Fréttablaðið - 09.05.2009, Page 58
● heimili&hönnun
Þ egar horft er á gamlan te- eða kaffibolla er Earl Grey
eða uppáhellingur yfirleitt það
sem kemur upp í hugann. Banda-
ríska hönnunartvíeykið Domestic
Construction sá gamla bolla þó
fyrir sér í allt öðru samhengi, eða
sem loftljós og lét hugmyndina
verða að veruleika.
Bollarnir koma úr öllum áttum
og eru flestir komnir til ára sinna.
Einn bolli á stangli er kjörinn fyrir
mínímalistann en bollaljósin eru
einnig seld þrjú til þrettán saman
í hnapp.
Ljósin fást hjá Etsy Shop. Slóð-
in er http://www.etsy.com/shop.
php?user_id=5967130
Bollarnir fást ýmist einir sér eða þrír
til þrettán í hnapp.
Bollarnir koma úr öllum áttum
enda leita hönnuðirnir þá uppi á
flóamörkuðum.
Í barnaherbergjum leyfist ýmis-legt og er um að gera að gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn.
Þegar kemur að vali á ljósakrónu
eru ýmsar lausnir í boði.
Í versluninni ILVU á Korpu-
torgi má finna þessa skemmti-
legu flugvélaljósakrónu en um er
að ræða gamla tvíþekju sem setur
svo sannarlega svip á umhverfi
sitt, hvort sem er í barnaherbergi
eða annars staðar. Ljósið nefnist
Vintage og er úr gleri að hluta og
er fyrir 40 vatta perur. Ljósið kost-
ar 15.400 krónur en einnig má fá
græn og blá flug-
vélaljós úr plasti á
4.390 krónur.
Fljúgandi
lýsing
Fljúgandi
tvíþekjuljós
er vissulega
öðruvísi.
Úr öllum áttum
afsláttur
af öllum vörum
við lokum sunnudaginn 10. maí
Mirale LOKAR
MIRALE
Fákafeni 9
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
sunnudag 13–16
www.mirale.is
50%
INNANHÚS- OG HÚSGAGNAHÖNNUÐURINN Michael Bihain sker út kaffiborð, sem hann
nefnir Iris, með laserskera úr heilli stálplötu. Við það myndast þrír fletir til að leggja frá sér borðbúnað og
blöð en auk þess fallegt form. Borðunum, sem bæði fást svört og hvít, er svo hægt að stafla saman eins og
stólum og sér Bihain það fyrir sér sem hentugan kost fyrir kaffi- eða veitingahús. Hann viðurkennir þó að sá
eiginleiki komi ef til vill síður að notum í heimahúsum þar sem flestir láta eitt sófa- eða kaffiborð duga. „Mér
finnst þó frekar flott að hafa þau hvert ofan á öðru og eflaust eru einhverjir sem kjósa það.“
heimili
hönnun
MYND/ILVA
9. MAÍ 2009 LAUGARDAGUR4