Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 62

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 62
126 SKINFAXI Lög IJngmeiiiiafélags * Islands. 1. gr. Sambandið heitir Ungmennafélag íslands. Skammstafað: U. M. F. t. 2. gr. U. M. F. í. vinnur samkvæmt eftirfarandi stefnuskrá: Að sameina íslenzkan æskulýð mn að vernda og efla sjálf- stæði íslendinga á þjóðlegum menningargrundvelli. Takmarki sínu hyggst félagsskapurinn einkum að ná, samkvæmt eftir- farandi starfsskrá: 1) Að hafa bindindi um nautn áfengra drykkja, vernda æsku- lýðinn gegn neyzlu þeirra og vinna að útrýmingu skað- nautna úr landinu. 2) Að vinna að þvi að klæða landið skógi. 3) Að efla áhuga æskulýðsins fyrir að vernda og fegra móð- urmálið og sinna söng og bókmenntum þjóðarinnar að fornu og nýju. 4) Að efla heimilisiðnað og glæða með æskulýðnum tryggð og rækt við heimili sin og átthaga. 5) Að stunda íþróttir og halda landsmót, sem sýna þá og aðra starfsemi félaganna. 6) Að efla í hvívetna fræðslu og uppeldisstarf meðal æsku- lýðsins. Stuðla að því að unglingar geti notið framhalds- menntunar, hver við sitt hæfi, og að þeirra bíði lífvænleg atvinna að loknu námi. Að efla með æskulýðnum sparsemi, skyldurækni, vinnusemi og fórnarlund. 7) Að efla þjóðlegt skemmtanalíf með menningarsniði. Halda uppi málfundastarfsemi og hjálpa æskulýðnum til þegn- Iegs þroska með því að æfa hann við að rökhugsa þjóð- nytjamál og vinna að framgangi þeirra. í þessu skyni séu haldin námskeið m. a. með samvinnu við skóla landsins. 8) Að vinna í anda friðar-, manngildis- og menningarhugsjón- ar kristindómsins. 9) Að styðja jafnrétti karla og kvenna. 10) Að vinna að náinni samvinnu við ungmennafélög hinna Norðurlandanna og við æskulýð yfirleitt á jafnréttis- og sjálfstæðisgrundvelli allra þjóða.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.