Skinfaxi - 01.11.1949, Page 13
SKINFAXI
77
og til innstu heiða, ljós er hafa lýst um þrjár aldir
og munu lýsa um öll ókomin ár. Sá kraftur varð ó-
þrotleg heilsulind. Hann gaf þjóðinni þrek að stand-
ast lífsbaráttuna. Hann létti störfin og stríðið um
langnætti vetrarins og gaf fátækum gleðileg jól. Hann
lét vaxa ljúfari gróður en suðræn aldin — beztu
blómin í brjóstum, sem að geta fundið til. Hann gaf
okkur mestu vormenninna og brautryðjenduma: Egg-
ert Ólafsson, Baldvin Einarsson, Bjarna Thorarensen,
Jónas Hallgrímsson, Tómas Sæmundsson, Jón Sigurðs
son, Matthías Jochumsson. Himneskur andi hrærði
svo hörpu þeirra, að ómurinn mun lifa um aldir alda
í íslenzkri þjóðarsál.
Ungmennafélagar og íslenzkur æskulýður. Gefizt
þessum krafti á vald til sigurs í landnáminu mikla
framundan. Tryggið þannig gæfu Islands og ykkar
sjálfra við alefling andans og athöfn þarfa.
Eins og litrófið felst í sólargeislanum, þannig býr
allt, sem gott er, í kraftinum að ofan. Ég veit, að ykkur
er það ljóst. En samt langar mig einkum til að biðja
ykkur að eflast að tvennu.
Annað er kraftur hreinleikans, sem endurnýjast með
hverri kynslóð, bjargar frá glötun, í barnslegri mynd,
og birtir leiftrandi augum áskorun til allra að verða
ljóssins börn. Draumur Vísa-Gísla um aðalsmanna-
skóla á Þingvöllum á að rætast í þeirri mynd, að hver
æskumaður, sem upp vex á Islandi, verði sannur
aðalsmaður með hreinum skildi. Ég sá eitt simi nokk-
ur skjaldarmerki aðalsmanna og las einkunnarorðin,
sem á voru letruð. Ein þótti mér fegurst: Non in
tenebris. Ekki í myrkrunum. Svo verði um líf okkar
og starf. Tært ljós af himni falli í djúp hjartans og
brenni burt það, sem óhreint er og ljótt, en varðveiti
barnslega fegurð og grandvarleik. „Sendu oss heilag-
an anda og hreinsa oss“, kenndi Kristur.
Um hitt skiptir þó enn meir.