Fréttablaðið - 09.05.2009, Side 24

Fréttablaðið - 09.05.2009, Side 24
24 9. maí 2009 LAUGARDAGUR Ættum að hætta með átaksdagana Þorgeir Ástvaldsson fór einu sinni á „vatnskúrinn“. Ilmur Kristjánsdóttir hefur prófað „sítrónukúrinn“. Leikkonan og útvarps- maðurinn sögðu Júlíu Margréti Alexandersdóttur álit sitt á megrunarkúrum, átaksdögum og voru bæði á því að jógasetur Íslands yrði flott í nýju glerhöllinni í Borgartúni. Hver er fyrsta minning ykkar um hvort annað? Ilmur: Já, það er nefnilega saga að segja frá því. Dóttir Þorgeirs, Eva Rún, er nefnilega gömul vin- kona mín, og ég man hvað mér fannst alltaf gaman að koma heim til þeirra og hitta útvarpsmann- inn. Mömmu fannst heldur alls ekki slæmt að ég væri að kynnast Togga Tempó. Þorgeir: Haha. Já, það var held- ur ekki slæmt að kynnast Ilmi. Hún var svolítið öðruvísi en þess- ir venjulegu undirleitu ungling- ar. Og hún gat verið fyndin og var svolítið frökk. Ilmur: Og svo var það Icy-taskan. Þorgeir fór nefnilega út með Icy- hópnum á sínum tíma og átti tösk- una sem var merkt hópnum. Ein- hvern veginn frétti hann að systir mín væri einn mesti Eurovision- aðdáandi Íslands. Og úr varð að systir mín fékk töskuna. Þorgeir: Ég man meira að segja eftir því að við fórum í sér bíl- túr til að afhenda töskuna. Syst- ir Ilmar var ofsalega ánægð, sem kom mér mikið á óvart, því á þess- um tíma þótti alls ekki töff að fíla Eurovision. En hún var ákaflega heil í því að dá keppnina og Gleði- bankataskan gladdi hana greini- lega innilega. Lína Langsokkur á sítrónukúrnum Byrjum á fæðubótarefnum. Lyfja- eftirlit Bandaríkjanna hefur hvatt neytendur til að hætta neyslu á nokkrum tegundum af fitu- brennsluefninu hydroxycut þar sem grunur leikur á um að það geti valdið lifrarskaða og gulu. Hafið þið neytt einhverra fæðubótar- efna eða farið á sérstaka megrun- arkúra? Hver er fyrsti megrunar- kúrinn sem þið heyrðuð af? Ilmur: Ég hef aldrei verið á nein- um fæðubótarefnum og finnst það mjög óhugnanlegt fyrirbæri. Heldur trúi ég ekki á megrunar- kúra og finnst þeir bara, tja, frek- ar sorglegir. Þorgeir: Munið þið eftir banana- og hvítvínskúrnum? Eitt hvítvíns- glas og einn banani í hverri mál- tíð. Frá morgni til kvölds. Ilmur: Já, alveg rétt. En þetta er auðvitað allt spurning um sál- rænt ástand. Að leita að jafnvægi og finna það almennt í lífinu í öllu, þótt óhóf í öllu, og líka mat, sé vit- anlega slæmt. Ha, hef ég sjálf farið í megrun? Uhm. Tjajá. Þorgeir: Hvaða megrunarkúr fórstu á? Ilmur: Sko, þetta var þegar ég var að leika í Línu Langsokk. Þá fékk ég þá grillu í hausinn að fara á kúr. Fór á sítrónukúrinn. Drakk vatn með sítrónu í heila viku. Þorgeir: Og borðaðir ekkert? Ilmur: Hm, nei. Sem gekk auðvit- að ekki. Að sjálf Lína Lang sokk- ur væri að fara í heljarstökk á einni sítrónusneið. Ég var orðin frekar orkulítil og máttlaus eftir þessa viku. Og fyrsti megrunar- kúrinn sem ég heyrði um, hver skyldi hann vera? Er það ekki bara þessi „borða-ekki-nammi“ kúr sem maður heyrði fyrst um sem krakki. Þorgeir: Vatnskúrinn. Það var fyrsti kúrinn sem maður heyrði talað um. Þá átti maður sem sagt bara að drekka vatn. Ég