Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 63
SKINFAXl
127
Fáni og merki U. M. F. í. er: Hvitbláinn og kjörorð: ís-
landi allt.
3. gr.
U. M. F. í. skiptist í héraðssambönd. Eigi geta einstök félög
verið i U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, frá héruðum
þar sem héraðssambönd eru starfandi. Verði ágreiningur um
það, hvar félag á að vera i héraðssambandi, sker sambands-
stjórn úr.
Lög héraðssambands og einstakra félaga skulu vera i fullu
samræmi við sambandslög þessi. Inntökubeiðni héraðssam-
bands eða félags í U. M. F. í. skal fylgja eintak af lögum þess.
Sambandsstjórn úrskurðar inntöku. Hún hefur og rétt til að
víkja félögum og héraðssamböndum úr U. M. F. í., ef hún tel-
ur það nauðsynlegt.
4. gr.
Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt, hvar
sem er á samkomum ungmennafélaga, en enginn má vera
reglulegur félagi, nema eins sambandsfélags. Allir ungmenna-
félagar skulu þúast.
5. gr.
Sambandsþing U. M. F. í. skal háð i júní—júlimánuði annað
eða þriðja hvert ár í Þrastaskógi. Þó hefur sambandsstjórn
vald til að velja annan þingstað, ef henni þykir ástæða til. Hér-
aðssambönd kjósa fulltrúa til sambandsþings, einn fyrir hvert
stórt hundrað félagsmanna og afgang, nái hann helmingi. Ein-
stök félög, sem eru í U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands,
kjósa fulltrúa eftir sömu reglu.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsþingi, nema um
lagasetningu eða lagabreytingar sé að ræða. Til þeirra þarf %
greiddra atkvæða. Sambandsþing er lögmætt, ef mættur er full-
ur helmingur fulltrúa þeirra, sem réttur er til að kjósa.
Sambandsþing úrskurðar reikninga sambandsins og setur
fjárlög. Það ræðir og ályktar um framkvæmdamál og önnur
viðfangsefni sambandsins, og dæmir mál þau, sem skotið er
til þess, frá sambandsstjórn eða héraðasamböndum. Það kýs
sambandsstjórn, varastjórn og endurskoðendur.
6. gr.
Sambandsstjórn er skipuð fimm mönnum, sambandsstjóra,
ritara, gjaldkera, varasambandsstjóra og meðstjórnanda. Hún