Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2009, Qupperneq 63

Fréttablaðið - 09.05.2009, Qupperneq 63
LAUGARDAGUR 9. maí 2009 35 VIÐ GRETTISLEIÐI Í FAGRANESI Jón spurði Gretti hvort legsteinninn væri á réttum stað. Fornkappanum var ekki svarafátt þó málið sé í raun nokkuð flókið. fjölda manns og Þorbjörn hrökkl- aðist í burtu með hausinn. Síðan ætlaði hann að ríða með haus- inn til þings og reið suður Sand, ætli það sé ekki Stórisandur. En á leiðinni guggnar hann og gróf hann þá hausinn í þúfu sem síðan er kölluð Grettisþúfa. En svo var Grettir fluttur heim að Bjargi og jarðaður þar undir annarri Grett- isþúfu. Þannig að Grettir er graf- inn á tveimur stöðum og ég fór eitt sinn frá Fagranesi og setti kílómetramælinn á núll þegar ég lagði af stað, og þegar ég var kominn að Bjargi þá stóð hann í 156. Þannig að það eru 156 kíló- metrar milli bols og höfuðs á Gretti ef Vatnsskarð er fariðo.“ Jarlinn hristist allur meðan hann hlær að einum viðaukanum enn af Grettissögu. Það er eins með fólk og bækur Nokkrum sinnum hefur Jón kom- ist í hann krappan í Drangey. Eitt sinn féll stórt grjót skammt frá höfði hans þegar hann var að síga þar og eitt skiptið féll hann í sjó- inn. Hann hefur með hjálp góðra manna látið setja stiga, gera höfn og lagt stíga þar en iðulega þarf að vinna bót á öllu aftur þar sem hrun ryður öllu um koll. En fær hann aldrei leið á þessu Drang- eyjarbrambolti, áttræður mað- urinn? „Nei, nei. Þetta er ekki verri vinna en hver önnur. Ég fæ að umgangast margt fólk og það þykir mér skemmtilegt. Það er með fólk eins og bækur; það eru ekki alltaf bækurnar í fallegasta bandinu sem eru skemmtilegast- ar. Ó já, þær eru ófáar konurnar sem ég hef leitt um Tæpaskeið og fyrir Altarishornið að altari Guð- mundar góða en margar verða skelfingu lostnar þegar komið er að horninu. Ég hef verið óskaplega rogginn af því að margar þeirra hafa sagt við mig: „Mikið óskap- lega ertu með góðar hendur.“ Það er ágætt að hafa góða hjálpar- hönd. Annars er það nú skemmti- legast að sjá fólkið þegar það er komið upp á eyna, þá finnst því það hafa mikinn öldung að velli lagt, eins og þar stendur.“ Blaðamaður fór ekki út í Drang- ey svo ekki fékk hann að kynnast þeirri tilfinningu það skiptið en hitt er víst að hann hitti merkan öldung sem hefur margsinnis lagt mikinn öldung að velli. ➜ ÖRLÖG GRETTIS EFTIR AÐ HANN FER ÚT Í DRANGEY Fagranes Grettislaug Drangey Bjarg Sauðárkrókur Ketubjörg Sléttuhlíð Grettir fer til Drangeyjar með Illuga bróður sínum og Glaumi þræli. Ásdís móðir þeirra kvaddi þá með þessum orðum: „Mun ég hvorigan ykkarn sjá sinni síðan ... Sjáið þið vel fyrir svikum, en vopnbitnir munið þið verða. En undarlega hafa mér draumar gengið. Gæt ykkar vel við gerningum. Fátt mun ramm- ara en forneskjan.“ Hafði Grettir þá verið sekur í fimmtán eða sextán ár. Glaumur átti að halda lífi í eldi þar í Drangey en gleymdi sér við starfann og slokknaði eldurinn. Varð Grettir illur og skammaði þræl en synti þvínæst til lands og kom að bænum Reykjum og laugaði sig í lauginni. Þarna er nú Grettislaug og skálinn sem Jón Eiríksson hefur látið reisa og bryggjan þaðan sem farið er til Drangeyjar. Grettir særðist síðan á fæti er hann ætlaði að höggva tré sem fóstra Þorbjörns önguls hafði lagt bölvun á og látið reka að eyjunni. Drep kemur í sárið. Kerling hvet- ur Þorbjörn til að fara til Drang- eyjar að vega Gretti, var Grettir þá rúmfastur vegna meiðslanna. Þorbjörn og menn hans vega Gretti, höggva hönd hans af, til að ná saxinu, og hausinn einnig. Grettir var grafinn í Drangey, síðan voru bein hans flutt að Reykjum, þar sem Grettislaug er og því næst að Fagranesi. Haus hans liggur undir Grettisþúfu að Bjargi. Þorsteinn Drómundur Ásmund- arson, hálfbróðir Grettis, vegur Þorbjörn öngul í Miklagarði sem nú heitir Istanbúl í Tyrklandi. Grettir hafði á árum áður gert grín að máttleysislegum hönd- um Þorsteins, þótti honum þær jafnvel kvenlegar. Kvað Þorsteinn þær hins vegar þess megnugar að hefna hans. NÓATÚNI 17 S: 414 1700 STRANDGÖTU 9 S: 414 1730 MIÐVANGI 2-4 S: 414 1735 AUSTURVEGI 34 S: 414 1745 HAFNARGÖTU 90 S: 414 1740 HLÍÐASMÁRA 10 S: 414 1760 REYKJAVÍKURVEGI 66 S: 414 1750 REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR SELFOSSKEFLAVÍK KÓPAVOGURHAFNARFJÖRÐUR www.tolvulistinn.is TL.IS 179.990159.990129.990 Hvers vegna að taka áhættu með aðra fartölvutegund? JÁ EF 3G
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.