Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 63

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 63
SKINFAXl 127 Fáni og merki U. M. F. í. er: Hvitbláinn og kjörorð: ís- landi allt. 3. gr. U. M. F. í. skiptist í héraðssambönd. Eigi geta einstök félög verið i U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, frá héruðum þar sem héraðssambönd eru starfandi. Verði ágreiningur um það, hvar félag á að vera i héraðssambandi, sker sambands- stjórn úr. Lög héraðssambands og einstakra félaga skulu vera i fullu samræmi við sambandslög þessi. Inntökubeiðni héraðssam- bands eða félags í U. M. F. í. skal fylgja eintak af lögum þess. Sambandsstjórn úrskurðar inntöku. Hún hefur og rétt til að víkja félögum og héraðssamböndum úr U. M. F. í., ef hún tel- ur það nauðsynlegt. 4. gr. Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt, hvar sem er á samkomum ungmennafélaga, en enginn má vera reglulegur félagi, nema eins sambandsfélags. Allir ungmenna- félagar skulu þúast. 5. gr. Sambandsþing U. M. F. í. skal háð i júní—júlimánuði annað eða þriðja hvert ár í Þrastaskógi. Þó hefur sambandsstjórn vald til að velja annan þingstað, ef henni þykir ástæða til. Hér- aðssambönd kjósa fulltrúa til sambandsþings, einn fyrir hvert stórt hundrað félagsmanna og afgang, nái hann helmingi. Ein- stök félög, sem eru í U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, kjósa fulltrúa eftir sömu reglu. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsþingi, nema um lagasetningu eða lagabreytingar sé að ræða. Til þeirra þarf % greiddra atkvæða. Sambandsþing er lögmætt, ef mættur er full- ur helmingur fulltrúa þeirra, sem réttur er til að kjósa. Sambandsþing úrskurðar reikninga sambandsins og setur fjárlög. Það ræðir og ályktar um framkvæmdamál og önnur viðfangsefni sambandsins, og dæmir mál þau, sem skotið er til þess, frá sambandsstjórn eða héraðasamböndum. Það kýs sambandsstjórn, varastjórn og endurskoðendur. 6. gr. Sambandsstjórn er skipuð fimm mönnum, sambandsstjóra, ritara, gjaldkera, varasambandsstjóra og meðstjórnanda. Hún

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.