Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 70
134
SKINFAXI
óttinn við að eyðileggja kast raeð yfirstigi, dragi ekki úr hraða
og átökum.
Þess verður kastiðkandinn að gæta að hraðinn fari vaxandi
með hverjum snúning.
1. snúningur hraður (hraðari en sveifluhraði sleggjuhaussins
i undirbúningssveiflunni).
2. snúningur hraðari.
3. snúningur hraðastur.
Meðan kastarinn sveiflar sleggjuhausnum yfir höfuð sér
stendur hann báðum fótum á jörðu. Á þvi augnabliki, sem
hann hefur snúning færist likamsþunginn yfir á vinstra fót
og við viðnám fóta að loknum snúningi hvílir þunginn á
báðum.
Til þess að sveifla sleggjunni út í loftið, yfirfærist hraði og
átök snögglega frá fótum, mjöðmum, bol og yfir til vinstri
hliðar, þar sem armar leggja smiðshöggið á.
Aukning vöðvastyrks er hyrningarsteinn færni í sleggju-
kasti. Handstaða, hnébeygjur, armbeygjur og armréttur í ]á-
réttri legu, lyftingar og glíma eru ágætar æfingar fyrir iðk-
anda sleggjukasts. Klifur i köðlum og hönguæfingar á slám
gera sama gagn.
Auk afls þarf hraða og mýkt í allar hreyfingar. Til þess að
afla sér þessa er ágætt að æfa rás-viðbrögð, spetthlaup, hlaup
yfir lágar grindur og hástökk.
Vegna þeirrar áreynslu, sem snúningarmr krefjast, þarf
iðkandinn að þjálfa þol sitt.
íþróttanefnd ríkisins
var skipuð að nýju 26. nóv. til þriggja ára. í henni eiga nú
sæti: Guðmundur Kr. Guðmundsson fulltrúi, formaður, Daniel
Ágústínusson kennari eftir tilnefningu U.M.F.Í. og Hermann
Guðmundsson fyrv. alþm. eftir tilnefningu Í.S.Í.
Varamenn eru: Jens Guðbjörnsson bókbindari, varaformað-
ur, Rannveig Þorsteinsdóttir alþm. og Benedikt G. Waage for-
seti Í.S.Í.
Sú breyting hefur orðið á nefndinni, að Guðmundur Kr. Guð-
mundsson tekur aftur við þeirri formennsku, er hann hafði
1940—’46, en Hermann Guðmundsson, sem verið hefur for-
maður undanfarin 3 ár, tekur sæti Kristjáns L. Gestssonar, sem
átt liefur sæti í íþróttanefndinni síðan 1943 og verið gjaldkeri
nefndarinnar allan þann tíma og unnið þar mikið og gott starf.