Fréttablaðið - 09.05.2009, Blaðsíða 41
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
REYKJAVÍK SHOWROOM er sýning Fatahönnunarfélags Íslands
sem haldin er í dag frá 10 til 17 í Portinu í Hafnarhúsinu. Þar má sjá hönn-
un margra áhugaverðra fatahönnuða á borð við Andersen & Lauth, Munda,
Steinunni, kvk og marga fleiri.
Samverustundir með vinunum,
sjónvarpsgláp, heimalærdómur
og útivera á meðan veður leyfir
er lýsing á dæmigerðri helgi hjá
bekkjarsystrunum og vinkonun-
um Járngerði Kristínu Guttorms-
dóttur og Salvöru Káradóttur.
Þessi helgi verður þó ekki að neinu
leyti dæmigerð þar sem stöllurn-
ar ætla að standa fyrir söfnun
fyrir félagið Göngum saman, sem
styrkir grunnrannsóknir á brjósta-
krabbameini.
„Við verðum með alls konar við-
burði. Ætlum til dæmis að selja
boli, sem Nakti apinn hefur hann-
að fyrir okkur, og verðum svo með
íþróttamaraþon, þar sem við stund-
um íþróttir alla nóttina,“ bunar
Salvör út úr sér, og Járngerður
bætir við að í næstu viku standi
svo til að sýna heimildarmynd um
Göngum saman og brjóstakrabba-
mein, sem þær og fleiri hafa verið
að vinna að.
Uppákomurnar eru liður í góð-
gerðaviku sem krakkar úr félags-
miðstöðinni 105 í Háteigsskóla
fóru af stað með um síðustu helgi
og hófst með kökubasar í Garð-
heimum í Mjódd. Vinkonurnar
sem eiga hugmyndina voru ekki í
vandræðum með að fá krakkana til
liðs við sig, því eins og Járngerður
bendir á þekkja flestir einhvern
sem hefur greinst með brjósta-
krabbamein.
„Vinur okkar á mömmu sem
greindist með brjóstakrabba. Hún
stofnaði ásamt mömmu minni
Göngum saman. Mamma tók svo
þátt í Avon-göngunni í New York
fyrir tveimur árum. Við Járn-
gerður fórum með og Snorri vinur
okkar. Það eru bara svo margir í
kringum okkur sem hafa greinst
með brjóstakrabbamein,“ útskýrir
Salvör.
Ekki stóð heldur á að fá skóla-
yfirvöld, tískuhönnuði og fleiri til
að leggja málstaðnum lið. „Það var
ekkert mál. Allir voru mjög opnir
fyrir þessu. Við útskýrðum þetta
bara fyrir fólki og þá voru allir til í
að hjálpa okkur,“ segir Járngerður,
en þær Salvör telja söfnunina
fyrsta verkefnið af þessu tagi sem
nemendur við Háteigsskóla skipu-
leggja.
Stelpurnar ætla ásamt félög-
um sínum að selja bolina frá
Nakta apanum á sérstakri vorhá-
tíð sem stendur í Háteigsskóla í
dag milli klukkan 11 og 15. Salan
heldur áfram í vorgöngu Göngum
saman, sem hefst í Skautahöllinni
á morgun klukkan 11. Loks stend-
ur til að ljúka við heimildarmynd-
ina, sem krakkarnir hafa unnið að
síðustu viku. „Við ætlum að frum-
sýna hana í hátíðarsal Háteigs-
skóla á miðvikudag klukkan 19.30.
Það mega allir mæta og það kostar
300 krónur inn,“ segja þær hressar
í bragði. roald@frettabladid.is
Leggja góðu málefni lið
Óvenjuleg helgi er fram undan hjá vinkonunum Járngerði Kristínu Guttormsdóttur og Salvöru Káradóttur,
sem standa meðal annars í heimildarmyndagerð og styrktarsöfnun fyrir félagið Göngum saman.
Þær Salvör og Járngerður til hægri, ásamt vinum sínum úr félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla, sem hafa lagt dæmigerð
helgarplön til hliðar fyrir góðan málstað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI