Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 69
SKINFAXI
133
og halastjarna út í loftið, meðan hann sjálfur verður að ein-
beita sér með bolsnúningi að því að ná jafnvægi.
Eftir að kastiðkandinn er farinn að hafa vald á undirbún-
ingssveiflunum, er hann fær til þess að hefja köst með einum
bolsnúningi (mynd 2).
Hann tekur sér stöðu innan hrings eins og fyrr er lýst og
hefur undirbúningssveiflurnar. Þegar sleggjuhausinn hefur náð
þeim hámarksliraða, sem kastaranum er unnt að yfirfæra á
hann, hefur hann bolsnúninginn um vinstri fót. Bolsnúningur-
inn hefst er sleggjuhausinn byrjar að færast nðiur frá hæsta
punkti brautarinnar. Bolsnúningurinn hyrjar með mjaðma-
vindu til vinstri, vinstri fótur er kyrr í jörðu, meðan hægri
fótur, sem hefur fylgt mjaðmavindunni eftir með þvi að hon-
um liefur verið snúið inn á við um táberg, en þegar mjaðma-
vindan er fullgerð, er hægra fæti lyft og snúningnum hraðað
með stigi hægra fótar til vinstri i kross yfir og aftur fyrir og
stigið þar niður með tær í sömu stefnu og upphafsstöðu. Á
meðan hefur kastarinn snúizt um hæl vinstra fótar og síðar
um táberg þar til hann hefur náð sömu fótfestu og í upphafs-
stöðu. Bolsnúningurinn verður að framkvæmast hraðar en
sleggjuhausinn sveiflast og þegar er öruggri fótfestu er náð,
á sleggjuhausinn ekki að vera búinn að ná lægstu stöðu í braut
sinni, svo að hægt sé að yfirfæra hraða líkama kastarans á
sleggjuhausinn við átak fóta, bols og arma í sveiflu sleggju-
haussins upp á við og yfir vinstri öxl. Þar eð kastarinn leggur
allt afl, hraða og þunga í sveifluna, verður hann að ná jafn-
vægi með því að snúa sér i kaststefnuna.
Þegar að kastiðkandinn nær fullu valdi á snúningshreyfing-
unni, lyftast fætur báðir frá jörðu i miðhluta snúningsins og
hann lendir á þá báða sem í upphafsstöðunni.
Byrjandi færist venjulega um 3 til 4 fet framar i hringnum
við fyrsta snúning. Þegar kastiðkandi hefur tamið sér vel köst
með einum snúning, bætir hann öðrum snúning við, sem hann
framkvæmir á sama hátt og þann fyrsta, en gætir þess nú
að nota styttra svæði úr hringnum undir hvorn snúning
(2y2 til 3 fet).
Eftir að hafa náð fullu valdi á sér og sleggjunni með beitingu
tveggja snúninga, bætir kastiðkandinn þriðja snúningum við,
(mynd 3), sem er framkvæmdur á sama hátt og hinir, nema nú
verður kastiðkandinn að temja sér að leggja ekki undir sig
meira svæði við hvern snúning en 2 fet. Að loknum þriðja
snúningi er aðeins stutt bil frá fótum fram að hring, svo að
kastiðkandinn verður að temja sér nákvæma hömlun, svo að