Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 65
SKINFAXI
129
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR XVI.
Sleggjnkast.
(^inariion :
■mariion :
Hver sá, sem vill ná fuilkomnu kastlagi á sleggju, æfir i
byrjun að kasta án þess að snúa sér.
Flestar sleggjur hafa eitt handfang. Þeir, sein ekki eru örv-
hentir, grípa með vinstri hendi um handfangið og hægri hendi
yfir þá vinstri (mynd 1). Rétt er að bera hanzka á vinstri
hendi. Hanzkinn skal vera úr þjálu efni og fingurnir klæddir
skinni. Margir kastarar kjósa að bera skinnklædda vettlinga
eða skinnhanzka á báðum höndum, til þess að forðast að takið
renni af handfanginu og varna sárindum við núning handa og
handfangs.
Iíastarinn snýr baki í kastáttina í upphafsstöðu. Fætur eru
í gleiðstöðu, þó eigi aðskildir um of. Tær vita aðeins út og
greiða kr. 5.00 árlega í sambandssjóð eða kr. 50.00 í eitt skipti
fyrir öll. Frjálst er mönnum að greiða hærra gjald, og eru þá
styrktarfélagar. Félagar samkvæmt grein þessari eru bundnir
ákvæðum 2. gr. og hafa réttindi og skyldur samkvæmt 4. gr.
Þeir fá Skinfaxa ókeypis. Rétt er þó, að þeir vinni fyrir sam-
bandið þau störf ein, er þeir kjósa sjálfir.
Sambandsþingið getur kjörið heiðursfélaga U. M. F. í. þá
menn, er unnið liafa ungmennafélagsskapnum óvenju mikið
gagn, eða þingið vill veita sérstaka sæmd fyrir ágæt störf í
anda U. M. F. í. Heiðursfélagar hafa öll réttindi ungmenna-
félaga, en eru sjálfráðir um skyldur.
10. gr.
Sambandslög þessi öðlast þegar gildi. Eru þar með eldri
sambandslög og þingsályktanir úr gildi numin.
9