Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 83
SKINFAXI
147
Hrafnkell Freysgoði vann Huginn með 7:1 og Austra með 6:4.
Austri vann Huginn með 6:3. — Dómari var Bóas Emils.
Drengjamótið: — Austri Eskifirði vann mótið með 25 stigum.
2. Þróttur Neskaupstað 14 st. 3. Huginn Seyðisfirði 10 st.
4. Hrafnkell Freysgoði 10 st.
FRÉTTIR
Kjartan Jóhannesson
söngkennari frá Ásum kennir söng og orgelspil í vetur, eins
og að undanförnu, hjá nokkrum Umf. á Suðurlandi, að til-
hlutun U.M.F.Í. Er hin mesta ánægja með kennslu Kjartans
hjá þeim félögum, er hennar geta notið.
Jens Marinus Jensen
formaður Ungmennasambands Danmerkur, sem var heiðurs-
gestur U.M.F.Í. á landsmótinu i Hveragerði, hefur skrifað ítar-
lega frá ferð sinni í dönsk blöð, einkum Dansk Ungdom, viku-
blað sambandsins.
Hann skrifar þar rækilega ferðasögu, frá því hann leggur
upp frá Osló og kemur þangað aftur, grein um landsmótið í
Hveragerði og 16. sambandsþing U.M.F.Í. og helztu stefnumál
sambandsins, um menn, er liann kynntist á íslandi. Þá grein-
ar, sem hann nefnir: Frá Skálholti til Bessastaða, Getur ís-
lenzk æska sameinað þjóðleg menningarverðmæti og nútima
áhrif? Og um handritamálið hefur liann skrifað greinar í
mörg dönsk blöð, ásamt fleiru.
Allar greinarnar bera vott um mikla velvild í garð íslend-
inga, og skilning á málefnum þeirra. Hann lýsir mikilli ánægju
sinni yfir ferðalaginu og telur það hið merkasta, sem hann
hefur farið á siðari árum. Verður síðar vikið að ýmsu í grein-
um hans, einkum handritamálinu.
Umf. Reykjavíkur
hefur tekið Listamannaskálann á leigu i vetur og rekur þar
ýmiskonar félags- og menningarstarfsemi. Munu þar verða
haldin gestamót, sem einkum eru ætluð Umf. víðsvegar af
landinu, sem dvelja í Reykjavík. Eru Umf. livattir mjög til
þess að sækja samkoinur þær, sem Umf. Reykjavíkur gengst
10*