skildi aldrei almennilega út á hvað þessi kúr gekk því ég hef nefnilega allt- af verið mjög duglegur að drekka vatn. En ég prófaði þetta í einn dag og gafst upp. Ég hef aldrei enst við svona lagað – að verða að gera eitthvað. Jóhanna og Gunnar Úr megrun yfir í innhverfa íhug- un. David Lynch kom um síðustu helgi til landsins og hélt fyrirlestur um það fyrirbæri. Ef þið ættuð að velja þjóðþekktan Íslending í hlut- verk jógagúrús landsins, hver yrði fyrir valinu og hvar mynduð þið velja jógamusterinu stað? Ilmur: Jógameistari eða annar álíka leiðtogi þarf að vera mann- eskja sem allir geta speglað sig í, manneskja sem er heiðarleg og ófeimin við að sýna bresti sína. Sem sagt ekki fullkomin. Þar stendur fremst að mínu mati for- sætisráðherrann, Jóhanna Sig- urðardóttir. Hún er heil í sínu og reynir ekki að sýnast önnur en hún er. Þorgeir: Ég myndi fá Gunnar í Krossinum til að vera jógameist- ara. Ilmur: (lítur snöggt á Þorgeir): Ha? Þorgeir: Já, ég er alls ekki sam- mála Gunnari en ég get samt sagt ykkur það að sem útvarpsmað- ur hef ég aldrei haft annan eins viðmælanda og Gunnar. Hann er svo staðfastur í sinni trú og sínum boðskap að það er eiginlega ekki annað hægt en að hrífast með oft á tíðum. Ég hef mjög oft talað við hann í gegnum tíðina, tekið viðtöl við hann og hlustað á hann á opin- berum vettvangi. Á öllum þessum tíma hugsa ég að ég hafi aðeins einu sinni séð hann hika smáveg- is. Það er sama hvaða spurning- um ég dembi á hann, hann er allt- af með svör á reiðum höndum og talar fumlaust. Ilmur: Þarna verð ég að vera ósam- mála. Mér finnst menn sem efast ekki hættulegir. Fyrir mér er það að trúa – það að efast. Þorgeir: Ég spurði einmitt Gunnar út í hraðbátinn sem hann var að fá sér. Benti honum á að frelsarinn hefði ekki þurft neitt slíkt tól til að sigla með sig á vatninu, hann hefði bara gengið. Gunnar var ekki lengi að svara því og sagðist ekki vera frelsarinn, þótt hann kæmist ansi nálægt því. Og lærisveinar Jesú hefði allir verið fiskimenn og svo taldi hann upp það sem veitt var og svo framvegis, þar til maður var orðinn kjaftstopp. Ilmur: Allt í lagi þá. Ég er svo með húsnæðið fyrir jógamuster- ið okkar, Þorgeir. Glerhýsið þarna risastóra á horni Borgartúns og Höfðatúns. Getum látið þau bæði messa og fólk íhuga á öllum hæðum. Það er auðvitað svo stór- kostlegt útsýni þarna til allra átta að ég get ekki ímyndað mér annað en að allir nái innri ró. Þorgeir: Það hljómar vel. Ekki-tala-dagurinn Áfram á heilsufarslegum nótum. Nú stendur yfir átakið Hjólað í vinnuna. Ef þið ættuð að hanna einhvern dag í þessum anda þar sem Íslendingar gera ekki eitthvað sem þeir eru vanir að gera, eins og að vera í megrun, hvernig yrði sá dagur? Og ef þið ættuð að hanna heilt ár út frá sömu hugsun, hvert yrði þemað? Hvaða Íslendingur haldið þið að sé pottþétt ekki á reiðhjóli í dag og verði ekki næstu daga? Þorgeir: Vitið þið að helst þrái ég þögn. Ég myndi vilja að allir þegðu í heilan dag. Þarna er ég auðvitað mjög litaður af því að vinna við fjölmiðla. Þar heyrir maður allt of mikið og mjög mikið hreinlega sem mann langar ekkert að heyra, um alls