
Japsý Jacob
JAPSÝ JACOB
EFNAHAGSMÁL Nokkrum úr hópn-
um Nýjum tímum var boðið inn á
fund með Jóhönnu Sigurðardótt-
ur forsætisráðherra og Stein-
grími J. Sigfússyni fjármálaráð-
herra, þegar þeir mótmæltu fyrir
utan Stjórnarráðið í gærdag.
Nýir tímar vildu minna stjórn-
völd á slæma skuldastöðu heim-
ilanna í landinu og kröfðust taf-
arlausra aðgerða í þágu þeirra.
Skjaldborg um heimilin væri
enn hvergi sjáanleg og þolin-
mæði flestra Íslendinga að þrot-
um komin. Á þriðja hundrað mun
hafa mótmælt í gær. - kóþ
Mótmæli Nýrra tíma:
Ráðherrar buðu
mótmælendum
inn í Stjórnarráð
KREPPTUR HNEFI ÆSKUNNAR Mótmælt
var við Stjórnarráðið í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BJÖRGUN Snjóbílar frá björgunar-
sveitum frá Hellu, Reykjavík og
Vík fóru í gær eftir átta göngu-
skíðamönnum sem lentu í aftaka-
veðri milli Grímsvatna og Esju-
fjalla á Vatnajökli.
Svanur Lárusson, frá svæðis-
stjórn björgunarsveita í Rang-
árvallasýslu og Vestur-Skafta-
fellssýslu, sagði við Fréttablaðið í
gærkvöldi að ferðin væri seinfar-
in og gert var ráð fyrir að snjóbíl-
arnir kæmu að fólkinu um klukk-
an tvö um nóttina. Áður höfðu
snjósleðar farið frá Höfn en þurft
að snúa við um átta kílómetrum
áður en komið var að hópnum. Þá
færðist veðurofsinn í aukana og
sleðarnir hættu að ganga. „Veðr-
ið var orðið svo snarvitlaust að
það var engin glóra í því að halda
áfram,“ sagði Svanur. Hann sagði
enn fremur að fólkið væri vel
búið og ekkert amaði að því. Það
væri vant og hefði lagt allt kapp
á að halda tjöldunum á yfirborði
en annars hefði það grafist undir
í snjóbílnum. Í hópnum eru tveir
Íslendingar og sex Spánverjar og
var hann búinn að vera á ferðinni
í tvo sólarhringa. - jse
Björgunarsveitarmenn fara á snjóbílum á eftir átta skíðamönnum:
Veðurtepptir á Vatnajökli
SNJÓBÍLL FRÁ LANDSBJÖRG Þeir eru
ekki býsna hraðskeiðir snjóbílarnir og
því varð skíðafólkið að sýna mikla bið-
lund við verstu aðstæður í nótt.
STJÓRNMÁL Stofnanir stjórnar-
flokkanna koma saman til fundar
á morgun og fjalla um fyrirhugað
ríkisstjórnarsamstarf.
Flokksráð VG hittist á Grand
hóteli klukkan níu í fyrramálið
en í lögum flokksins er kveðið á
um samráð þingflokks og flokks-
ráðs komi til stjórnarmyndunar
með þátttöku VG.
Flokksstjórn Samfylkingar-
innar kemur saman á Hótel Sögu
klukkan eitt og verður borin upp
tillaga um stjórnarsáttmálann og
ráðherraskipan flokksins.
Áformað er að halda blaða-
mannafund í kjölfar funda flokk-
anna. - bþs
Stjórnarsáttmálinn kynntur:
Flokksstofnanir
funda á morgun
VEÐURFAR Illviðri var víða um
land í gær og varaði lögreglan
fólk við að vera á ferðinni. Þannig
fuku tvö hjólhýsi í hvassviðri
undir Ingólfsfjalli, en enginn
slasaðist. Lögreglan á Selfossi
mælir eindregið gegn því að fólk
ferðist með slíkt í rokinu.
Fjarðarheiði á Austfjörðum var
lokað í kolvitlausu veðri, að mati
lögreglunnar þar. Fagridalur var
sömuleiðis illfær. Í Vestmanna-
eyjum viðraði þó illskár, og lög-
reglan þurfti ekki að hlaupa á
eftir nema einu trampólíni sem
skoppaði um bæinn. - kóþ
Illviðri víða um land í gær:
Hjólhýsi fuku
og vegum lokað
SPURNING DAGSINS