Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 54
118
SKINFAXl
banni. Umf. ættu að vekja samvizku þjóðarinnar og skapa
það almenningsálit, sem fordæmdi áfengisnautn. Málinu vísað
til starfsmálanefndar eftir allmiklar umræður.
VI. Samvinna ungmennafélaga á Norðurlöndum.
Frsm. Jens Marinus Jensen, formaður Ungmennasambands
Danmerkur. Rakti hann í skemintilegri ræðu, starf og stefnu
æskulýðsfélaganna á Norðurlöndum og þann skerf, sem lýð-
háskólarnir hefðu lagt til þeirra, samstarf æskulýðsfélaga
hinna einstöku landa, þýðingu þess menningarlega og hver
styrkur það væri fyrir þessar frændþjóðir, að það samstarf
gæti orðið sem víðtækast. Sambandsstjóri þakkaði frsm.
ágæta ræðu. Málinu visað til starfsmálanefndar.
VII. íþróttamál.
Frsm. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi. Gaf ræðan mjög
itarlegt og glöggt yfirlit um þróun íþróttamálanna síðustu árin.
Bæði hina frjálsu íþróttastarfsemi og byggingaframkvæmdir.
Fór hann lofsamlegum orðum um þátt Umf. í íþróttamálun-
um. Sundlaugar eru nú 84 og er það lilutfallslega meira en
þekkist í öðrum löndum. íþróttavellir væru hinsvegar fáir,
sem íöglegir gætu talizt. Á 32 stöðum væru þeir nú í byggingu.
Mörg Umf. störfuðu nú að byggingu félagsheimila.
Æskilegast væri að íþróttakennarar gætu verið búsettir i
vissum héruðum, þar sem kennslan færi fram. Hefði reynzt
erfitt í framkvæmd. Stefna bæri að því, að íþróttakennarar
héraðsskólanna störfuðu meira meðal æskunnar í umhverfi
skólanna. Nefndi sem dæmi, að iþróttakennari frá Laugar-
vatni, Þórir Þorgeirsson, hefði kennt i vor lijá Skarphéðni
með óvenjulega góðum árangri. Fór að lokum viðurkenning-
arorðum um skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal, sem
hann taldi að Umf. ættu að efla sem mest. Eftir talsverðar
umræður var málinu visað til íþróttanefndar.
VIII. Stefna Umf. í sjálfstæðismálum þjóðarinnar.
Frsm. sr. Eiríkur J. Eiríksson. Gat hann þess að Umf. væru
byggð upp til baráttu fyrir sjálfstæðismálin. Þau hefðu frá
upphafi látið sig þjóðræknismál miklu skipta. Þau yrðu nú
að marka sér ákveðna stefnu í þessum málum. Lagði siðan
fram þrjár tillögur, sein vísað var umræðulaust til allsherj-
arnefndar.