Fréttablaðið - 09.05.2009, Síða 86

Fréttablaðið - 09.05.2009, Síða 86
58 9. maí 2009 LAUGARDAGUR > LYKILMAÐURINN Davíð Þór Viðarsson er fyrirliði Íslandsmeistaranna og leiðtogi liðsins inn á vellinum. Hann átti ríkan þátt í góðum endaspretti liðsins á síðustu leiktíð þar sem liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni. Davíð er þar að auki einn fárra leikmanna deildarinnar sem er reglulega valinn í íslenska landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR FH 1. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI 2009 GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 1. sæti í A-deild 2007 2. sæti í A-deild 2006 1. sæti í A-deild 2005 1. sæti í A-deild 2004 1. sæti í A-deild 2003 2. sæti í A-deild AÐRIR LYKILMENN TRYGGVI GUÐMUNDSSON ATLI VIÐAR BJÖRNSSON ÁSGEIR GUNNAR ÁSGEIRSSON GENGI Á VORMÓTUNUM Sigrar Jafntefl i Töp 9 > X-FAKTORINN Tommy Nielsen er og hefur verið einn allra mikilvægasti leikmaður FH- inga enda einn fremsti varnarmaður deildarinnar. Hann er hins vegar orðinn 37 ára gamall og ljóst að það mun mikið mæða á honum í sumar. Heimir Guðjónsson á ekki von á því að FH muni fara létt með að verja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar, eins og svo margir virðast halda fyrir fram. FH er spáð Íslandsmeistaratitilinum hjá Fréttablaðinu eins og svo víða annars stað- ar. Þar með er sleginn botn í upphitun blaðsins fyrir Pepsi-deildina sem hefst á morgun. „Það er ekki hægt að segja að það komi okkur á óvart að okkur sé spáð velgengni,“ sagði Heimir. „Við erum ríkjandi meistarar og það hafa litlar breytingar átt sér stað á leik- mannahópnum. Við áttum því von á þessu.“ Hann segir að sitt lið sé á góðu róli og það hafi gert liðinu gott að fara í æfingaferð til Portúgals. „Þar náðu menn að stilla saman strengi og eftir það höfum við verið á uppleið. Vonandi verður það þannig áfram.“ FH-ingar hafa þó ekki tapað einum einasta leik í mótum undirbúningstímabilsins og oftar en ekki unnið leikina með stórum mun. „Markmiðin hjá FH eru þau sömu og hafa verið síðustu ár – að vera í toppbaráttunni. En það er ljóst að það verður erfitt að verja titilinn enda mikið af sterkum liðum í deildinni. Þau hafa verið að bæta við sig töluverðu af leikmönnum og þá kannski sérstaklega síðasta mánuðinn.“ Sjálfir hafa FH-ingar bætt við sig einum leik- manni, norska sóknarmanninnum Alexander Söderlund. „Við erum mjög ánægðir með okkar leikmannahóp. Við bættum við okkur einum manni og þá eru þeir yngri sem fengu eldskírnina í fyrra orðnir ári eldri og reynslunni ríkari.“ Verður erfitt að verja titilinn FÓTBOLTI „Auðvitað vil ég ekki fara frá Barcelona. En miðað við stöðu mína hjá félaginu gæti ég þurft að hugsa mig tvisvar um eftir tíma- bilið.“ Þetta segir Eiður Smári Guð- johnsen í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að orð hans hafi verið rangtúlkuð í viðtali við Morgun- blaðið í gær þar sem hann var sagður vilja fara frá Barcelona. „Ég tel að ég sé búinn að gefa þessu fullan séns hér. Mér fannst ég spila mjög vel framan af tíma- bilinu og kom mér vel inn í liðið. Miðað við spilamennsku á ég skil- ið að fá fleiri mínútur inni á vell- inum. Það var það sem ég átti við,“ segir Eiður. „En það er ekkert ákveðið og nú mun ég nota alla mína krafta til að klára tímabilið með stæl. Von- andi fæ ég að spila meira en ég hef fengið á undanförnum vikum.“ Óánægður á bekknum Hann segist ekki vera sáttur við að sitja á bekknum, ekki frek- ar en aðrir knattspyrnumenn. „Þó það sé gaman að vera í stórliði sem keppir um alla titla er ég ekki sátt- ur við að sitja á bekknum og bíða eftir að ferillinn klárist. En þar með er ekki sagt að ég vilji fara. Ég vil hins vegar breyta minni stöðu hér.“ Eiður segir að hann sé ekki búinn að hugsa málið lengra en svo. „Ef það kemur að því að ég fari frá félaginu mun ég skoða hvaða möguleikar standa mér til boða í sumar – ekki fyrr. Ég hef ávallt sagt að það sé ekki sjálf- gefið að ég fari aftur til Eng- lands og ef ég fer þá þarf ég að taka tillit til heildarmynd- arinnar. Ég á mína fjölskyldu sem líður vel hér. Strák- arnir þrír eru ánægð- ir, því væri það stórt skref fyrir okkur öll að fara annað.“ Sem fyrr segir hefur Eiður lítið fengið að spreyta sig að undanförnu. Hann hefur þó ekki rætt það sérstaklega við knatt- spyrnustjóra liðsins. Get ekki rifið kjaft „Það er erfitt að vera í liði þar sem allt geng- ur upp og vera að rífa kjaft. Ég hef bara reynt að halda áfram og vera tilbúinn þegar ég fæ mitt tækifæri. Mér var mikið hrósað þegar ég kom inn á sem vara- maður gegn Valenc- ia fyrir tveimur vikum og það var síðan erfitt að kyngja því að fá ekki að fylgja því eftir.