Skinfaxi - 01.11.1949, Page 64
128
MvINFAXi
stýrir málefnum sambandsins milli þinga, eftir þvi sem lög og
þingsamþykktir mæla fyrir í samráði við sambandsráð, sem
skipað er formönnum héraðssambandanna og skal ráðið kallað
sarnan svo oft sem þurfa þykir.
Sambandsstjórn úrskurðar um ágreiningsmál þau, sem skot-
ið er til álits hennar, en áfrýja má þó úrskurði hennar og
sambandsráðs, til endanlegs úrskurðar sambandsþings. Hún
heimtir inn tekjur sambandsins, varðveitir sjóð þess og ver
honum i samræmi við fjárlög. Öll ber sambandsstjórn sam-
eiginlega ábyrgð á sjóðnum, en skylt er gjaldkera að setja
meðstjórnertdum sínuin tryggingu fyrir honum, ef þeir krefj-
ast þess. Reikningar sambandsins skulu gerðir vera um hver
áramót, endurskoðaðir þegar og birtir í Skinfaxa. Sambands-
stjórn skal og birta árlega skýrslu um gerðir, hag og horfur
sambandsins.
Ef mál rís á hendur sambandsstjórn, skal þriggja manna
nefnd dæma það. Sambandsþing kýs tvo manna þeirra, en sam-
bandsstjórn nefnir einn.
7. gr.
Hvert félag innan U. M. F. í. geiðir árgjald i sambandssjóð,
kr. 1,00 af hverjum reglulegum félagsmanni fullra 16 ára og
eldri. En reglulegir félagsmenn teljast þeir, er heimilisfestu
eiga á félagssvæðinu og aðrir er greiða félagi árgjöld.
Héraðsstjórnin innheimtir árgjöldin og stendur skil á þeim
til sambandsstjórnar fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. Sam-
bandsfélögin semja skýrslu um störf sín og hag við hver ára-
mót og senda skýrsluna i tveim eintökum til héraðsstjórna
fyrir febrúarmánaðarlok, er sendir annað eintakið, ásamt ár-
gjöldum til sambandsstjórnar. Skytt er héraðssamböndum að
semja skýrslur á sama hátt. U. M. F. í. leggur til skýrslueyðu-
blöð.
8. gr.
U. F. F. í. gefur út tímaritið Skinfaxa. Útgáfu þess er hag-
að eftir reglum. sem sambandsþing setur.
9. gr.
í U. M. F. f. má vera deild fyrir aukafélaga. Innkvæmt eiga
i deild þá gamlir ungmennafélagar, er tryggð halda við félags-
skapinn og þeir menn aðrir, er áhuga hafa á málefnum sam-
bandsins og vilja vera tengdir því, en ástæður banna að vera
starfandi félagar einhverra deilda þess. Aukafélagar þessir