Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 24
88
SKINFAXI
Á undan var sunginn sálmurinn: Hve dýrðlegur er
drottinn, en Faðir andanna á eftir. Mannfjöldinn tók
undir, enda voru sálmarnir prentaðir í leikskrána, en
lúðrasveitin lék með. Á eftir var sungið Vormenn Is-
lands og Þú vorgyðjan svífur.
Þá flutti Eysteinn Jónsson menntamálaráðherra
snjalla hvatningaræðu til ungmennafélaganna og fór
jafnframt miklum viðurkenningarorðum um störf
þeirra.
Þegar ráðherrann hafði lokið máli sínu las Jón
Sigurbjömsson leikari þessi ættjarðarljóð: ísland far-
sældarfrón, Rís þú unga íslandsmerki og Vormenn Is-
lands, með djúpri og sterkri röddu, svo enginn komst
hjá því að hugleiða hinn sígilda boðskap, sem kvæðin
fiytja.
Það er siður norskra ungmennafélaga og raunar
Umf. víðar á Norðurlöndum, að fá snjalla upplesara
til þess að flytja alkunn ættjarðarljóð á mótum og
samkomum. Er það áreiðanlega holl og góð venja.
Þá flutti Ásmundur Guðmundsson prófessor ræðu.
Hann er gamall alþýðuskólastjóri og hefur ávallt unn-
ið mikið með æskunni og að málefnum hennar. Var
ræðan sköruleg og eggjandi hvatning til æskunnar að
duga sem bezt við hin margþættu og ótæmandi við-
fangsefni lífsins.
Næst flutti sr. Helgi Sveinsson, sóknarprestur í
Hveragerði, frumorkt ljóð, er hann nefndi: Ávarp til
æskuunar.
Að lokum flutti heiðursgestur mótsins, Jens Marinus
Jensen, fomiaður Ungmennasambands Danmerkur,
stutta ræðu. Hann ræddi einkum um samstarf Umf. á
Norðurlöndum og nauðsyn þess, að því yrði haldið á-
fram og eflt. Hann bar fram kveðjur og ámaðaróskir
dönsku ungmennafélaganna til þeirra íslenzku.
Jens Marinus Jensen er snjall ræðumaður, mikill
félagsmálaleiðtogi í heimalandi sínu og einlægur þeim