“ Eiður kom aðeins við sögu í mýflugumynd í næstu þremur leikjum liðsins, í tveimur leikjum gegn Chelsea og gegn Real Madr- id. Þrátt fyrir það og annað mót- læti á leiktíðinni segir hann þolin- mæði sína ekki á þrotum. „Ég held að margir knattspyrnu- menn hafi klikkað á því í gegnum tíðina að vera óþolinmóðir. Ég tel að þolinmæðin hafi ávallt verið einn af mínum styrkleikum og gert mig sterkari fyrir vikið. Það hef ég margoft upplifað á mínum ferli. Ég fékk oft að heyra það þegar ég var hjá Chelsea að ég ætti að fara. En þegar kom að því fór ég sem Eng- landsmeistari og það eina sem ég fékk að heyra þegar ég kom til aftur til London á dögunum var að félagið hefði aldrei náð að finna neinn í stað- inn fyrir mig. Þolinmæðin er ekki á enda þó svo að ég segist vera óánægður með mína stöðu. Ég er bara fótbolta- maður og elska að spila fótbolta. Það er leiðinlegt þegar maður getur það ekki. Ég hef nú líka stundum heyrt þá umræðu að það sé metnaðarleysi af minni hálfu að vera áfram hjá Barcelona. Það skil ég ekki alveg. Ég held að það sé einmitt metnaðar- fullt að reyna að feta sig meðal þeirra bestu.“ Aldrei unnið þrennuna Barcelona á nú mögu- leika á að vinna þrjá stærstu titlana sem í boði eru á einu og sama tímabilinu – spænsku úrvalsdeildina, spænsku bikarkeppnina og Meistaradeild Evrópu. Ef liðinu tekst það verður það í fyrsta slíka þrennan í sögu félagsins. „Um helgina getum við orðið spænskir meistarar og svo bik- armeistarar í næstu viku. Svo er úrslitaleikur Meistaradeildarinnar handan við hornið. Ein örlagarík- asta vika í sögu félagsins fer því senn að hefjast. Ég er því sann- arlega ekki að hugsa um að fara eitthvað annað. Ég fer dýrvitlaus á allar æfingar og er staðráðinn í að fá mínar mínútur. Ég ætla þar að auki að njóta þess að taka þátt í velgengni liðsins, sama hversu mikið ég fæ að taka þátt í úrslita- leikjunum.“ Hann segist vel gera sér grein fyrir því að hann hafi ekki verið mikilvægasti leikmaður liðsins á leiktíðinni en að hann eigi sinn þátt í velgengni þess eins og aðrir leikmenn. „Ég er enginn vitleysingur og geri mér vel grein fyrir því að ég er ekki jafn mikilvægur og Henry, Eto’o og Messi. En allir leikmenn hafa tekið þátt og lagt sitt af mörk- um, hvort sem þeir spila í níutíu mínútur í leik eða fimmtán. Það er liðsheildin sem vinnur titlana.“ eirikur@frettabladid.is Vil ekki fara en mun skoða mín mál Eiður Smári Guðjohnsen segir það rangt sem kom fram í Morgunblaðinu að hann vilji fara frá Barcelona í sumar. Í raun vill hann vera áfram en hann gæti neyðst til að skoða sína stöðu í lok tímabilsins. HJÁLPARHÖND Eiður Smári hjálpar Lionel Messi að reisa sig við. NORDIC PHOTOS/AFP TÍMABILIÐ HJÁ EIÐI Allir leikir Leikir 29 (14 í byrjunarliði) Mínútur 1341 Skot (á mark) 22 (7 á mark) Mörk/stoðsendingar 4/4 Spænska deildin Leikir 20 (8 í byrjunarliði) Mínútur 837 Skot (á mark) 14 (4 á mark) Mörk/stoðsendingar 3/2 Spænski bikarinn Leikir 5 (5 í byrjunarliði) Mínútur 376 Skot (á mark) 6 (3 á mark) Mörk/stoðsendingar 1/0 Meistaradeildin Leikir 4 (1 í byrjunarliði) Mínútur 128 Skot (á mark) 2 (0 á mark) Mörk/stoðsendingar 0/2 GOLF Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson fór mikinn á opna ítalska meistaramótinu í gær en leikið var í Tórínó. Birgir Leifur lék frábært golf og kom í hús á 65 höggum eða 6 höggum undir pari. Hann er því samtals á 7 höggum undir pari á mótinu en annar hringurinn var leikinn í gær. Birgir Leifur fékk átta fugla á hringnum en aðeins tvo skolla. Hann er tveimur höggum á eftir efsta manni. Þessi frábæri hringur Birgis skilaði honum í þriðja sæti móts- ins en mótinu verður fram haldið í dag og lýkur á sunnudag. - hbg Birgir Leifur Hafþórsson: Fór á kostum á Ítalíu BIRGIR LEIFUR Sjóðheitur í Tórínó í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var kjörinn knatt- spyrnustjóri aprílmánaðar í enska boltanum og Rússinn Andr- ey Arshavin var valinn leikmað- ur mánaðarins. Þetta er í 23. skipti sem Sir Alex hlýtur þessi verðlaun. Unit- ed hefur aðeins tapað tveimur af síðustu 23 leikjum sínum í deild- inni og virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur liðsins í deildinni. Leikur Arshavins gegn Liver- pool gleymist seint en Rússinn skoraði öll fjögur mörk Arsenal í leiknum ótrúlega sem endaði 4-4. - hbg Enska úrvalsdeildin: Alex og Arshav- in bestir í apríl SIR ALEX Valinn stjóri mánaðarins í 23. skiptið á ferlinum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.