Fréttablaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 9. maí 2009 11
FÓLK Fiskur af tegundinni vog-
mær var meðal ýmissa sjávarlíf-
vera sem nemendur í 4. bekk GV
í Ártúnsskóla fundu í fjöru þegar
þeir, ásamt kennurum og leið-
beinendum, brugðu sér í fjöru-
ferð út á Gróttu fyrir skömmu.
Nemendurnir tóku með sér
fleira sem þeir fundu í fjör-
unni, eins og bogkrabba, mar-
flær, sprettfisk, skera, krossfisk,
þang og þara. Þegar í skólann
kom unnu nemendurnir með það
sem þeir fundu og skoðuðu í víð-
sjá. Það er því óhætt að segja að
nemendurnir hafi haft gagn og
gaman af þessari Gróttuferð. - kg
Nemendur í Ártúnsskóla:
Fundu vogmey
í fjörunni
VOGMÆR Nemendunum þótti vogmær-
in sérkennileg.
MENGUN Umhverfis- og sam-
göngusvið Reykjavíkur minnir
á að besta vörnin gegn svifryks-
mengun er að skilja einkabílinn
eftir heima og taka frekar strætó.
Svifryksmengun var mikil
í borginni í gær, og mæld-
ist svokallaður hálftímastyrk-
ur svifryks 198 míkrógrömm
á rúmmetra, um þrjúleytið við
Grensásveg. Heilsuverndar-
mörk svifryks eru aftur fimmtíu
míkrógrömm á rúmmetra.
Umhverfis- og samgöngusvið
ráðlagði fólki með viðkvæm önd-
unarfæri því að forðast umferð-
argötur og minnir á að tími nagla-
dekkja sé liðinn. - kóþ
Svifryksmengun í Reykjavík:
Best að hvíla
bílinn heima
FINNLAND Finnska utanríkisráðu-
neytið rannsakar nú hvort vændi
viðgangist í kvennafangelsi í
Afganistan sem var reist fyrir
finnska peninga. Finnska rík-
isútvarpið YLE greindi frá því
í vikunni að vændi viðgengist
milli kvenfanganna og afganskra
starfsmanna sem starfa hjá
finnska utanríkisráðuneytinu.
Kvenfangelsið var opnað fyrir
tveimur vikum í Sheberghan í
norðurhluta Afganistans. Rauli
Suikkanen, starfsmaður ráðu-
neytisins, segir að grunur leiki
á að stjórnendur fangelsisins
blandist í málið. - ghs
Afganistan:
Vændi í fang-
elsi sem Finnar
greiddu fyrir
VINNUMARKAÐUR Vinnufærni er
skilyrði fyrir greiðslu atvinnu-
leysisbóta. Atvinnulaus ein-
staklingur sem veikist eða slas-
ast missir bætur þann tíma sem
hann er ekki vinnufær. Ef hann
hefur ekki greitt iðgjald til stétt-
arfélags á hann ekki rétt á aðstoð
þaðan heldur dagpeningum frá
Tryggingastofnun. Dagpening-
arnir eru innan við 1.500 krónur
á dag fyrir utan greiðslur vegna
barna.
Tæplega helmingur þeirra sem
eru á atvinnuleysisbótum greið-
ir ekki iðgjald til stéttarfélags
af atvinnuleysisbótum en hver
og einn þarf að óska sérstaklega
eftir því þegar hann skráir sig.
- ghs
Atvinnuleysisbætur:
Ekki greiddar í
veikindum
FÓLK „Menn eru nú vanir að redda sér út úr
svona vandræðum. Þetta hefst með góðu eða
illu, eins og við segjum,“ segir Einar Her-
mannsson, annar eigenda Merkjalistar í
Hafnarfirði. Fyrirtækið fékk pöntun upp
á prentun og uppsetningu á miklum fjölda
skilta vegna Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu
með skömmum fyrirvara á dögunum. Í ljós
kom að réttu álplöturnar í skiltin voru ekki til
á lager, hvorki hjá fyrirtækinu sjálfu né birgj-
um þess.
Einar segir að eftir efnahagshrunið sé
algengt að fyrirtæki hafi minna á milli hand-
anna til að geta haldið úti jafn drjúgri lager-
stöðu og áður var. „Þessi pöntun frá Ölgerð-
inni vegna Pepsi-deildarinnar kom mjög brátt
upp á. Þegar við fórum að kanna málið upp-
götvuðum við fljótlega að ekki reyndist nægt
magn af réttum álplötum fyrir öll skiltin. Þá
þurfti að grípa til ýmissa ráða til að redda
málunum. Við smöluðum hér og þar og beitt-
um ýmsum brögðum, kölluðum inn nokkra
greiða og leituðum víða, og á endanum hafðist
þetta að langmestu leyti.“
Að sögn Einars hafa starfsmenn Merkja-
listar, sem eru níu talsins, unnið dag og nótt
síðustu daga við skiltin, sem verða sett upp
á heimavöllum allra liðanna í efstu deild í
knattspyrnu. „Þetta reddast allt og fótboltinn
getur hafist með pomp og prakt á morgun,“
segir Einar Hermannsson. - kg
Starfsmenn Merkjalistar brugðust skjótt við slæmri lagerstöðu á álplötum:
Menn vanir að redda sér úr vandræðum
SKILTIN PRENTUÐ Starfsmenn Merkjalistar þurftu að
beita ýmsum ráðum til að sanka að sér nægu magni af
álplötum fyrir upphaf Pepsi-deildarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Spennandi kostur fyrir þá sem hafa
áhuga á mjög hagnýtu stjórnunarnámi.
Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun í umboði
alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
Skemmtilegir nemendur og heimsþekktir
kennarar.
Opnar starfsvettvang víða í íslensku samfélagi
og um allan heim.
Tveggja ára nám samhliða starfi.
MPM • Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ • Hjarðarhaga 6 • 107 Reykjavík • sími 525 4700
MEISTARANÁM
Í VERKEFNASTJÓRNUN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Stefnumótun og sóknaráætlun
Verkefnaleiðtoginn:
Sjálfsskilningur, þroski og þróun
Raunhæft verkefni:
Undirbúningur, framkvæmd og lúkning
Verkefnaleiðtoginn:
Siðfræði verkefnastjórnunar
ÞÁTTTÖKUSKILYRÐI
B.A./B.S./B.Ed. eða sambærilegt
Minnst þriggja ára reynsla úr atvinnulífinu
Reynsla við verkefnavinnu æskileg
Upplýsingar og upplýsingatækni
í verkefnum
Samningar í verkefnum:
Samningagerð, deilu- og áfallastjórnun
Arðsemi og fjármögnun verkefna
Verkefnateymi og aflfræði hópa
MEÐAL NÁMSEFNIS
SÆKT
U UM
FYRIR
15. MA
Í