Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 62
126
SKINFAXI
Lög IJngmeiiiiafélags
*
Islands.
1. gr.
Sambandið heitir Ungmennafélag íslands. Skammstafað:
U. M. F. t.
2. gr.
U. M. F. í. vinnur samkvæmt eftirfarandi stefnuskrá:
Að sameina íslenzkan æskulýð mn að vernda og efla sjálf-
stæði íslendinga á þjóðlegum menningargrundvelli. Takmarki
sínu hyggst félagsskapurinn einkum að ná, samkvæmt eftir-
farandi starfsskrá:
1) Að hafa bindindi um nautn áfengra drykkja, vernda æsku-
lýðinn gegn neyzlu þeirra og vinna að útrýmingu skað-
nautna úr landinu.
2) Að vinna að þvi að klæða landið skógi.
3) Að efla áhuga æskulýðsins fyrir að vernda og fegra móð-
urmálið og sinna söng og bókmenntum þjóðarinnar að
fornu og nýju.
4) Að efla heimilisiðnað og glæða með æskulýðnum tryggð
og rækt við heimili sin og átthaga.
5) Að stunda íþróttir og halda landsmót, sem sýna þá og aðra
starfsemi félaganna.
6) Að efla í hvívetna fræðslu og uppeldisstarf meðal æsku-
lýðsins. Stuðla að því að unglingar geti notið framhalds-
menntunar, hver við sitt hæfi, og að þeirra bíði lífvænleg
atvinna að loknu námi. Að efla með æskulýðnum sparsemi,
skyldurækni, vinnusemi og fórnarlund.
7) Að efla þjóðlegt skemmtanalíf með menningarsniði. Halda
uppi málfundastarfsemi og hjálpa æskulýðnum til þegn-
Iegs þroska með því að æfa hann við að rökhugsa þjóð-
nytjamál og vinna að framgangi þeirra.
í þessu skyni séu haldin námskeið m. a. með samvinnu
við skóla landsins.
8) Að vinna í anda friðar-, manngildis- og menningarhugsjón-
ar kristindómsins.
9) Að styðja jafnrétti karla og kvenna.
10) Að vinna að náinni samvinnu við ungmennafélög hinna
Norðurlandanna og við æskulýð yfirleitt á jafnréttis- og
sjálfstæðisgrundvelli allra þjóða.