Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 64

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 64
128 MvINFAXi stýrir málefnum sambandsins milli þinga, eftir þvi sem lög og þingsamþykktir mæla fyrir í samráði við sambandsráð, sem skipað er formönnum héraðssambandanna og skal ráðið kallað sarnan svo oft sem þurfa þykir. Sambandsstjórn úrskurðar um ágreiningsmál þau, sem skot- ið er til álits hennar, en áfrýja má þó úrskurði hennar og sambandsráðs, til endanlegs úrskurðar sambandsþings. Hún heimtir inn tekjur sambandsins, varðveitir sjóð þess og ver honum i samræmi við fjárlög. Öll ber sambandsstjórn sam- eiginlega ábyrgð á sjóðnum, en skylt er gjaldkera að setja meðstjórnertdum sínuin tryggingu fyrir honum, ef þeir krefj- ast þess. Reikningar sambandsins skulu gerðir vera um hver áramót, endurskoðaðir þegar og birtir í Skinfaxa. Sambands- stjórn skal og birta árlega skýrslu um gerðir, hag og horfur sambandsins. Ef mál rís á hendur sambandsstjórn, skal þriggja manna nefnd dæma það. Sambandsþing kýs tvo manna þeirra, en sam- bandsstjórn nefnir einn. 7. gr. Hvert félag innan U. M. F. í. geiðir árgjald i sambandssjóð, kr. 1,00 af hverjum reglulegum félagsmanni fullra 16 ára og eldri. En reglulegir félagsmenn teljast þeir, er heimilisfestu eiga á félagssvæðinu og aðrir er greiða félagi árgjöld. Héraðsstjórnin innheimtir árgjöldin og stendur skil á þeim til sambandsstjórnar fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. Sam- bandsfélögin semja skýrslu um störf sín og hag við hver ára- mót og senda skýrsluna i tveim eintökum til héraðsstjórna fyrir febrúarmánaðarlok, er sendir annað eintakið, ásamt ár- gjöldum til sambandsstjórnar. Skytt er héraðssamböndum að semja skýrslur á sama hátt. U. M. F. í. leggur til skýrslueyðu- blöð. 8. gr. U. F. F. í. gefur út tímaritið Skinfaxa. Útgáfu þess er hag- að eftir reglum. sem sambandsþing setur. 9. gr. í U. M. F. f. má vera deild fyrir aukafélaga. Innkvæmt eiga i deild þá gamlir ungmennafélagar, er tryggð halda við félags- skapinn og þeir menn aðrir, er áhuga hafa á málefnum sam- bandsins og vilja vera tengdir því, en ástæður banna að vera starfandi félagar einhverra deilda þess. Aukafélagar þessir

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.