kyns svínari og spillingu. Mitt besta frí er þögnin. Ilmur: Og þá myndi ég nýta þögn- ina hans Þorgeirs þennan dag í að fá þjóðina til að íhuga hvort við getum ekki hætt að vera með alla þessa „ekki“ daga. Hvort sem er megrunarlausa eða bíllausa dag- inn. Allt sem heitir átak hljómar frekar illa. Það liggur eiginlega í orðsins eðli, „átak“, að þetta sé eitthvað sem þú þarft að rembast við að ná í gegn og taka grettis- taki. Viljum við ekki hætta remb- ingi og bara láta hlutina gerast rólega og eðlilega? Þorgeir: Innilega sammála. Og ekki dettur mér í hug að hvetja börnin mín til að fara hjólandi út í þessa umferð. Ilmur: En þemað í heilt ár. Það yrði nú svolítið erfitt að þegja Þor- geir í heilt ár. Eigum við að segja að það sé ár íhugunar þar sem þakklætið er þemað. Að þjóðin myndi hugsa hvað hún hefði margt til að þakka fyrir. Ég var úti í Mós- ambík þegar efnahagshrunið varð í haust og yfir okkur dundu sms- skilaboð um þjóðnýtingu Glitnis og fall bankanna. Ég verð að segja að mér gat ekki hafa verið meira sama. Í fyllstu einlægni. Ég var í kringum alnæmissmituð börn sem áttu enga foreldra og varla mat. Við höfum svo margt hér, hreint vatn, fiskinn í sjónum, fjölskyldu. Hvað annað þurfum við? Þorgeir: Það er gott þema. Ég held að það sé spurning um að hugleiða gömlu góðu gildin. Ilmur: Og ekki endilega bara þau. Það er svo mikil nostalgía í okkur nefnilega. Við ættum kannski ekki að þurfa að hanga í gildum fortíð- ar. Hvað með bara gildi framtíð- arinnar? Þorgeir: Kannski gæti árið verið helgað því að huga að þeim sem standa okkur næst. Gamla fólkinu sem hefur lifað tímana tvenna og hlær nú eiginlega bara að því að við teljum okkur eiga svona bágt. Mér finnst annars mjög ólíklegt að Gissur Sigurðsson sé á reiðhjóli. Ilmur: Ekki heldur Sigurjón Kjart- ansson. Hann er pottþétt ekki hjólandi í dag. Að lokum. Íslendingar virðast ætla að rækta sem aldrei fyrr þetta sumar miðað við aðsókn- artölur í matjurtagarða. Þó ekki bara grænmeti heldur líka kanna- bisplöntur. Af hverju haldið þið að lögreglan sé allt í einu að finna allar þessar hassplöntur? Hvað finnst ykkur að gera eigi við allar þessar plöntur sem hafa verið gerðar upptækar? Og búnaðinn; lampana og vökvunarbúnaðinn? Þorgeir: Er ekki talað um að þeir hafi komist yfir einhver gögn? Ilmur: Jú. Skrár Orkuveitunnar eða eitthvað slíkt. Það bara hlýtur að vera komin einhver ný aðferð. En varðandi hassplöntuna, hamp- inn, þá er hún fínasta efni og til margra hluta nytsamleg. Það er mjög óhentugt ef þessu verður bara hent. Það mætti nota hamp- inn í margt. Til að mynda er hann frábært efni í vefnað, sápur, krem, byggingarefni og fleira. Þorgeir: Þetta er auðvitað bara frábært plan hjá Ilmi. Ég verð bara að vera sammála þessu. Og þá þurfum við áfram á ljósunum og vökvunarbúnaðinum að halda. Hér höfum við nýjan iðnað. Á RÖKSTÓLUM ÞEKKJAST FRÁ FORNRI TÍÐ Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður og Ilmur Kristjánsdóttir leikkona hafa þekkst lengi en Ilmur er vinkona dóttur hans. Þorgeir gaf systur Ilmar eitt sinn forláta Gleðibankatösku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.