Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 19
SKINFAXI
83
vatnsleiðslur fyrir mótið. Rúmlega 100 tjöld voru þai
reist.
Margir íslenzkir fánar prýddu mótstaðinn hér og
þar. Allir Norðurlandafánarnir voru settir upp á tún-
inu ofan við Laugaskarðið. Sáust þeir víða að og settu
sérstakan svip á hátíðasvæðið. Yfir sundlaugahúsið
var strengdur borði með áletruninni: 7. landsmót
U.M.F.I. 1949.
Iþróttagreinar landsmótsins voru endanlega ákveðn-
ar á sambandsráðsfundi U.M.F.I. haustið 1948 og birtar
í Skinfaxa. Voru litlar breytingar gerðar á íþrótta-
greinum frá Laugamótinu 1946.
Þátttaka.
Þrátt fyrir breytinguna á mótstaðnum og ýmsa alveg
óvenjulega erfiðleika í vor, varð þátttaka í íþróttunum
sú mesta, sem hún hefur nokkru sinni verið. 12 héraðs-
sambönd og 2 einstök félög, eða 14 aðilar, tilkynntu
þátttöku sina í mótinu, alls um 250 íþróttamenn, í
frjálsum íþróttum, sundi, glímu, handknattleik kvenna
og íþróttasýningum. Til samanburðar má geta þess,
að á Laugamótið 1946 sendu 9 aðilar 200 íþróttamenn.
Þetta er mjög ánægjulegt, því það er fyrst og fremst
hin almenna sókn, sem Ungmennafélag Islands hefur
lagt áherzlu á í midirbúningi að mótunum og að
mótin megi verða íþrótta- og kynningarhátíð æskunnar
í landinu frá hinum fjarlægustu stöðum.
Talunarkið er vitanlega, að hvert einasta héraðs-
samband eigi þátttakendur á landsmótinu. Þá vantaði
nú frá 6 samböndum, sem vonandi geta frekar tekið
þátt í næsta landsmóti.
Iþróttafólkið var yfirleitt komið í Hveragerði á
föstudagskvöld. Þá var skipað 1 riðla og íþróttagrein-
um raðað niður á mótsdagana og tilkynning gefin um
það.
6*